Fálkinn


Fálkinn - 31.01.1947, Qupperneq 14

Fálkinn - 31.01.1947, Qupperneq 14
14 F Á L K I N N TONLISTARSYNINGIN Blásiö í lúðrana. Það er merkur viðburður í sögu tónlistarlífsins hér á landi, að búið er að koma upp tónlistarsýningu, sem allmargar þjóðir taka þátt í. Gestir þeir, sem líta inn í Sýningar- skála myndlistarmanna þessa dag- ana, geta aflað sér mikils fróðleiks um þróun tónlistarinnar og kynnt sér helstu listamenn á sviði henn- ar, bæði frumskapendur og túllcend- ur, þ. e. a. s. tónskáld og tónlistar- menn. En á milli þess að gesturinn skoðar myndir af tónjöfrum og les um þá, þá getur hann tyllt sér nið- ur og hlustað á tónverk, sem leik- in eru öðru hverju allan daginn. Sá „háklassiski“ og djúpsæi ætti helst að koma rétt eftir hádegi, því að þá eru leikin erfiðustu viðfangsefnin. En eftir þvi sem á daginn líður, er brugðið meira og meira yfir í léttari verk. En svo er líka daga- munur í viðfangsefnum. Einn dag- urinn er ætlaður þessari þjóð til túlkunnar sinna tónverka og annar dagur liinni. Siðastliðinn laugardag fóru þeir dr. Páll ísólfsson og Jón Leifs um sýninguna með blaðamönnum og skýrðu hana fyrir þeim. Sögðu þeir, að mjög hefðu þjóðirnar, sem boð- in var þátttaka, brugðið misjafnt við. Sumar hefðu þegar fyrir nokkru sent mikið og gott efní, ten aðrar hefðu eigi komið nema litlu áleiðis enn. Ekki kváðu þeir það sér að kenna, þar sem öllum þjóðum hafi verið boðin þátttaka samtímis. Finn- ar og Rússar hefðu verið einna fljótastir til, en ennþá vantaði efni viða að, sem jafnvel liefði orsakast af því, að íslensku stjórnarvöldin hefðu ekki gengið fram í þessu við sendiráðin sem skyldi. Jón Leifs taldi það verr, að eigi væru margir menn einmæltir um skoðun Pader- ewski, að listin væri stjórnmálun- um einu stigi ofar, enda liefði hann látið Versalasamkunduna eftir fyrri heimsstyrjöld bíða eftir sér stund- arfjórðung. — Svíþjóð töldu þeir tvímenningarnir liafa löglega afsök- un, vegna þess að flutningur sýn- ingarmuna frá Stolckhólmi til Gauta- borgar hefði tafist af völdum bíl- slyss, én nú væri von á miklu efni þaðan fyrir norræna daginn. — Þetta var nú iéttara hjal, áður en skoðunin hófst, en nú var haldið að íslensku deildinni. Við byrjuðum aftur í grárri forneskju með því að skoða ljósprentað handrit af tíða- söng Þorláks helga. Handritið er nú geymt í Árnasafni. Síðan var stildað á öldum, en síðan staldrað við ýms nöfn, sem þó skulu ekki talin upp hér, því að almenningur veit býsna margt um tónskáld sín og tónlistarmenn, að minnsta kosti öll þau helstu. Þegar menn sjá gips- myndina af Sigvalda S. Kaldalóns, þá rifjast up í hugum manna liin alþýðlegu lög tónskáidsins nýlátna, sem hefir sungið tónsmiðar sinar inn í hug þjóðarinnar. Málverk og myndir, sönglagatextar o. fl. seiðir fram í hugi manna margþættar minn ingar, og við förum ósjálfrátt að bera okkur saman við aðrar þjóðir, þvi að til þess hættir íslendingum mjög, hvort sem um tónlist er að ræða, eða málaralist, skáklist eða annað slíkt. Og slíkt ber ekki að lasta, lieldur lofa, ef samanburður okkar byggist hvorki á oflæti eða minnimáttarkennd, heldur á hlutlaus um dómi gjörlnigals skoðanda. Svo er þarna ýmislegt fleira en mannamyndir og þess háttar, og eitt var það sérstaklega, sem sá, er þetta ritar rak augun í. Það er ferðahljóð- færið lians Jóns Leifs. Það sakar engan, að gera sér ferð niður í Sýningarskála, jafnvel þótt ekki væri til annars en að líta á þetta merki- lega lcrýli. Síðan mjakaðist hópurinn liægt og liægt áfram, deild úr deild. í Danmerkur deildinni draga tveir stór ir lúðrar athyglina helst að sér. Þeir eru ekki gljáfægðir og með kopar- lit, eins og nú tiðkast, enda ekki nýsmíði, því að þeir eru taldir 3-4 þúsund ára gamlir. Lúðrar slíkir sem þessir hafa fundist í jörðu á nokkrum stöðum í Danmörku, venju- lega tveir og tveir saman. Sænska deildin er hálf hrjóstug ennþá, en eins og fyrr getur er von á bótum þar. Norðmenn hafa sent fremur lítið. í pólsku deild- inni er afsteypa af hendi Chopin i eðiilegri stærð. Þarna sjáum við nöfn eins og Paderewski, sem skifti sér milli tónlistar og stjórnvisinda, og Szymanowsky. Tékkar höfðu hug á að koma upp myndarlegri deild, en báðu um svo langan frest, að því var ekki hægt að sinna. Annars eru Tékkar ein af öndvegisþjóðum tónlistarinnar nú á dögum. Ungverja- land skartar með nöfnum eins og Liszt og Bartok. Bartok gerðist .Bandaríkjamaður og Vesturheimsbú- ar vilja líka miklast af honum, enda var hann ekkert smámenni. í ít- ölsku deildinni mætti vera meira, því að hina ,,stóru“ vantar ekki. Verdi og Toscanini sjá fyrir því, svo að ekki séu fleiri nefndir. Þess má geta að Toscanini er nærri blind- ur, þótt okkur furði á slíku. Bandaríkin sendu sitt efni í síð- ara iagi, en jjar mun nú samt verða aliblómlegt um að litast. Frakkland hefir sent nokkurt efni, og þar er m. a. mynd af Romain Rolland, nóbelsverðlaunahöfundinum sem er prófessor í tónlistarsögu við Sorbonne-háskólann. Rússland hefir upp á margt að bjóða. Þar skal fyrst frægan teija: Tschaikowski svo eru það nöfn eins og Miaskow- ski, Szostakovicz o. fl. Bretar hafa sent heilar syrpur af myndum úr dans og leiksýning- um, svo að þar er liægt að staldra við. Þar eru myndir af listakonunni Myra IJess, sem hefir verið ein stærsta stjarnan í tónlistartúlkun Breta á stríðsárunum. — Á einum veggnum eru myndir af frægum ein- söngvurum eins og Enrico Caruso og L. Melchior. Siðan lá leið okkar til ýmissa hljóð færa, sem þarna eru til sýnis. Jón Leifs, sem nú var orðinn einn með okkur, því að dr. Páll var farinn út til að sinna öðrum störfum, skýrði allt fyrir okkur sem um var spurt — og meira en það, því að spurningar okkar blaðamannanna náðu svo skammt. Og það voru orð að sönnu, sem dr. Páll ságði við okkur, er hann kvaddi: „Mér er víst alveg óhætt að fara, hann Jón er alveg einfær um þetta.“ Þess má líka geta að i sambandi við sýninguna eru kvikmyndasýn- ingar. Rússar, Bandaríkjamenn og Finnar hafa sent filmur. Finnska kvikmyndin er um Sibelius, sem margir Finnar telja mesta mann, sem þeir liafa eignast. Og það er ekki undarlegt að svo sé, þvi að ættjarðarást hans er eins sönn og ástin á listinni. „Ef það er til að hjálpa Finnlandi, þá megið þið taka eins margar myndir af mér og ykk- ur sýnist,“ sagði hann, þegar leitað var samþykkis hans um, hvort mætti taka kvikmyndir á áttræðisafmæli hans. Sibelius-kvilcmyndin verður sýnd á norræna daginn, sem senni- lega verður á sunnudaginn. Ameríkumenn kaupa olíu. Það er stundum haft á orði, að Bandaríkja- menn séu sjálfum sér nógir og þurfi ekki að flytja neitt inn. Þetta er þó of djúpt tekið í árinni. Til dæmis flultu þeir inn á fyrra helm- ingi fyrra árs 67 miljónir tunnur af steinolíu, og er það mesti missiris- innflutningur í sögu Bandarikjanna siðan árið 1922. Á sama tíma 1945 var innflutningurinn 54 miljón tunnur. Mest af þessari olíu kemur frá Venezuela, en næst koma Hol- lands-Indíur, Mexico, Columbia og Trinidad. Nótna-sJdnnhandrit frá 15. öld.

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.