Fálkinn - 20.06.1947, Page 2
2
F Á L K I N N
VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM
Ritstjóri: Skúli Skúlason
Framkv.stjóri: Svavar Hjaltested
Skrifstofa:
Bankastr. 3, Reykjavík. Sími 2210
Opin virka daffa kl. 10-12 og 1-6
Blaðið kemur út hvern föstudag
Allar áskriftir greiðist fyrirfram
HBRBERTSpren/
SKRADDARAÞANKAR
í síðasta blaði var bent á, að
útsöiuverð einnar smálestar af góðri
síld vœri komin upp í tiu þúsund
krónur, þegar sildin vœri seld full-
verkuð í dósum. Með sáma verði
mundi síldarafli síðasta árs nemá
um 1317 milljónum. Vitanlega færi
mikiil meiri hluti af þessu fé i
beinan lcostnað. En það er samt
gaman að velta fyrir sér hvíiik ó-
grynni af „hráefni" felst í sildinni
við ísland.
Nú er i ráði að vinna eilthvað af
þessu hráefni betur en hingað til
hefir gert verið. Reisa stóra full-
verkunarstöð á Norðurlandi og af-
greiða eittlivað af síldarmagninu
þannig, að það verði flutt út ,,til-
búið á borðið". Síldarbræðslan hef-
ir hingað til verið eina stóriðjan,
sem rekin hefir verið hér á landi.
Nú bætist þessi við.
ísland ætti að hafa góða aðstöðu
til að gera fullverkun síldar að glæsi-
legum atvinnuvegi, og ástæðan til
þess er sú, hve síldin er góð. Gæði
hennar eru þegar kunn í öllum þeim
löndum, sem hún hefir fengið mark-
að í.
Og með þvi að verka síldina beint
upp úr sjónum á að vera liægt að
framleiða enn betri vöru en nú er
á markaðnum t. d. á Norðurlöndum..
Hin íslandsveidda síld, sem Norð-
menn veiða og selja sem „prima
Islandssíld“ hlýtur að vera lakari
vara en hin, sem skipað er beint
á land nokkrum tímum eftir að hún
er veidd. Það er hinn mikli aðstöðu-
munur, sem vegur á móti ýmsum
öðrum atriðum, er við stöndum verr
að vígi um en keppinautarnir.
Ef ísland verður aðalframleið-
andi bestu síldartegundar lieimsins
fyrir þjóðirnar austan hafs og vest-
an þarf það engu að kvíða. Þvi að
þó að síldin sé dutlungafull og hverfi
stundum, þá er hún okkur meira
virði en nokkur gullnáma. Og þegar
feitmetisskorturinn til iðnaðar fer
að sjatna, verður það mikils virði
að geta notað síldina í kræsingar,
í stað þess að pressa úr henni fitu.
Það er enn ekki séð hve mikil fram-
tíð er fyrir höndum i þessu efni,
það er engin skýjaglópska að gera
sér vonir um glæsilegán árangur af
matvælaframleiðslu úr þeirri síhl,
sem viðurkennd er sú besta í heimi.
*****
30 BÍLA HAPPPRÆTTI S. I. B. S.
Glæsilegt happdrætti. Gott málefni.
| Verðmæti vinninganna er:
íarþfga- ]
270 þús. krónur.
13.500 kr. farþegabíll fyrir
10 krónur.
Markmið S. í. B. S. er:
Útrýming berklaveikinnar á
íslandi.
XILDÖGU^ HAPPDRÆTTISI^S:
Dregið verður 4 sinnum, um 5 bíla í hvert sinn.
1. Dráttardagur 15. júli 1947. 3. Dráttardagur 15. febrúar 1948.
2. Dráttardagur 15. nóv. 1947. 4. Dráttardagur 15. maí 1948.
Viðskiptamönnum happdrættisins eru tryggðar allar bifreiðirnar.
í lokadrætti verður aðeins dregið úr seldum miðum.
Athugið: Dráttardögum verður ekki frestað.
Bíll fyrir ÍO kr. Bíll iyrir ÍO kr.