Fálkinn - 12.03.1948, Síða 3
FÁLKINN
3
an árbugðuna við Hestfjall mun
kvísl úr Hvítá hafa runnið upp á
flatirnar og komist á veginn milli
Bitru og Skeggjastaða. Yarð þar flóð
milcið. Þrjár meginkvíslar runnu
yfir veginn. Var sú austasta svo
vatnsmikil, að bifreiðar komust
ekki yfir hana. Neðst i Flóanum var
einnig mikill vatnaflaumur, og sum-
ir bæir urðu umflotnir.
Kaldaðarnesið fór i kaf, og skál-
arnir frá hernámsárunum stóðu
einir upp úr, eða réttara sagt, að-
eins hluti þeirra. Arnarbæli í Ölfusi,
gegnt Kaldaðarnesi var alveg um-
flotið.
Ofar með ánni, uppi í Þrastar-
lundi voru sumarbústaðir ýmist um-
fiotnir eða að meira eða ininna
leyti í kafi.
Spjöll á g'róðurlendi munu ein-
hver hafa orðið, þótt eigi sé full-
víst um það ennþá. Skiptir þar
miklu máli, hvort árburðurinn er
sendinn eða gróðurvænleg leðja.
Biskupstungur.
í uppsveitum Árnéssýslu gerðu
flóðin líka usla. Hvítá og Tungu-
fljót uxu að vatnsmagni og straum-
þunga. Lentu margir bæir í flóðun-
um. Mest urðu þau við Bræðra-
tungu, í oddanum milli Hvítár og
Tungufljóts, og á Reykjavöllum.
Ferjustaðurinn Krókur, nokkuð upp
með Tung'ufljóti, einangraðist af
vatns völdum. Við Auðsholt, austan
Hvítár gegnt Laugarási, varð nokk-
urt flóð. Hesta flæddi, en varð
bjargað, þegar vatnið náði þeim í
kvið.
Brúin á Brúarhlöðum varð fyrir
miklum skakkaföllum, er flóðið var
mest, og uppfyllingarnar við brú-
arendana tættust sundur. — Brýrn-
ar á Brúará og Tungufljóti skemmd-
ust svo til ekkert.
Hverir kólna að Laugarvatni.
Laugarvatn í Laugardal flóði yfir
bakka sína og varð mun stærra en
venjulega. Hverir, sem Laugarvatns-
skólinn fær liitann frá, fóru á kaf
og kólnuðu. Varð því kalt í skóla-
húsinu þann tima. Fljótt fjaraði
samt út, og lieitavatnskerfið komst
i lag aftur.
Rangárvallasýsla.
Fregnir bárust einnig af flóðum
í Þjórsá og ánum austur í Rangár-
A þjóðveginum austan Skeggjastaða.
Á föstudaginn var flogið austur
yfir flóðasvæðið, og sjást j)á greini-
lega, hvílíkur vatnsflaumur var á
undirlendinu í Árnessýslu. Blasti
hann við frá því að komið var
austur yfir miðja Hellisheiði. Mest
voru flóðin í Hvítá og Ölfusá.
íbúðarhús Lúðvíks Guðnasonar umflotið. Á neðri hæð jjess náði vatn-
ið i klof. Sjá mgndina af Lúðvík til hægri.
vallasýslu. Ekki hafa þau þú gert
annan eins usla og flóðin i Hvítá.
Eins og fyrr segir, er flóðum
þessum líkt við flóðin árið 1930.
Bera frásagnir Skeiðamanna og
Tungnamanna það með sér, að
vatnavextir í sveitum þeirra hafi
verið meiri nú en en þeir voru þá.
Hinsvegar mun flóðið í neðri liluta
Flóans tæplega hafa verið eihs
mikið nú, og vegurinn niður til
Eyrarbakka og Stokkseyrar lokað-
ist ekki. En 1930 einangruðust þorpin.
Með grein þessari og á forsíðu
birtast myndir austan af flóðasvæð-
inu við Selfoss og austur við Skeggja
staði. Gefa þær góða hug'mynd um
vatnavextina, og þeir, sem kunnugir
eru á þessum slóðum, sjá glögglega,
hversu miklir þeir liafa verið .—
Fálkinn hefir tekið myndirnar á
forsíðu og í greininni að undan-
skildum þremur: Myndina af Sel-
fossi úr lofti tók Pált Jónsson, mynd
Lúðvik Guðnason i íbúð sinni.
ina af hesthúsinu Þorsteinn Jóseps-
son og myndiná af Lúðvík Guðni
Þórðarson.
Flóðið í almætti sinu við Ölfusárbrúna.