Fálkinn - 12.03.1948, Blaðsíða 4
4
FÁLKINN
St. Moritz
Þessi hjú eni nú talin best í heimi
í skautálist og hafa nýlega sigrað
i St. Moritz. Það er Darbara Ann
Scott frá Canacla og fíichard fíurton
frá U.S.A., sem bœði urðu Olympíu-
meistarar.
Stökkbrautin í St. Moritz.
1948
Meðal hóglifisfólksins í St. Moritz,
sem ýijkir betra að sitja inni i hlýj-
um sölum gistihúsanna en að norpa
úti og horfa á íþróttir var þessi
dama, sem var kosin „Miss Olympi-
ade 19b8“.
Vetrar-Olympíuleikarnir
Hinn 8. febrúar lauk Vetrar-
Olympíuleikjunum í St. Morilz,
en þeir stóðu í 10 daga. Úrslit-
in urðu þau að Svi])j(')ð sigraði
með 82 stigum, Sviss fékk 77,
Bandaríkin 73%, Noregur (SQYi,
Austurriki 51, Finnland 49,
Frakkland 39. Canada 2iJ/íi,
Italía 22, Belgía 18, Bretland
15, Tékkóslóvakía 13, Ungverja-
land 10, Holland tí, Pólland 1
stig.
íþróttagreinarnar sem kcppt
var i voru alls 22, en vitanlega
eru það skautahlaupin, skíða-
göngur og skiðastökk, sem
mestu þykja varða hér á landi,
því að sleðaakstur, „curling“ og
íþróttakeppni hermanna skipta
oklcur minna máli. En i aðal-
iþróttunum voru það Sviar og
Norðmenn, sem báru af, og
Finnar stóðu sig einnig allvel,
þó að ýmsir byggjust við að
þeir mundu gera betlir. Norð-
menn voru fremstir á skautum
og í skíðastökki, en Sviar í
skíðagöngu. Þar brugðust Norð-
menn, en náðu sér niðri aftur
í skíðastökkinu þar sem þeir
tóku öll verðlaunin. Nýr mað-
ur, Petter Hugsted, fékk 1. verðl.
fyrir tí5 og 70 metra stökk og ein
kunir frá 18 til 19%. Birger Ruud
sem settur var í liðið á síðustu
stundu (liann meiddist fyrir
nokkrum vikum á æfingu og
ætlaði ekki að lceppa), fékk 2.
verðlaun. Hann stökk 64 og (57
metra. Þriðji varð Torleif
Schieldierup mcð 64 og 67 metra
stökk og fékk 225.1 stig. Birger
fékk 226.6 og Petter Iiugsted
228.1. Fjórði var Matti Pietik-
ainen, sem stóð best eftir fyrri
umferðina, liann stökk í bæði
skiptin 69 metra, en stíllinn var
ekki nógu fallegur. Ameríku-
maðurinn Gordon Wren varð
fimmti maður.
Slökkið var síðasta grein leik
anna, þeirra er almennur áhugi
var fyrir hjá norrænu þjóðun-
um. 1 kappgöngu, 50 km. á
skíðum, sem var daginn áður.
var það liin fræga kempa
,Mora-Nissa“ (Nils Karlsson),
sem vann gullið á 3.47.48, Sví-
inn Hai-ald Eriksson fékk silfr-
ið á 3.52.58, en 3. og 4. urðu
finnsku bræðurnir Vanninen og
voru aðeins 30 sek. á milli
þeirra. Svíinn Törnkvist varð 22
sek. á eftir Vanninen hinum
síðari. Sviar unnu líka 18 km.
íþróttamennirnir í St. Moritz höfðu mikið fyrir lífinu, en öðru máli gegnir um gestina þar. Þeir hafa það
hægt. Ilér sjást nokkrir vera að matast úti, í hléi milli íþróttanna.