Fálkinn


Fálkinn - 02.07.1948, Side 3

Fálkinn - 02.07.1948, Side 3
FÁLKINN i Fyrsta landskeppnin sem íslend- ingar lieyja i frjálsnm íþróttum, fór fram á iþróttavellinum í Reykjavík dagana 26. og 27. júní s.l., og lauk henni með sigri Norðmanna, 92:73 stigum. Þetta er því þriðja lands- keppnin, sem Norðmenn og tslend- ingar stofna til meS sér á stuttum tíma. NorSmenn unnu knattspyrnu- keppnina í fyrra, en íslendingar sund- ið í vor. ' Fyrri dagur: Kl. 4 e. h. í blíðskaparveðri tók mannfjöldinn að streyma út á völl. Norsku og íslensku iþróttamennirn- ir gengu inn á leikvanginn í einfaldri röð, hvor með sinn fánann i broddi fylkingar, Jens Guðbjörnsson mælti Setnimj mótsins. Landskeppni Norðmanna og slendinga nokkur ávarpsorð og þjóðsöngvarnir voru leiknir. Ung og fríð stúlka færði Norðmönnunum blómvönd. — Síðan hófst keppnin. 200 m. hlaup: Fyrsta keppnin var 200 m. hlaup. Sigur Hauks Clausen var talinn ör- uggur og Peter Bloch viss með annað sæti, en engu var spáð um Trausta Eyjólfsson og Henry Johansen. — Skotið ríður af. Eins og örskot þjóta allir 4 upp. Haukur er greinilega fyrst- ur og eykur bilið í sífellu. Bloch og Trausti heyja hatrammt einvígi. Jo- hansen er síðastur. Þéir hlaupa inn á 100 metra brautina, Trausti brot úr metra á undan Blocli, Bloch tek- ur á öllu sínu síðustu metratugina, en Trausti gefur sig ekki. Úrslit verða: 1. Haukur Clausen, í., .... 22,0 sek. 2. Trausti Eyjólfsson, í., .. 22,8 sek. 3. Peter Bloch N., ........ 22,9 sek. 4. Henry Joliansen, N., .... 23,4 sek. Stig: ísland 8, Noregur 3. Hástökk: Meðan liástökkið fór fram kom úr- hellisrigning, sem siðar stytti upp, og liáði hún keppninni nokkuð. Eigi að siður náðist glæsilegur árangur. Byrjunarhæð var 1,65 m. Kolbeinn Kristinsson felldi 1,80 og Skúli 1,93 m., og urðu þannig að láta sér nægja 3. og 4. sæti. Skúla vantaði þó aðeins herslumuninn til að ná 1,93 m. Norð- mennirnir báðir eru afbragðs há- stökkvarar. Leirud felldi enga hæð þvi að hann hætti er liann hafði stokk- ið 1,95 m., eða 1 cm. lægra en besti árangur hans var í fyrra, sein var þriðji besti árangur Evrópumanns. Ef rigningin liefði ekki hindrað, þá má telja líklegt, að Leirud hefði getað stokkið hærra, ef til Vill náð sömu hæð og besti árangurinn i Evrópu er í ár, 1,98 m., sem Alan Patterson hefir stokkið. Leirud stekk- ur bæði kröftuglega og fallega. Hann kemur með hægri hlið að og stekk- ur upp af vinstra fæti. Hinn Norð- maðurinn Björn Paulsson er einnig mjög efnilegur hástökkvari. Hann not- ar „dyk“-stíl eða hvolfir sér, eins og það er kallað á máli okkar liinna ó- faglærðu. Paulsson stökk 1,93 m., og er það persónulegt met hans. Úrslit urðu því: 1. Birgir Leirud, N., .... 1,95 m. 2. Björn Paulsson, N., .... 1,93 m. 3 Skúli Guðmundsson, í., .. 1,90 m. 4. Kolbeinn Kristinsson, í., . . 1,75 m. Stig: ísland 3, Noregur 8. Endaspretturinn i 100 m. hlaupi. Frá vinstri: Haukur Clausen (10,ti sek.), Peter Bloch (10,8), Henry Johansen (11,0), örn Clausen (10,8). Spjótkast: Rigning háði spjótkastinu nokkuð. Odd Mæhlum var greinilega besti maðurinn, enda á hann norska metið, 69,08 m., sett í fyrra. Fyrsta kast Jóels var líka gott, annars virðist full mikið fara í hæðina hjá honum af þeim feikna krafti og snerpu, sem liann býr yfir. Úrslit urðu: 1. Odd Mælhum, N., ....... 63,41 m. 2. Jóel Sigurðsson, í.....58,14 m. Frh. á bls. 14. íslenska sveitin, sem vann 4x100 metra boðhlaupið á 42,1 sek. Talið frá vinstri: Örn Clausen, Haukur Clausen, Finnbjörn Þorvaldsson og Ásmundur Bjarnason. Frá grindahlaupskeppninni. Frá vinstri: Haukur (15,3), Arne- bery (16,4), Gurpestad (15,6), Skúli (16,6). Sigurvegarar í lahgstökki. Frá vinstri: Kaare Ström, Finnbjörn og Björn Langbakke.

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.