Fálkinn - 17.09.1948, Page 3
FÁLKINN
3
Byggirtg vinnuskála að Reykjalundi
er næsta verkefni
S. í. B. S.
Stórhýsið að Reykjalundi verður væntanlega
tekið í notkun I. febrúar
næstkomandi.
Saumaslofan að Reykjalundi.
Fálkinn birtir að þessu sinni for-
síðumynd frá þingi S.Í.B.S., sem
haldið var dagana 20.—22. ág. s.l.
Það er 6. þing sambandsins, og 10
ára afmælis félagsskaparins var
minnst þar. Til sérstakrar umræðu
var tekið veglegasta viðfangsefni
S.Í.B.S., en það er bygging og
starfræksla Vinnuheimilisins að
Reykjalundi. — Fálkinn hefir snúið
sér til skrifstofu S.Í.B.S. í Reykja-
vik og fengið ýmsar upplýsingar
um byggingarnar að Reykjalundi og
störf þingsins, sem sat í ágúst.
Fara þær hér á eftir:
Aðalhúsið að Reykjalundi er nú
lang't k.omið, og vonir starida íil,
að hægt verði að iaka það i notkun
1. febrúar n.k., en þá eru 4 ár lið-
in, frá þvi að Vinnuheimilið iók
til starfa. Auk þess sem sambandið
mun kappkosta að fuilgera aðalliús-
ið, þá verður megináhersla lögð á
að koma upj) vinnuskálum, þvi að
skálar þeir, sem hingað til hefir
verið notast við, reyndust svo kald-
ir í vetur, að flytja varð úr sumum
þeirra í nýja húsið.
Til þess að gefa nokkra hug-
mynd um stærð og fyrirkomulag
aðalliússins, skulu greindar liér
ýmsar tölur, sem tala sinu máli
til skýringar. Grunnflötur hússins er
900 ferni.l framálman um 40 m.
löng og 8 m. breið, 3 hæðir og
kjallari. Auk þess gengur 13,5 m.
löng og 7 m. breið dagstofa út úr
þessari álmu, en aðeins ein liæð.
Bakálman er 34 m. löng og 10 m.
breið að meðtöldum gangi þeim,
sem á að tengja aðalliúsið við
vinnuskálana. Auk þess er við bak-
álmuna borðstofa 16 m. löng og 8
m. breið, en aðeins ein liæð, eins
og dagstofan við framálmuna. Bak-
álman er einnig 3 hæðir, en kjallari
ekki nema undir iiálfri álmunni.
— Alls er húsið 9.200 rúnnnetrar.
Alls eru í húsinu 11 einsmanns her-
bergi, 27 tveggja manna herbergi,
svo að rúm er fyrir 65 manns þar.
Auk þess eru í byggingunni t. d.
nýtísku eldhús, borðstofa, setustofa,
lesstofa, snyrtiklefar, sjúkradeild,
skrifstofa forstjóra, herbergi starfs-
fólks, fundarsalur o. fl. Sólbaðs-
skýli eru á þökum borðstofunnar og
dagstofunnar. Ilúsið er hitað með
geislaliitun. Alls mun kostnaðurinn
við aðalhúsið vera orðinn 2%—3
milljónir, og reikna má með að
500—800 þús. þurfi í viðbót, áður
en húsið er fullgert að innan sem
utan og búið öllum nauðsynlegum
tækjum og húsgögnum.
Að Reykjalundi eru nú 11 vist-
mannahús, sem búið er i og 3 starfs-
mannahús. Rúma þau 44 vistmenn.
Þegar aðalbyggingin tekur til starfa
hækkar vistmannatalan væntanlega
upp undir 100. Til þess að veita
fólki þessu sem besta aðbúð við
vinnu, mun verða lögð sérstök
áhersla á að reisa vinnuskálana,
eins fljótt og auðið er, einnig verð-
ur síðar hafist handa um ræktun
landsins kringum Reykjalund, til
þess að prýða staðinn. Gróðurhús
verða líka sennilega byggð.
Til þessara nauðsynlegu fram-
kvæmda þarf talsvert fé, og S.Í.B.S.
he'fir ákveðið að leita enn á ný til
ahnennings, af því að bón þeirra
hefir alltaf hlotið góðar viðtökur lijá
honum. T. d. má geta þess, að í
síðasta happdrætti S.Í.B.S. seldust
111.561 miði, þar af um helmingur
i Reykjavik. í litlu þorpi eins og
Vík í Mýrdal seldust 1457 miðar.
Mun slík sala happdrættismiða
sjaldgæf eða óþekkt liér á landi.
Fyrirkomulag fjársöfnunarinnar
verður það, að happdrætti verður
um bifreið, sem ekki gekk út i
happdrættinu síðast, og merki S.Í..B.S.,
sem seld verða á næsta berklavarna-
degi, eru númeruð og gilda sem
miðar i happdrætti þessu. Einnig
verður liöfð listasöfnun. Listar þess-
ir verða sendir á vinnustöðvar, og
gjafir skv. listunum verða skoðaðar
sem afmælisgjafir til sambandsins
á 10 ára afmæli þess. Enginn vafi er
á, að þessari söfnun verður vel tek-
ið, ekki siður en liinum fyrri.
í tilefni af 10 ára afmæli S.Í.B.S.
kemur út hátíðarrit á berklavarna-
daginn. Er það lielgað Reykjalundi
að verulegu leyti, enda hefir hann
verið snar þáttur i allri starfsemi
félagsskaparins.
Ekki má svo gleyma afmælisgjöf-
unum, sem S.l.B.S. hafa borist.
Húsavíkurhreppur og Mosfellshrepp-
ur hafa gefið sínar 2000 krónurnar
hvor, Siglufjörður hefir gefið 20.000
kónur til berklavarnarstarfsemi,
Trolle & Rothe 3000 kr., fulltrúar
Svía, Finna og Dana á stofnþingi
D.N.T.C., — „Det Nordiska Tuber-
kulosförbundens Centralorganisa-
tion“ — afhentu sinn borðfánann
frá hverju landi. Norðmenn, sem
áður hafa gefið fána, gáfu útskorinn
írébauk. Hann er g'erður á vinnu-
heimili berklasjúklinga í Noregi,
og reist hver vistmaður sinn skurð
í baukinn. Ásgrimur Jónsson og
Matthías Sigfússon, listmálarar hafa
gefið málverk.
Á hinu nýafstaðna þingi mætti
Eysteinn Jónsson, menntamálaráð-
lierra, og fulltrúar Norðurlandanna
fjögurra, sem sátu stofnþing D.N.T.C.
Forscti þingsins var kjörinn Ás-
herg’ Jóliannesson Við stjórnarkjör
hlaut Maríus Hegason, forseti S.ÍB.
S., endurkosningu. Meðstjórnendur
eru Ásherg Jóliannesson, Björn Guð-
mundsson, Daníel Sumarliðason,
Oddur Ólafsson, Þórður Bendedikts-
son og Þorleifur Eggertsson. Aðal-
maður í stjórn vinnuheimilisins að
Reykjalundi var kjörinn Árni Ein-
arsson, og vinnulieimilisins að Krist-
nesi Ásgrimur Stefánsson.
SYNDAFLÓÐ 1952.
Amcrískur „spámaður", William
Greenwood, sem lika er kallaður
Nói, liefir nýlega lokið við að smiða
stóra örk, sem stendur uppi á há-
um liól skammt frá Washington.
Hún á að bjarga honum og skyld-
mennuin lians þegar næsta synda-
flóð kemur, en það verður árið
1952, segir meistari Nói. Nýja örkin
hans Nóa er 60 feta löng og að
ýmsu leyti svipuð víkingaskipi.
„Timcs“ segir að liann liafi ýms
vopn i örkinni og svo liefir hann
kött, — eina dýrið úr þessum heimi,
sem Greenwood segir að fái að lifa
syndaflóðið af.
Kona þessi er ú áttrœðisaldri og elsti vistmaðurinn að Regkjalundi.