Fálkinn - 02.12.1949, Blaðsíða 3
FÁLKINN
3
Leikfélag templara:
JSpansItflugftn'
Frá vinstri: Váldimar Jónsson, Gissur Pálsson, Einar Hannesson og
Þórhallur Björnsson.
Leikfélag templara liefir nú byrj-
að sýningar á hinum bráí5smellna
gamanleik, „Spanskflugunni", eftir
Arnold og Bach, i þýðingu próf.
Valdimar Jónsson og
Guöjón Einarsson.
Guðbrandar Jónssonar. Frumsýning
var fimmtudaginn 24. nóvember. —
„Spanskflugan“ er einn af mörgum
gamanleikjum þeirra Arnolds og
Bachs, sem sýndir hafa verið hér á
landi, og hafa þeir allir náð miklum
vinsældum. Það eru liðin allmörg
ár, síðan Spanskflugan“ var sýnd
hér í Reykjavík siðast, en styttra
mun siðan leikfélög úti á landi hafa
íekið hana til meðferðar.
Hlutverkin eru yfirleitt ekki skip-
uð atvinnuleikurum, en þó er mjög
sæmilega með þau farið yfirleitt. Þau
Emilía Jónasdóttir og Guðjón Ein-
arsson eru hin einu, sem kunn eru
leikhúsgestum sem leikarar. Skila
þau hlutverkum sínum mjög vel.
Önnur aðalhlutverkin leika Gissur
Pálsson (Klinke sinnepsverksmiðju-
eiganda), Karl Sigurðsson, Gerður
Hjörleifsdóttir, Valdimar Lárusson,
Þórhallur Björnsson, Jón Hannes-
son og Sigriður Jónsdóttir.
Leikstjóri er Einar Pálsson og ferst
honum það vel úr hendi.
(V ^ n*
Storfseml EfnahagssdmvimiDstofnuiMr
Vestur-Evrópu
Nú eru senn liðin tvö ár frá þvi
að „Viðreisnaráform Evrópurikj-
anna“ hófust.
Til liinna víðtæku samtaka V.-
Evrópuríkjanna var stofnað í þvi
skyni að koma efnahagsmálum
þeirra i það horf, að þau þörfnuð-
ust ekki fjárhagslegrar aðstoðar ut-
an frá eftir árið 1952. Viðreisnar-
áætlunin, sem í daglegu tali er
nefnd „Marshall-áætlunin", er á-
kveðin af Efnahagssamvinnustofnun
(OEEC), sem hefir aðsetur si'tt i
París, en i þessari stofnun er ís-
land þátttakandi, eins og kunngt er.
Fjárframlög til framkvæmda áætl-
unarinnar eru veitt af Bandaríkjum
Norður-Ameríku fyrir milligöngu
Efnahagssamvinnustofnunarinnar
(ECA), sem hefir aðsetur sitt í
Washington.
Fálkinn mun framvegis birta
myndir og fréttaágrip af starfssemi
og framkvæmdum Efnahagssamvinnu
stofnunarinnar, en þó einkum af þvi,
er viðkemur eflingu atvinnuveganna
á íslandi og i nágrannalöndum
okkar.
Efnahagssamvinnustofnun Evrópurlkjanna sameinar Evrópu. París —
19 fulltrúar efnahagssamvinnuríkjanna á ráðstefnu viðvíkjandi ráð-
stöfun á fjárframlögum Bandaríkja N.-Ameriku. Nefnd sá er að ráð-
stefnu þessari slóð, er viðskipta- og greiðslunefnd efnahagssamvinnuríkj
anna, en hlutverk kennar er að auðvelda vöruskipti milli þátttöku-
rikjanna og auka viðskipti þeirra að öðru legti. Fulltrúi íslands
Davíð Ólafsson, fiskimálastjóri sést á mgndinni neðst til hægri, næst
fnlltrúa Noregs.
Fra vinstri: Sveinn Sveinsson (Valdimar Lárusson), Zophanias alþing-
ismaður (Þórhallur Björnsson), Lúðvik Klinke sinnepsverksmiðjueig-
andi (Gissur Pátsson), Jón Hannesson (Einar Hannesson) og Emma
Klinke (Emilía Jónasdóttir).
ÓÁNÆGÐIR ÁHORFENDUR.
Stórbruni hlaust af þvi að aflýsa
varð glímusamkeppni i Parel House
i Bombey, milli tveggja glimukappa,
og var annar kvenmaður — en kon-
ur glíma oft í Indlandi eins og
i Japan. Hinir 3000 áhorfendur
sem mættir voru til þess að sjá
glimuna, urðu svo liamslausir er
þeir heyrðu að henni liefði verið
frestað, að þeir fóru að fljúgast á,
og einhver kveikti i húsinu til að
ná sér niðri fyrir gabbið.
Landbúnaðarvélar koma til landsins. Þessi mgnd er tekin niður við
Regkjavikurhöfn, þar sem verið er að vinna að losun úr m/s Trölla-
foss. Á hafnarbakkanum getur að líta dráttarvélar til landbúnaðarstarfa
sem komið hafa á vegum „ECA". Vélar þessar eru stórvirk tæki af
mjjustu gerð og munu þær eiga mikinn þátt i þvi að auka afköst og
bæta afkomu íslensks landbánaðar.