Fálkinn - 10.03.1950, Qupperneq 1
STRANDIÐVIÐ RfiTKJANES
Iíelsta umræðuefnið hér á landi síðustu viku hefir verið hin hörmulegu afdrif olíuflutningaskipsins Clam, sem strandaði
við Reykjanes þriðjudagsmorguninn 28. febrúar s.l. með þeim afleiðingum að 27 menn af 50 manna áhöfn létu lífið. — Er
þetta eitt vofveiflegasta sjóstys, sem orðið hefir við strendur Islands um langa hríð. Björgunarsveit Slysavarnafélagsins
Þorbjörn í Grindavík tókst að bjarga 19 mönnum af áhöfriinni, en h skolaði á land lifandi og var bjargað úr flæðarmálinu.
■— Mynd þessi er af Clam í brimrótinu. Skipið er aðeins 30—'rO metra frá landi, en hafði þá þokast nær og nær klettaströnd-
inni frá því að það tók fyrst niðri um 60—70 metra frá landi. Til hægri á myndinni sést kletturinn, þar sem björgunars'veit-
in hafðist við meðan á björgun stóð. Kletturinn var háll af bleytu, því að brimlöðrið svall á klettinum í sífellu, meðan
björgunaraðgerðir stóðu yfir. Á myndinni virðist skipskrokkurinn alheill, en nú mun hann vera farinn að gefa sig. — (Sjá
grein um strandið á bls. 2 og 15).