Fálkinn - 13.06.1952, Blaðsíða 2
2
F Á L K I N N
NILFISK
fyrir heimili yðar.
Hverri NILFISIÍ fylgja 10 gerð-<
ir bursta og annarra áhalda, auk J
þess sem fáanlegur er f jöldi j
sér-áhalda.
NILFISK
ryksugan er best.
Kaupið NILFISK
Komið og skoðið NILFISK.
Biðjið um myndalista.
0. KORNERUP- HANSEN
Suðurgötu 10. Sími 2606.
I
Gætið vandlega að merkinu á vinslinu, sem þér kaupið.
Sé saumað með
G íi t er m ann’s
silkitvinna
endast saumarnir jafn lengi og fötin. Upplitast ekki og
rífur ekki út úr nálsporunum.
É
Frú Hildur Margrét Péturs-
dóttir á Sauðárkróki varð áttræð
27. f. m.
Eftir áskorun.
Söngvarinn Benjamínó Gigli var ný-
lega í hljómleikaferð í Brasilíu. Við-
tökurnar voru svo ágætar að söngv-
arinn komst við og bauðst til þess að
syngja ókeypis fyrir fangana i fang-
elsinu i Sao Paulo, og var því auðvitað
tekið með þökkum. Eftir sérstakri ó-
skorun söng Gigli brasilianska þjóð-
vísu, sem lieitir „Opnið dyrnar“. —
En morguninn eftir hljómleikana voru
sjö af hættulegustu föngunum í fang-
elsinu horfnir, þar á meðal alræmd-
asti misyndismaður Brasilíu, Sete De-
tos. Það var hann, sem hafði gengið
best fram i þvi að biðja Gigli um að
syngja „Opnið dyrnar!"
Yfirnáttúruleg tígrisdýr.
Fóikið í þorpinu Kalatuse í Suður-
Burma staðhæfir að fjögur tígrisdýr,
sem hafa verið þar á vakki séu yfir-
náttúruleg og að ekki sé hægt að drepa
þau. Iiallast fólkið helst að þvi að
þctta séu endurholdgaðir meinvættir,
gerðir út af guðunum til að vinna fólk-
inu tjón. Það segir að margsinnis hafi
verið reynt að skjóta dýrin, cn kúlurn-
ar úr byssunum I)reyta um stefnu og
fara fram hjá þeim.
8000 þýsk börn
höfðu Norðmenn upp úr hernám-
inu 1940—45. Flestir barnsfeðurnir
borga ekki meðlag með krónum, og
af þýska ríkinu er ekkert að hafa,
svo að uppeldið lendir mestpart á
mæðrunum og norsku sveitafélögun-
um.
GIPSONIT ÞILPLÖTUR
er nýtt finnskt byggingarefni framleitt eftir amerískri fynrmynd.
;
msmmm
GIPSONIT er eldtraust, hljóðeinangrandi, hitaein-
angrandi og breytir sér ekki við hita-
breytingar eða raka.
GIPSONIT er sveigjanlegt og auðvelt er að saga það
og negla í það.
GIPSONIT er klætt pappa beggja megin og er hann
ætlaður undir málningu öðru megin eða
undir veggfóður.
GIPSONIT er tilvalið til innréttinga í nýjum íbúðar-
húsum, verksmiðjum, skrifstofum, verzl-
unum, skólum, veitingastöðum og hvort
sem er í steinhúsum eða timburhúsum.
Einnig er það tilvalið til endurnýjunar
og viðgerða á gömlum húsum.
Það er mikill tíma- og peningasparnaður í því að
nota þessar plötur, og er reynsla þegar fengin fyrir
því, þar sem þær hafa verið notaðar til allrar vegg-
klæðningar í nýju steinhúsi hér í Reykjavík.
Allar frekari upplýsingar gefur
PÁLL l»OIM*I IKSHO\
Laugavegi 22 Sími 6ýl2