Fálkinn


Fálkinn - 27.05.1955, Síða 4

Fálkinn - 27.05.1955, Síða 4
4 FÁLKINN Eldingar, loftsteinar og jarðskjálftar I’rumuveður yfir skýjakljúfunum í New York. Þeir mundu fara illa, ef eld- ingavararnir væru ekki í lagi. ÞRUMUR OG ELDINGAR. ÞangaS til um miðja 18. öld vissu menn ekki af hverju eldingar stöfuðu. Sumir héldu að þœr stöfuðu af því að ský rækjust á. Aðrir sögðu að þær væru sprengingar i „vatnsgufum með köfnunarefni“. En Benjamín Franklín og fleiri sönnuðu að ])ær væru raf- magn, sem leystist úr læðingi. Nú segja menn: Eldingin er raf- magnsneisti milli tveggja póla. Pól- arnir eru ský og jörðin, eða þú tvö ský. En veðurfræðingar og aðrir vís- indamenn eru ekki cnnþá sammála um hvernig rafmagnið myndist. Margir halda því fram að regndroparnir, sem myndast á undan ])rmnuveðri, hlaðist rafmagni, sem myndi eldingarnar. Rannsóknir nútimans hafa sannað, að eldingin er miklu margþættara fyrirbrigði en maður skyldi halda. Mannsaugað sér ekki nema lítið af eldingunni, því að hún hreyfist of fljótt til að það geti skynjað hana. En með sérstökum Ijósmyndavélum er hægt að ná hreyfingum eldingar- innar og athuga myndina á eftir í ró og næði. Og eðlisfræðingarnir geta framleitt eldingar á rannsóknastof- unni og rannsakað þær þar. Hver glampi eldingar fyrir sig er líka margbrotnari en maður Iieldur. Aður en aðalglampinn kemur, leitar „forustuelding" að stytstu leið til jarðar. Hún fer tiltölulega hægt (um 8000 km. á sekúndu). Svo koma aðrir eklingarblossar á eftir. Þeir fara braut fyrstu eldingarinnar; en kvisl- ast um leið. Þegar forustueldingin hitt- ir jörðina hrekkur aðaleldingin upp á við aftur, með 45.000 km. hraða á sc-kúndu. En af því að kvíslarnar eða greinarnar benda niður, virðist manni oft á myndum að eldingin sé á niður- leið en ekki uppleið. Hreyfing for- ustu- og aðaleldingarinnar varir ekki nema fáeina þúsundustu parta úr sekúndu. Þetta endurtekur sig i hverjum ein- asta glampa, og þeir geta verið þéttir. í einu þrumuveðri geta komið mörg þúsund eldingar. í þrumuveðri sem gekk yfir England í júli 1923 voru taldir 6294 glampar yfir London, og 47 á sörnu mínútunni. En þeir geta orðið þéttari. í Pretoria voru taldir 360 glampar á þrem mínútum. Það er sjaldgæft að eldingu slái tvisvar niður á sama stað, en það hefir komið fyrir. Á þrem árum hefir elding lent 63 sinnum á Empire State Buikling í New York og í einu þrumu- veðrinu 15 sinnum á einu kortéri. Lengd eldinganna er mismunandi. Þegar lágskýjað er verða þær sjaldan lengri en 1500 metrar, en menn vita um 6 km. langar eldingar. í fjalllendi eru þær oftast ckki nema kringum 100 metrar. En menn vita til eldinga, sem voru 35 km. Venjulega eru eldingarnar hvítar, cn það er litur súrefnis og köfnunar- efnisloga. Rauðar og gular eldingar eru algengar í Suður-Afríku, því að þar er mikið ryk í loftinu. Og ljós- rauðar geta eldingarnar orðið, ef mik- il vatnsgufa er í loftinu. Spennan í eldingu getur orðið allt að 10 milljón volt og orkan 165.000 watt-sekúndur, eða sem svarar straum handa 100 kerta peru i hálftíma. En þessi orka losnar í átta milljónustu pörtum úr sekúndu. Orkan á þessu stutta augnabliki er álíka mikil og í öllum rafstöðvum Bandaríkjanna. Eldingum slær niður einhvers stað- ar á hnettinum á að gislca 44.000 sinn- um á sólarhring og orkan í þessum eldingum er að minnsta kosti einn milljard hestöfl. — Er það furða þó að þessi óhemju orka geti valdið tjóni? Einu sinni sló lítilli eldingu niður í kirkju og fylgdi hún veggjunum niður í gólf. Hún sprengdi upp dyrnar og samkomusal við kirkjuna og mölvaði þar borð, stóla og píanó i smátt. Einn stóllinn ])eyttist upp i loftið og inn í viðinn og hékk þar. En kirkjubygginguna sjálfa sakaði ekki. í annað skipti lenti elding í tré- smíðavinnustofu. Trésmiðirnir höfðu lagt öll tæki sin frá sér á bekk, sem var klæddur með zinki. Eldingin hitti bekkinn, og tréliandföngin á verkfær- unum brunnu, en bekkurinn var ó- skaddaður. Eldingin boraði gat á vegginn og fór þar út. Eldingar geta mölvað harða steina i mél. Ef mölva þarf gat á þykka stein- veggi eða kljúfa hamrabrúnir. Reyk- háfar tætast í smátt, myndir detta af veggjum því að naglarnir, sem þær hanga á, bráðna, og stundum bráðna rúður i gluggum. Ef eldingu slær nið- ur í kartöflugarð visnar grasið, en kartöflurnar eru soðnar í jörðinni. Þrir drengir voru að veiða í þrumu- vcðri. Tveir voru með stengur úr málmi, þegar eldingunni sló niður, og dóu báðir. Sá þriðji var með bambus- stöng og komst lifs af. Menn hafa beð- ið bana i golfi í þrumuveðri, vegna málmkylfanna, sem þeir höfðu í hönd- u n um. Skepnur verða oft illa úti í þrumu- veðri, vegna þess að þær þyrpast sam- an í hnapp. Eitt sinn drap elding 75 sauði og annað skipti 126 úr hóp, sem 152 kindur voru í. í Utali drap elding 504 kindur árið 1918. — „5 lcýr dráp- ust af sömu eldingunni. Þær höfðu hópað sig undir eik. Eldingar drepa -fugla á flugi og fisk í sjónum, enda þarf liann ekki nema litinn straum til að drepast. LOFTSTEINAR. „Ég á hægara með að trúa að tveir lærðir prófessorar ljúgi en að stein- um rigni af himnum," sagði Jefferson Bandarikjaforseti er hónum var sagt að loftsteinar eða „meteorítar“ hefðu faliið í Connecticut árið I807.-Svona var skoðun manna þá. En þó er talað um „svart himinjárn úr skýjunum" í riti, sem kom út kringum 1600, og 700 f. Kr. er sagt frá því i kinversku riti, að „stjarna sáldraðist niður eins og rigning". Fyrrum var farið með loftsteina eins og helga gripi, þeir hafa fundist í musterum í Mexico og i Indíánagröf- um. Árið 1768 fannst loftsteinn í Lucé í Frakkiandi. Franska vísindafélagið gerði út leiðangur til að rannsaka hann. Var tekin skýrsla af sjónarvott- um og steininn fengu vísindamenn- irnir að sjá, en samt neituðu þeir að steinninn hefði komið úr loftinu. Árið 1790 féll aftur loftsteinn í Frakklandi, en þrátt fyrir skriflegt vottorð 300 áreiðanlegra manna neit- uðu vísindamennirnir því að steinninn liefði komið úr loftinu. Stjörnufræðingar rannsökuðu málið af kappi, og 27. nóv. 1872 þokaði loft- steinafræðinni talsvert áfram. Þá nótt átti Bielalialastjarnan að sjást. Þýski stjörnufræðingurinn Biela sá hana fyrstur. árið 1826. En hún kom ekki. í staðinn kom fjöldi af loftsteinum. Einn athugandinn gat talið 100 glampa á einni mínútu. Nú skildu vísindamennirnir hvað gerst hafði: lialastjarnan hafði sprung- ið í milljónir mola. Flestir stjörnufræðingar eru þeirrar skoðunar að loftsteinarnir komi aðal- lega frá halastjörnunum. En þó þykir víst, að loftsteinar berist til jarðar- innar frá öðrum sólkerfum en þvi, sem jörðin telst til. Loftsteinn er með öðrum orðum hnöttur, sem kemur utan úr Ijósvakanum inn i andrúms- loft jarðarinnar, verður glóandi af núningsmótstöðunni og kemst á jörð- ina, ef hann er svo stór að hann brenni ekki upp á leiðinni. Stjörnufræðingarnir áætia, að um 24 milljón loftsteinar komi inn í and- rúmsloft jarðarinnar á hverjum sólar- Iiring. Flestir þeirra eru örsmáir, eins og rísgrjón, eða minni. Þeir sjást ekki fyrr en þeir eiga um 10 km. ófarna til jarðarinnar, og því aðeins að þeir séu svo stórir að Ijósrák myndist eftir þá. Meðalhraði þeirra er 70 kilómetrar á sekúndu. Fljótustu byssu- kúlur fara IV2 km. á sekúndu. Besta myndin af loftsteini, sem tekin hefir verið. Vígahnötturinn var 30 km. yfir jörðu.

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.