Fálkinn


Fálkinn - 21.06.1957, Blaðsíða 7

Fálkinn - 21.06.1957, Blaðsíða 7
FÁLKINN 7 Tino og Mike tókust í hendur. — Tino gerði mér þetta svo auðvelt, sagði Mike við Ringling Nort'h. hrópaði hann til Tinos, sem dinglaði í höndunum á ihonum. — Tino, þú ert sá sjöundi! Nú var þögnin niðri rofin af ærandi lófaklappi og hrópum. Ringling North spratt upp úr sæti sínu og ruddi sér brauí gegnum mannfjöldann, sem var óður af fögnuði. Þetta var mikill atburður. LOLA YELUR. Það lá við að þremenningarnir træðust undir á leiðinni út i fata- kelfana. Alls staðar voru blaðamenn og ljósmyndarar. Og við dyrnar lijá Tino stóð Ringling North. — í kvöld gerðuð þér virkilega sýn- ingu fyrir mig, sagði hann brosandi. — Að hugsa sér þetta, að fá að sjá þrefalt lieljarstökk aftur. — Hvernig er þér innanbrjósts eftir að hafa gert þetta, Tino. Og hvað segir þú, Mike? Tino og Mike tókust fast í hendur. — Hann Tino gerði þetta svo auð- velt fyrir mig, sagði Mike. — Það er enginn vandi að taka á móti manni, sem svífur svona. Og svo haltraði hann inn i klefann sinn. En Tino var orðinn hávær, svo að Mike heyrði til hans inn um hálfopnar dyrnar. — í hverju er gaidurinn fólginn? spurði einn blaðamaðurinn. — Hann er fólginn í því að vita, hvneær maður á að hætta þriðja hringsnúningnum. Það verður maður að reikna upp á hár. Það verður að vera eins og iítil kiukka sé innan í manni. Og hún verður að ganga ná- kvæmlega eins og griparans. — Hvenær funduð þér að þér gát- uð þetta? —■ Það var Mike, sem fann það fyrst. Ég hélt ekki að ég gæti það. — Voruð þér ekki hræddur? — Ég liefði hætt við það, ef ekki hefði verið Mike. Fyrst varð ég hræddur. En hann píndi mig til að reyna aftur. Og svo skildi ég, að ef mér tækist þetta, stæði öll veröldin mér opin. Svona hugsar maður um þetta. Mike gægðist út um dyrnar og benti Otto, sem stóð þarna hálfvegis við- utan. Hann dró Olto inn í klefann og tók fast i handlegginn á honum. — Þú mátt ekki verða of vinnuharð- ur við hann þegar þið komið til Ne'w York. Láttu hann þreifa sig áfram. Dragðu ekki af þér en sveiflaðu þér langt á móti honum. — Það ert þú sem átt númerið, Mike, sagði Otto alvarlegur. — Ribble og Orzini, mundu það! Mike hristi höfuðið — Það er of mikið milli mín og Tino, Otto. Nú hefir hann fengið samning við Ringling North, og þú mátt ekki láta hann missa af honurn. Mike var kominn spölkorn frá sirkusbyggingunni. Hann ætlaði aldrei að fara þangað aftur. Engin ástæða tii þess, eftir það sem gerst hafði i kvöld. Tino mundi áreiðanlega bjarga sér. Mike gekk niður dimma götuna og studdist þungt við stafinn. Hann var svo einmana — eins og i eyðimörku. Það leið nokkur stund þangað til hann tók eftir að hrynjandi bergmáls- ins af fótataki hans var svo einkenni- leg. Hann nam staðar og hlustaði -— þetta var ekki bergmál. Þetta var frá kvenskóm með háum hælum . .. Mike stóð eins og stytta og beið. Og þarna kom Lola. Hún greip um höndina á lionum ... Dvergurinn Max stóð lengi og horfði á eftir þeim. Og svo hurfu þau út í myrkrið. E n d i r . MINNING PIRANDELLOS. — í ár eru 90 ár síðan ítalska leikritaskáld- ið Luigi Pirande'llo fæddist. í ættlandi sínu er hann orðinn sígilt skáld og rit hans eru leikin um allt landið. I tilefni af afmælinu verða viðhafnar- sýningar á leikjum hans í flestum borgum. Vinsælasta leikrit hans er „Sex verur leita höfundar", og var það leikið hér í Reýkjavík á árunum. Úr aififflluit) Séra Oddur í Tröllatungu og ætt hans Fyrrum voru strangar refsingar lagðar við sifjaspellum og lauslæti, og jafnvel fjórmenningar máttu ekki giftast. Þá lá t. d. dauðarefsing við að taka framhjá með mágkonu sinni og mörg konan lenti í Drekkingarhyl fyrir barneignir. Það var bæði kirkju- og konungs- valdið, sem átti hlut að hinum fárán- legu ströngu fyrirmælum um skyld- leika hjóna, og var tilgangurinn auð- sær. Brot gegn þessum settu reglum urðu biskupum og æðsta valdsmanni konungs hin mesta féþúfa, þvi að eignir þess, sem sekur varð féllu til biskups og konungs. Alkunnust dæmi af því tagi er meðferð Gottskálks biskups á Jóni Sigmundssyni. En þrátt fyrir þetta var lauslæti eigi minna en nú og prestarnir voru ekki barnanna bestir. Frásögn Fitja-ann- áls 1610 af síra Oddi Þorsteinssyni í Tröllatungu og sonum lians bregð- ur upp skýrri mynd af ástandinu: „Þorsteinn, sonur Guðmundar And- réssonar og Jarþrúðar Þorleifsdóttur, þriðji og siðasti maður Þórunnar á Grund, dóttur Jóns biskups Arasonar, átti 5 eða 6 launbörn. Eitt þeirra var séra Oddur Þorsteinsson, sem átti Geirdísi, dóttur séra Torfa Jónssonar í Saurbæ norður, systur Málfriðar Torfadóttur, konu séra Björns Gísla- sonar. Hann (þ. e. séra Oddur) féll með systur liennar, Arnfriði, sem þá var barn að aldri. Var sagt að hann hefði komist yfir hana með konstum og nauðgað henni. Hér fyrir var séra Oddur dæmdur af Oddi lögmanni Gottskálkssyni Anno 1554 á Spjald- haga í Eyjafirði, nálægt Laurentii- messu, útlægur af Norðlendingafjórð- ungi alla sína ævi og af honum hægri höndin, nema valdsmaður vildi meiri miskunn á gera, og skera af honum bæði eyrun, ef hann gyldi ekki ráð- spjöllin fyrir þessa stúlku. Hún gipt- ist siðar Halli Magnússyni. En höf- uðsmaðurinn, Páll Stígsson, náðaði séra Odd, svo hann hélt lífinu, og fékk seinna aptur prestsskapinn. Hélt hann þá Tungu í Steingrimsfirði og dó þar. Segja sumir að hann hafi eignast aftur Sigþrúði Magnúsdóttur, og við henni átt séra Þorstein, Niku- lás og Jón, Sigríði og Guðrúnu. Séra Þorsteinn hélt Tungustað eptir föður sinn, féll og svo með ungri stúlku, ómaga, i liórdóm, og missti prestinn; veiktist hún af þeirra viðskiptum. Hann sigldi og var náðaður af kongi, hélt þar eptir Skarðsþing vestur. Hann féll þrisvar i hórdóm. — Niku- lás Oddsson, bróðir hans, var lög- réttumaður, giptist Guðrúnu laun- dóttur Bjarna Oddssonar á Skarði. Þeirra dætur: Guðrún móðir Hákonar Árnasonar i Görðum og Halldóra kona séra Vigfúsar Helgasonar við Hellna. Nikulás átti og 4 launbörn. Eitt þeirra var Barbara, móðir Magn- úsar Hrómundssonar sýslumanns í Hnappadalssýslu. Þriðji bróðirinn var Jón Oddsson, sem féll i óbótamál með Sigríði, systur konu sinnar, Stein- unnar, dætrum Halldórs Jónssonar á Fróðá og Ragnliildar Egilsdóttur. Þriðja systir þeirra hét og svo Stein- unn og var fyrri kona séra Þorsteins Oddssonar, bróður Jóns. Sagt er að þessir 3 bræður hafi lekið sig til með fieirum öðrum, að brjóta upp Mókollshaug vestra. Og þegar þeir höfðu fundið kistuna í hauginum, með stórum hring í lokinu, og undið hana upp með böndum, svo hún var á loft komin, hafi sagt einn af þeim: „Nú tekst ef guð vill,“ þar til hafi annar svarað: „Nú tekst hvort guð vill eður ei.“ En strax slapp hringurinn af kistulokinu. Litu þeir þá heim til bæjarins, og sýndist þeim hann allur i einum loga. Hlupu þeir þá allir heim nieð skyndi og vildu hjálpa bænum, og var ekki, sem þeim sýndist. Samstundis vitjuðu þeir aptur haugsins og var hann aptur sem áður. Eptir það vildu þeim bræðrum til svoddan slys, að þeir féllu í kvennamál. Mælt er og, að öðrum fylgjurum þeirra hafi sitt vilj- að til hverjum fyrir sig.“ Það virðist auðsætt að þeir feðgar hafi verið innundir lijá yfirvöldun- um, að þeir skyldu lialda prestskáp. jafn miklar og sakir þeirra voru. Aðr- ir mundu hafa misst bæði lifið og prestinn fyrir minni sakir. Peter Townsend fékk jólagjöf frá Margaret sinni prinsessu, dagbók með fangamarkinu sínu í gulli, og synir haris fengu líka gjafir frá prinsess- unni. Margaret og Peter skrxfast á að jafnaði, en hann er nú i ferðalagi kringum jörðina. Svissneskur vísindamaður kemst að þeirri niðurstöðu, að samband sé milli nærsýni og gáfna. Gáfað fólk er miklu nærsýnna en annað fólk segir hann, og nærsýni kemur ekki af þvi að fólk rýni of mikið i bækur, heldur er hún arfgeng og stafar af þvi að heilinn er betur þroskaður en almennt gerist.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.