Fálkinn - 13.12.1957, Síða 16
10 ^*^*^*^*^*^*^*^*^*^*^*^*}*^*^* JÓLABLAÐ FÁLKANS 1957
SKÚLI SKÚLASON!
KONUNGSHEIMSÓKN
fyrír 50 áram
Á síðastliðnu sumri liefir ísland
fengið heimsókn tveggja erlendra
þjóðhöfðingja, Gustafs VI. Adolfs
Svíakonungs og Urho Kaleva Kekk-
onens Finnlandsforseta. Og fyrir
hálfu öðru ári heimsótti Danakon-
ungur í fyrsta sinn íslenskt lýðveldi.
Slikar heimsóknir má telja til góðra
viðburða, og vafalaust geta þær átt
drjúgan þátt í þvi að efla kynni, skipti
og samhug þeirra þjóða sem hlut eiga
að máli. Þessar hcimsóknir stóðu þrjá
daga hver, en eftir opinbera heim-
sókn Finnlandsforseta var honum
boðið norður í land. Hann hafði aldrei
komið ’hingað áður, en það höfðu bæði
Dana- og Svíakonungar gert, annar
nokkrum sinnum, en hinn árið 1920.
Það var þvi vel til fallið að lofa
Ivekkonen að koma norður í land, svo
að hann fengi að sjá ofurlítið meira
af landinu en aðalgöturnar í Reykja-
vik og Þingvöll, Sog, Ölfusið og Hell-
isheiði. Menningarstarf þjóðarinnar
er reynt að sýna eftir föngum í opin-
berum heimsóknum sem þessum: Há-
skólann, Þjóðminjasafnið, Þjóðleikhús
og þcss háttar, en það sem útlending-
um þykir þó mest til koma, hvort þeir
eru háir eða lágir, er þó og verður:
landið sjálft.
1 sambandi við þessar lieimsóknir
verður manni ósjálfrátt að minnast
konungsheimsóknar, er gerð var hing-
að fyrir fimmtíu árum, sumarið 1907,
og enn er í minnum höfð af þeim,
sem þá voru vaxnir úr grasi. Og það
er fróðlegt að rifja upp aðstæður þær
er þá voru til þess- að taka á móti
fjölmenni, og bera saman við það
sem nú er. í einu tilliti hefir ástandið
ekkert batnað: gistihúsaleysið í
Reykjavík er meira nú en þá. En í
öðru tilliti hefir orðið gerbreyting.
Árið 1907 var aðeins ein bifreið til
í Reykjavík, og hún hafði getið sér
litinn orðstír og var hætt að hreyfa
sig út úr Thomsenspakkhúsi þegar
þetta gerðist. Vegirnir voru að miklu
leyli ekki færir nema kerrum. Og
hvað veisluhöld snerti, þótti ekki
annað fært en fá veitingahússtjóra
ásamt yfirþjóni og kokki frá Dan-
mörku, til að hafa yfirumsjón mcð
innlenda mats-eldar- og jijónustu-
liðinu.
Það má segja að það hafi nálgast
kraftaverk að fara i sjö daga ferðalag
austur í sveitir með konung og um
200 gesti, og láta allt ganga jafnt
slyðrulaust og raun varð á. Til þess
þurfti mikla fyrirhyggju og góða
sljórn. En allt fór þetta mjög sæmi-
lega, engin nefnandi óhöpp urðu og
Itlagskráin — eða fararskráin var
lialdin út i æsar. En mestu máli skipti,
að veðrið var gott, að undanteknum
þjóðhátíðardeginum (2. ágúst) á Þing-
völlum. Þá rigndi.
AÐDRAGANDI OG UNDIR-
BÚNINGUR.
Tilefnið til íslandsfarar Friðriks
VIII. var það, að á fyrsta ríkisstjórn-
arári sinu, 1906, hafði hann boðið ráð-
herra íslands og öllum alþingismönn-
um í heimsókn til Danmerkur. Þá
var aðeins hálft þriðja ár liðið síðan
stjórnin fluttist inn i landið, en sú
„stjórnarbót“ hafði síður en svo
þaggað niður sjálfstæðiskröfur ís-
lendinga. Landvarnarmenn höfðu haf-
ið baráttu sína undir forustu Jóns
Jenssonar, Einars Benediktssonar,
Bjarna frá Vogi og Benedikts Sveins-
sonar, einkum til að andmæla þvi að
ísl. lög og stjórnarráðstafanir skyldu
borin upp fyrir konungi í danska rík-
isráðinu. Og krafan um íslenskan
fána var komin fram — bláhvíta fán-
ann. Þessi mál urðu ekki þögguð nið-
ur. Frá sjónarmiði Hannesar Hafstein
var sú leið beinust í sjálfstæðisbar-
áttina, að vinna að auknum kynnum
ráðandi manna í Danmörku af íslandi
og íslenskum málum, og þess vegna
varð það að ráði i þingmannaförinni
1906, að konungur heimsækti ísland
á næsta ári og ennfremur 40 menn úr
ríkisþinginu danska. — Undir eins og
vitað var um þessa ráðstöfun hertu
andstæðingar Hannesar Hafstein sókn-
ina. í blaðamannaávarpinu frá nóv-
ember 1906 kemur fram krafan um að
ísland verði frjálst sambandsland
Danmerkur, og vorið 1907 ítrekar
fjölmennur Þingvallafundur þessa
kröfu. Björn Jónsson var aðalforingi
stjórnarandstæðinga og það kom á
dsginn að blað hans, ísafokl, var á-
hrifamesta blað landsins. Stjórnar-
andstæðingar vildu láta konung og
sambandsþjóð sína sjá, að þeir gerðu
sig ekki ánægða með stjórnarskrár-
breytinguna frá 1903.
Það var afráðið fyrirfram, að kon-
ungur skyldi láta það verða fyrsta
verk sitt er hann kæmi til íslands,
að gefa út auglýsingu um skipun
millilandanefndar til að fjalla um
„stöðu Islands i veldi Danakonungs“.
Og dönsku þingmennirnir áttu að sjá
með eigin augum, að islenskir lands-
hættir eru svo ólíkir dönskum, að
engin von væri til að aðrir en íslend-
ingar gætu stjórnað íslandi.
En hér var í mikið ráðist. Þetta
var engin þriggja daga heimsókn, þvi
að gestirnir komu til Reykjavíkur 30.
júlí og fóru þaðan aftur 9. ágúst, og
síðan var haldið til ísafjarðar, Akur-
Skothríð á Reykjavíkurhöfn er konungur stígur á land.
Hátíðarbogi við Steinbryggjuna í Iteykjavík.
Pósthússtræti fánum skreytt 1907.