Fálkinn


Fálkinn - 13.12.1957, Blaðsíða 28

Fálkinn - 13.12.1957, Blaðsíða 28
22 JÓLABLAÐ FÁLKANS 1957 IRÍKUR Ólafsson fædd- ist í Hlíð undir A.- Eyjafjöllum 1823. En við Brúnir undir Vest- ur-Fjöllunum var liann jafnan kenndur, því að þar bjó Iiann búi sínu í 23 ár, eða ])ar til Iiann flutt- ist að Ártúnum við EUiðaár 1879. Mun liann hafa verið vel efnaður er hann fluttist frá Brúnum, ella liefði hann ekki ráðist í skemmtiferð til Kaupmannahafnar á miðjum slætti 1876, til þess að sjá þá miklu borg og meðfram til þess að heimsækja sjálfa konungsfjölskylduna og þó einkum Valdimar prins, sem verið Iiafði hér á Þjóðhátíðinni tveimur ár- um áður, með föður sinum, Kristjáni IX. En þeir höfðu kynnst í konungs- ferðinni 1874. Eiríki hafði verið falin umsjón með hestunum, sem léðir voru úr Rangárvallasýslu í konungsförina og var því einn af fylgdarmönnunum austur að Þingvölhnn og Geysi. Hann átti rauðan hest, 8 vetra, í hópnum og vildi svo til að Valdimar prins var látinn ríða honum úr Reykjavík. En nú er best að Eiríkur segi sjálfur frá: „En þegar við komum upp i Selja- dalinn, bar svo til, að ég reið nálægt Valdimar, svo að liestar okkar, sem við riðum, lineggjuðu hvor upp á annan. Yrti Valdimar þá á mig um þetta. Sagði ég honum þá, að ég ætti báða hestana. Hann raupaði þá af þeim rouða, er liann sat á, hvað liann væri góður liestur. Upp frá þessu þekkti liann mig og vék jafnan kunnuglega að mér á eftir, enda var ég svo hepp- inn, að geta síðar í förinni gefið hon- um góðan þorstadrykk i liita miklum, er við fórum til baka, á Laugardals- völlum, en sem ég varð þó að taka borgun fyrir af hans eigin hendi. Daginn eftir að við komum til Reykjavikur úr þessari för gekk ég þar einn á götu. Hittist þá svo á, að ég mætti þar konungi og Valdimar, og heilsuðu þeir mér með þægilegu viðmóti, og segir Vaidimar þá við mig, livort ég vilji ekki selja sér þann rauða hest, en ég sagðist vilja gefa honum liann. Valdimar segir þá ekk- ert, en konungur tók þá til orða og segir: „Ekki viljum við hann gefins.“ Þá segi ég: „Þér skuluð þá fá hann keyptan." — „Hvað skal hann þá kosta?“ segir konungur. Ég sagði CO dali. Þá segir konungur, að ég skuli koma upp i landshöfðingjahús kl. 4 e. m. og taka á móti andvirðinu, er En er við komum að höllinni, voru þar vaktarar úti fyrir með byssur. Eftir að við vorum búnir að heilsa upp á þá, gekk einn þeirra með okk- ur að hallardyrunum og hringdi og fór siðan á sinn stað aftur. Iíom þá maður til dyra og sagði okkur að koma inn. Svo lauk hann þar upp annarri hurð og sagði mér að fara þar inn, og var kor.ungur þar cinn inni fyrir, og tók hann mér ástúðlcga vel. Að litlum tíma liðnum komu þar inn 3 menn, og sagði konungur mér, að þetta væru synir sínir, nefnilega Grikkjakonungur, krónprinsinn og Valdimar. Svo komu þar inn 2 kven- menn og G börn. Segir konungur mér að þetta sé dóttir sín Þyri, en hin sé krónprinsessan, konungsdóttir úr Svíaríki, en börnin þessi barnabörn sín. Svo fór liann með mig í annan sal, ljómandi fallegan, og voru þar fyrir drottning hans og Grilckja- drottning Olga, og sátu þar við tafl. Siðan var okkur Gísla vísað þar í annan sal og settir þar til borðs við mat, vín og kaffi. Eiríkur á Brúnum. Danahers, og er það mjög þægilegur maður. — Hann kom hér til Islands vorið 1877 og giftist elstu landshöfð- ingjadótturinni. — Svo eftir nokkra viðstöðu kvaddi ég hann, og um leið segir hann, að ég skuli heilsa sér áð- ur en ég stígi um borð í dampinn. Gekk ég svo þaðan og gladdi mig stórlega þessi stutta samvera okkar.“ En ekki sat við þetta. Eirikur átti efltir að gera aðra heimsókn, enn frægari: Daginn eftir kemur sem sé sendi- maður frá konungi, til þess að bjóða honum heim, út í Bernstorff-höll. Eiríkur þiggur auðvitað það boð og fer til Gísla Brynjólfssonar og fær hann með sér til trausts og halds. Segir Eiríkur svo frá þeirri ferð: HEIMSÓKN HJÁ KIÍISTJÁNI IX. „Nú á sunnudagiiin fórum við á dampvagni frá Kaupmannahöfn til Klampenborgar, sem er IV2 míla veg- ar, og þar fórum við úr vagninum, cn 'hann fór lengra, og gengum þaðan mörg hundruð faðma langa skógar- götu, 8—10 álna breiða, og stóðu eik- ur báðum megin við götuna, 4 álnir á milli hverrar, og breiddist brumið saman í flækju yfir höfði manns, svo varla sá í loft, en þó var næg birta inn á þennan skemmtilega stíg, er lá svona heim að höll konungs. Eyfellski bóndmn, sem gerði sér ferð til Kaupmannahafnar til að heilsa upp á kónginn, gerðist síðan mormóni og fór trúboðs- ferð frá Utah til Islands, en gekk svo af trúnni. og skrifaði ádeilukver á mormónatrú. — Smárit hans um ferðalög og trú- mál og ýmsan þjóðlegan fróðleik hafa varðveitt nafn hans frá gleymsku. Hann er tvímœlalaust einn af skemmtilegustu ál- þýðurithöfundum síðari hluta áldarinnar sem leið, vegna sér- kennilegs stils og frásagnargleði. Safn af ritum hans kom út á forlag Isafoldarprentsmiðju skömmu eftir stríð. Er það vönduð og smekkleg útgáfa, sem Vilhjálmur Þ. Gislason sá um, og hefir hann ritað ítarlegar skýringar við skrif Eiríks og látið œvisöguágrip hans fylgja bókinni. ég gjörði, og tók konungur mér þá mjög Ijúfmannlega og afhenti mér peningana með eigin hendi, og gáfu þeir mér þá báðir sín skilirí.“ . Upp úr þessu skrifuðust þeir á prinsinn og Eiríkur. Og ef til vill hafa þessi kynni orðið til þess að ýta undir að Eiríkur fór í Hafnar- ferðina. Er hann hafði verið í Khöfn i sex vikur, og átti aðeins eina viku eftir, tók hann sig til og skrifaði Valdimar bréf til að láta hann vita af sér. Og daginn eftir kemur sendi- maður frá prinsinum til Eiríks og boðar hann í álieyrn á Amelíuborg kl. 4 sama dag. „Svo lieimsótti ég hann á tilteknum tíma,“ segir Eirikur. „Hann tók mér mjög vel og mann- úðlega og sýndi mér eitt og annað merkilegt og fallegt i sínum dæilega svefnsal. Hann var þar hjá kennara siniun, kaptein Kock, yfirmanni alls Eirikur á Brúnum hjá konungi og í Tívolí Hátíðarkvöld í Tivoli. Konunglega leikhúsið í Kaupmannahfifn. Gamla og nýja leikhúsið 1874.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.