Fálkinn


Fálkinn - 07.03.1958, Page 4

Fálkinn - 07.03.1958, Page 4
4 FÁLKINN Sprengingin varð í aftanverðu loftfarinu og skipið varð alelda á svipstundu. Risaloftfarið „Hindenburg“ sveif yfir New York að kvöldi 6. maí 1937. Bílarnir á Broadway námu staðar, farþegarnir sneru sig nærri því úr hálsliðnum til aS 'horfa á þetta fljúg- andi hótel, sem var aS ijúka ferSinni yfir Atlantshaf. FólkiS í New York liafði margsinn- is séð „Hindenhurg“ í þeim tíu ferð- um, sem hann hafði fariS áriS áður, en alltaf vakti hann jafn mikla að- dáun, þessi risi — 29 metrum lengri en stærsta herskip veraldar. Klukkan 15.32 sveigði hann yfir Empire State Building, en sólin gægð- ist gegnum skýin. Svo stefndi hann með 97 farþegana. sína á lendingar- mastrið i Lakehurst í New Jersey. I'ólkið í New York hélt að það hefði séð endirinn á vel heppnuðu flugi með „öruggasta loftfarinu í heimi“. „Hindenburg“ var talinn svo örugg- ur, að Lloyds í London tók aðeins 5% iðgjald af tryggingu hans, sem var 500.000 pund. Á stjórnpallinum — 5G metra frá nefinu á loftskipinu — stóð bláeygur og ljóshærður kapteinninn, Max Pre- uss og skipaði fyrir. Við hliðarstýrið stóð Kurt Schönherr og starði fram- undan sér eins og stýrimaður á skipi. Eduard Boelhius var við hæðarstýrið og sneri hægri öxlinni fram. Ernst Lehmann, sem stýrði skipinu i óvcðursferðinni árið áður, hafði gætur á Preuss. Þá hafði Lehmann stýrt svo vel, að farþegarnir vissu ekkert þegar þeir voru í versta rok- inu, sem komið hafði yfir Nýja Eng- land það árið. Fimleikamaðurinn Josept Spah var á gönguþilfarinu á bakborða og reyndi að finna bæinn sinn, Douglas- ton á Long Island. Hann var að koma frá sýningum í Wintergarten í Berlín og tók sér far mcð „Hindenburg“ til að komast i tæka tið tli að sýna sig i Radio City Halh ÍTARLEGAR VARÚÐARREGLUR. Sænski iðjuliöldurinn Rolf von Heidenstam var á stjórnborða. Hann iangaði i glas og þrýsti á bjölluhnapp- inn að reyksalnum. Howard Kubis yfirþjónn svaraði með að þrýsta á hnapp svo hurðin opnaðist og Heiden- stam slapp inn og hurðin lokaðist jafnharðan eftir honum. í reyksaln- um sátu margir farþegar og voru að ræða um síðustu atburði. Þjóðverji nokkur var hreykinn að tala um síðasta Íieimsmet „Graf Zeppeiin". Loftfarið hafði siglt mörg milljón kilómetra án þess að nokkurt óliapp kæmi fyrir. — En „Ilinden- burg“ er enn öruggari, sagði hann. — Hann er öruggasta loftfarið, sem nokkurn tíma hefir verið smíðað. Það er ekki nema einn galli á honum: Gashólfin sextán eru með yfir 7 mill- jón rúmfetum af vatnsefnisgasi. Um leið og farið var út fann Ferdi- nand Belin jr. að því við yfirþjón- inn, að hann fylgdi öryggisákvæðun- um of ítarlega fram. — Við Þjóðverjar leikum okkur ckki að vetninu, sagði Kubis og brosti. Fyllstu nákvæmni var gætt um borð. Allar eldspýtur og kveikjarar voru teknir af farþegunum þegar þeir stigu um borð í Frankfurt. Þrír að- algangarnir í loftskipinu voru klædd- ir með gúmmí. í þröngu idiðargöng- unum urðu menn að ganga á flóka- skóm til að fyrirbyggja að neistar mynduðust. Áhöfnin, sem varð að fara milli vetnishólfanna var i asbest- fötum, sem engir linappar eða málm- hlutar voru í. Dieselhreyflarnir fjórir, sem knúðu ioftfarið áfram 135 km. á klukku- stund, voru kveikjulausir. Hráolían sem notuð var, var svo óeldfim að ekki kviknaði í henni þó logandi eld- spýtu væri kastað ofan i olíugeym- inn. — Nei, það var óhætt að treysta „Hindenburg". LÖNG BIÐ I' LAKEHURST. Á flugvellinum beið fjöldi af blaða- mönnum, tjósmyndurum og kvik- myndurum. Margir þeirra höfðu ver- ið á ferli síðan kl. 5 um morguninn, því að „Hindenburg" tiafði gert ráð fyrir að koma klukkan átta. Loksins kl. 1G hrópaði kvikmynd- ari sem stóð upp á vörubílspalli með tækin sín: — Þarna kcmur hann! Charles Rosendahl kapteinn, flug- stjórinn, sem átti að stjórna lend- ingunni, fór sér hægt. Preuss kap- teinn hafði nfl. tilkynnt honum að sér þættu skúrirnar i kring iskyggi- legar. Hann ætlaði þess vegna að sveima þarna í kring til kl. 18. Rosendahl fannst ekkert að athuga við vcðrið, en liann vissi að Preuss var gætinn maður. Kurr varð i áhorfendahópnum er það fréttist að lendingunni væri frestað. Og til að gera iilt verra kom ný hellidemba. Eftir klukkutíma dró úr veðrinu og stöðvarlúðurinn gaf niu merki: Lendingarflokkurinn, 110 hermenn og 138 aðrir, gekk út á völlinn. En áður en mennirnir komust að mastr- inu kom ný rigningarskúr, sem gerði þá gegndrepa. Kl. 18.12 var skýjaliæðin G0 metr- ar og skyggni 8 kílómetrar, áltin V-NV og vindhraðinn lítill. Óveðrið hafði btásið burt. Rosendahl sendi nýtt skeyti: Allt til reiðu. Við bíðum! Willy Speck loftskeytamaður sendi orðsendinguna úr klofa sinum aftur á til Preuss. Loftskipið var komið suður undir Delawarefljót en tók nú stefnu til Lakehurst aftur. Nokkrum sekúndum yfir kl. 19 stakk Rosendahl upp á að lent yrði strax. „Ilindenburg" hafði kveikt á tveimur fremstu kastljósunum og kom nú úr suðri í þann mund er fór að rökkva. Þegar hann fór yfir flug- völlinn í 150 metra hæð, sá Preuss að vallarmennirnir voru tilbúnir að taka á móti. Það rigndi ekki nema lítið núna en hryðjuvindur blés á suðaustan. Skýjahæðin var nær 800 metrar —- öllu hagaði vel fyrir góða lendingu. Kl. 19.20 var hægt að grilla í nokkra menn á pallinum fremst á loftskipinu. Kl. 19.21 snerti fyrsta tjóðurreipið frá loftfarinu sandinn á réttum stað. Það var yfir 120 metra langt og 2 þuml. í þvermál. Næsti kaðall kom að vörrnu spori. Vallar- mennirnir gripu bakborðslínuna og drógu hana að öðrum litla járnbraut- arvagninum á hringsporinu. Þeir sem „Hindenburg“ féll glóandi til jarðar og afturhlutinn lagðist saman. Það gekk kraftaverki næst að nokkur skyldi komast1 lífs af úr loftfarinu.

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.