Fálkinn


Fálkinn - 30.01.1959, Blaðsíða 12

Fálkinn - 30.01.1959, Blaðsíða 12
12 FÁLKINN Í5S55SÍÍ^ÍSS~ F R A M HA L D S S A G A fc^****** Á$TIR í feluleik 10. >£Á*>£Á*>iA*>í)g& FRAMHALDSSAGA Þegar inn kom heilsaði hún eina hvíta manninum á staðnum, aðstoðarmanni Julians, sem hún hafði hitt með Amy, og landshöfð- ingjanum, sem hafði farið í litríkasta pilsið sitt og í sportjakka með ensku sniði. Eftir að hafa heilsað fólkinu settist Julian við endann á langborðinu, sem stóð á miðju gólfi. Höfðinginn sat á hægri hönd honum og Englendingurinn til vinstri. Elisabeth sat í hinum enda þingstofunnar og gat horft yfir bæði dómarann og fólkið. Höfðinginn var upp með sér af því að geta talað ensku, og þó að Julian ætti ofurhægt með að skilja malayisku mállýskuna, lét hann höfðingjann gera grein fyrir málunum á bjag- aðri ensku. Julian hlustaði þolinmóður á hann. Maður hafði barið konuna sína og var dæmdur til þeirrar hegningar að vera án hennar í heilan mánuð. Þjófur varð að skila aftur þýfi sínu og borga heilan uxa í ofanálag. Kona, sem hafði átt í iílindum við grannkonuna, var dæmd til að búa til nýja grasmottu handa þinghúsinu. I Bolani var ekkert fangelsi til, aðeins kofi fyrir menn, sem voru grunaðir um morð. Þegar öll málin höfðu verið afgreidd kom feiminn maður fram og bað bónar. Hann átti son, sem var svo greindur að kennarinn á trúboðsstöðinni gat ekki kennt honum meira. Tuan yfirmaður mundi eflaust skilja, að það væri óviturlegt að láta þennan unga dreng verða áfram þarna í eyjunni. Væri sjálfsagt að senda hann til Singapore og gera úr hon- um málaflutningsmann eða lækni. Julian hlýddi á manninn og hallaði sér fram á borðið. — Láttu son þinn koma hingað, sagði hann. — Mig langar til að tala við hann. Drengurinn kom fram. Þetta var digur strákur, kringum tólf ára, og hafði verið lát- inn fara í kakíbuxur og hvíta skyrtu. — Finnst þér gaman að læra? spurði Julian á ensku. — Já, Tuan. Ég vil helst vera alltaf í skóla. — Hverju hefir þú mest gaman af? — Það er gaman að læra ensku og reikna. Julian reif blað úr bók og ýtti því til drengsins. — Úr því að þú ert svona duglegur geturðu kannske reiknað dæmi fyrir mig. Stráksi var á báðum áttum. — Já, Tuan, sagði hann auðsveipur. Julian gaf honum einfalt dæmi og bað hann að reikna. Var alger þögn í salnum meðan drengurinn var að því. Elisabeth vonaði að honum tækist að reikna dæmið rétt. Hún sá að Julian efaðist um kunnáttu drengsins og vonaði innilega að honum hefði skjátlast. Drnegurinn var ekki sérlega gáfulegui- og faðir hans horfði kvíðandi á hann, eins og hann væri hræddur um að hann mundi ekki standast prófið. Loks rétti stráksi fram blaðið og höndin skalf ofurlítið. — Ég er búinn, Tuan, en svar- ið er ekki rétt. En ef Tuan vill gefa mér lengri tíma ... — Hann faðir þinn sagði, að kennarinn á trúboðsskólanum hefði kennt þér allt sem hann kann, sagði Julian rólega. — Heldur þú það? — Nei, Tuan ,sagði drengurinn angurvær. — Hvers vegna baðstu foreldra þína að koma þér til Singapore? — Ég held að það sé best fyrir mig, Tuan. Mér leiðist að vinna á ekrunum. Mig langar til að verða ... stúdent. — Stúdent er sá, sem aldrei verður leiður á að læra, sagði Julian. — Og allir hafa gott af að vinna á ekrunum. Þegar ég var strákur hjálpaði ég honum pabba mínum við að skera og flysja sykurreyrinn af ekrunum hans. Drengurinn leit upp og starði á hann. — Er það satt? Hefir Tuan nokkurn tíma unnið á ekrum? Ég hefi ekkert á móti því að vinna á akrinum, en ég er hræddur um að verða eins og bræður mínir. Elisabeth starði forvitin á hann. Drengur- inn var greindur. Það skipti engu máli þótt hann gæti ekki ráðið við dæmið. Hann hafði séð bræður sína fara af trúboðsskólanum og verða þrælar á ekrunum og þá hafði komið í hann uppreisnarhugur gegn sömu örlögun- um. Hann varð að skera sig úr öðrum vegna þess að hann var öðruvísi. — Þú skalt fara í trúboðsskólann og verða þar eitt ár enn, sagði Julian. — Og jafnframt skaltu vinna hjá honum föður þinum. Þegar skólanum lýkur sendir kennarinn mér skýrslu um þig, og ég heimta að þú komir til mín með skál af rísgrjónum, sem þú hefir ræktað sjálfur. — Og svo, Tuan? spurði strákurinn ákafur. — Og svo, svaraði Julian og tók plöggin sín saman, — svo sé ég vonandi að þú hefir verið duglegur nemandi og góður sonur, og þá skal ég gefa þér meðmæli á skóla í Singa- pore. Nú klappaði allur söfnuðurinn og um stund heyrðist ekki mannsins mál, en þegar Julian stóð upp stóðu allir upp um leið og rýmdu til fyrir honum svo að hann gæti komist út. Elisabeth fékk kökk í hálsinn en skildi ekki hvers vegna. Hún þorði ekki að líta á aðstoð- armanninn, sem hafði verið sagt að fylgja henni niður á bryggju og koma henni um borð í vélbátinn. HENNI varð rórra innanbrjósts er þau héldu til hafs aftur. Annar hásetinn hafði hitað te og opnaði blikkdós með kexi, og þegar Julian hafði búið sig undir næstu landgöngu settist hann hjá henni inn í klefanum og fór að tala um kórallarifið, sem var umhverfis eyjuna eins og löng keðja af skerjum undir sjó. Hún kinkaði kolli en gerði engar athugasemdir og hann gægðist spyrjandi á hana yfir tebollann. — Þér virðist svo annars hugar. Ég held að þér séuð að hugsa um eitthvað annað? — Já, ég er að hugsa um drenginn, sem langar til Singapore. Það er kannske flónska, en mér fannst hann greindarlegur og ég var svo hrædd um að þér munduð vísa honum frá án þess að gefa honum nokkra von. Ég varð svo glöð þegar ég heyrði að þér örfuðuð hann. — Nú, ekki annað? Hann yppti öxlum. — Við svona mál dugir engin angurbliða. Hann fær tækifæri, en undireins og einn fær kost á framhaldsmenntun koma hundrað sem öf- unda hann af því að hann hefir fengið styrk hjá stjórninni. Þessir drengir sem vilja mennt- ast verða ekki öfundsverðir af ævinni í fram- tíðinni. Margir þeirra koma aftur án þess að hafa dugað til námsins, aðrir hverfa ummerkja- laust, en aðeins fáir komast áfram. — Eruð þér aldrei ... hræddur? — Við hvað ætti ég að vera hræddur? — Þetta hlýtur að vera mikill ábyrgðar- hluti. Mér er nær að halda að .. . Hún þagn- aði er hún sá hve alvarlega og rannsakandi hann horfði á hana. — Við hvað eigið þér? spurði hann kulda- lega. Hún hló afsakandi. — Ég veit það eiginlega ekki. Sir Henry hefir verið landstjóri í ellefu ár, er það ekki? Var hann ekki umboðsmaður áður? Hún tók eftir að hann varð einkennilega hljóður. Hún rifjaði upp í ofboði hvert einasta orð sem hún hafði sagt, en gat ekki séð neitt varhugavert annað en það að hún hafði kall- að landstjórann „sir Henry“. Hafði hún snert viðkvæmasta blettinn á persónu Julians — metnað hans, að vilja komast í efsta sessinn? Skildi hann að hún fyrirleát hann vegna þess að hann var metn- aðargjarn. — Jú, sagði hann stutt. — Sir Henry var umboðsmaður áður en hann varð landstjóri. Hann setti frá sér bollann og gekk út þegj- andi. Elisabeth gramdist við sjálfa sig. Hún gat ekki sagt Julian að hana langaði til að vita sem mest um hann, en það væri alveg óvið- komandi því að hún væri landstjóradóttir. Spurningin hefði verið ofur eðlileg, og ef það fyki í hann út af því að hún sæi gegn um hann ... jæja, ekki gat hún gert að því. ELISABETH og Julian höfðu komið í fjögur þorp áður en klukkan varð tólf og klukkan hálfeitt borðuðu þau hádegisverð í fimmta þorpinu ásamt einum af fulltrúum stjórnar- innar, sem átti heima í næsta húsi við þing- stofuna. Klukkan hálftvö héldu þau áfram og tuttugu mínútum síðar komu þau á vinnu- hæli og þar varð Julian að athuga langa skrá um pöntun á ýmsum verkfærum. Það var ekki fyrr en löngu eftir þessa ferð sem Elisabeth skildist að þessi dagur hafði markað tímamót hjá henni. Þá hafði runnið upp örlagastundin, er hún byrjaði að verða ástfangin af Julian Stanville. Á þeim degi kynntist hún lyndiseinkunn hans. Hún sá að hann gat verið óvæginn í dómum þegar glæpamenn áttu í hlut, en líka samviskusam- ur og réttlátur og stundum gjafmildur — ávallt þolinmóður og kurteis, hvort heldur hann talaði við höfðingjana, raja eða fiski- menn í tötrum. Og þegar sólin gekk til viðar var hún ekki í vafa um, að Julian þurfti ekki

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.