Fálkinn


Fálkinn - 30.01.1959, Blaðsíða 13

Fálkinn - 30.01.1959, Blaðsíða 13
FÁLKINN 13 að giftast Amy Penlan eða neinni annarri landstjóradóttir til þess að komast í æðsta sess. Hann mundi komast þangað hverri svo sem hann giftist. Það var farið að dimma þegar þau nálguðst Mueng aftur. Julian var að taka saman skjöl- in sín inni í klefanum. — Þér hafið verið hetja í dag, sagði hann brosandi. — Mér sýnist þér vera alveg eins vel upplögð og þér voruð þegar þér komuð um borð í morgun. — Ég er dálítið þreytt, en það stafar víst af sjávarloftinu. — Þér iðrist ekki eftir að þér komuð með mér? — Nei, langt frá því. Þetta hefir verið afar fróðlegt. Ég er þakklát yður fyrir að þér vild- uð lofa mér með yður. Hún horfði á hann og augun gljáðu. Hann tók undir handlegginn á henni og þau stóðu á þilfarinu og horfðu á Ijósin, sem voru að kvikna í Mueng og á hæðirnar kringum bæinn. Þetta var óendanlega friðsælt augna- blik, og hún vissi að hún mundi alltaf minn- ast þess með þrá. STUTT „GÓÐA NÓTT“. Vélbáturinn lagði að bryggjunni og Julian hjálpaði henni í land. Þau gengu fjöruna upp á veginn. Þegar þau komu að bílnum sáu þau að bíll Mclvers læknis stóð þar hjá, með ljós- in logandi. — Gott kvöld, sagði hann. — Ég var í þann veginn að skrifa yður bréf, sem ég ætlaði að festa í bílgluggann yðar, Julian. Ég ætlaði að biðja yður um að koma við hjá mér í leið- inni. — Er eitthvað að? flýtti Julian sér að spyrja. — Ékki neitt alvarlegt. Solai gamli hefir loksins fallist á að láta skera sig við kviðslit- inu ,en hann vill að þér skrifið staðfestingu á því. Hann vill tryggja sér að hafa stjórn- ina sín meginn áður en hann leggst undir hnífinn hjá mér. En það er ekki hægt að á- fellast karlfauskinn fyrir það. Hann hefir lif- að í frumskógunum mestan hluta ævi sinnar. — Hafið þér eyðublaðið með yður? Læknirinn leitaði í jakkavasanum. — Hérna er það. Mér þykir leitt að gera yður þetta ónæði um leið og þér eruð að koma úr ferðalagi, en ef þér gerið þetta ekki fljótt er ég hræddur um að karlálfinum snúist hugur. Hvernig hefir ykkur liðið í dag? — Ágætlega, sagði Julian og skrifaði nafn- ið sitt. — Og yður, ungfrú Penlan? Það veitir ekki af að halda á spöðunum þegar maður er með Julian? Hann þarf manneskju eins og yður til að halda aftur af sér og gera honum skiljan- Hvar er markvörðurinn? legt að það er sumt, sem lögin eiga ekki að gilda. Julian hló. — Þér talið langtum of mikið, læknir. — Það getur verið, en ég veit hvað ég tala um. Hann sneri sér að Elisabeth. — Ef þér hafið gaman af spenningi, skuluð þér gefa yður að honum við og við og láta hjartað í honum kippast við. Julian hefir alltaf vanist að ráða öllu sem hann vill. Elisabeth þótti vænt um að hvorugur þeirra gat séð hve mikið hún roðnaði. — Ég skal athuga það, sagði hún undirleit og muldraði „góða nótt“. Julian opnaði bílinn og hún sett- ist inn. En það varð nokkur bið á því að hann kæmi. Þeir stóðu enn og voru að tala saman. Hún sá að læknirinn yppti öxlum og heyrði brot af því sem Julian svaraði: —.Hann átti ekki skilið að sleppa svona vel við þetta. Hann er einstök landeyða. Hún fékk sviða fyrir hjartað. Þeir voru að tala um Tim Cartney. Julian var að spyrja um hvernig liði heima hjá Celiu. — Ég er hræddur um að þér séuð þreytt, sagði hann er hann kom og settist við hliðina á henni. — Þér verðið að fara að hátta og sofa vel út á morgun. Þau óku þegjandi um Mueng. Þegar þau komu að landstjórahúsinu, spurði Elisabeth: — Viljið þér koma inn og fá yður glas? — Já, þakka yður fyrir, en ég má ekki standa lengi við. Hann gekk upp þrepin með henni. — Ég hefi vinnu sem ég þarf að ljúka í kvöld. Hann leit yfir garðinn og sagði svo: — Þarna kemur unnustinn yðar síðan í fyrra. Á ég að láta hann fara? — Nei, gerið það ekki. Hún leit upp og sá Peter nálgast húsið. Julian hleypti brúnum. — Eruð þér virki- lega í skapi til að fara að berjast við hann í kvöld? Hún rétti úr sér. — Það er alltaf notalegt að hafa Peter nærri sér. Það er hvíld í því. — Upphitaðar leifar eru nú stundum ekki sem ljúffengastar. Henni varð hugsað til Celiu og sagði létt: — Það er ekkert upphitunarbragð að Peter. Hann er afbragð. Hann kom inn og heilsaði kurteislega. — Gott kvöld. Ég hefi komið hingað tvívegis í dag, Amy. Það er samkvæmi hjá Kelvey, og mér datt í hug hvort þú vildir koma með mér þangað? — Ungfrú Penlan hefir átt erfiðan dag, sagði Julian stutt. Eilsabeth brosti alúðlega. — Ég vil gjarn- an koma með þér, Peter. Komdu inn og fáðu þér sæti meðan ég hefi fataskipti. Julian reyndi ekki að malda í móinn frekar. Hann horfði á Peter eins og þetta væri ein- kennilegt en viðbjóðslegt skordýr, bauð Elisa- beth góða nótt án þess að líta á hana og fór sína leið. Elisabeth fann vel, meðan hún var að hafa fataskipti, að hún var þreyttari en svo að hún gæti skemmt sér í samkvæminu. Hún var með höfuðverk eftir sjávarloftið og sólskinið og heilinn var þreyttur eftir öll áhrifin, sem hún hafði orðið fyrir á stuttum tíma. Peter hafði ekki útvegað sér bíl ennþá, og Elisabeth kunni ekki við að senda eftir bíl- stjóranum til þess að aka þessa stuttu leið til Kelveys. Þau gengu gegnum garðinn og héldu svo upp veginn. Peter sagði henni að hann hefði verið á bókasafninu með Sands fyrrihluta dagsins. Síðdegis hafði hann verið í stjórnarskrifstof- unum og reynt að kynna sér starf sitt. Honum virtist starfið hjá sir Henry mundi verða létt- ara en það sem hann hafði haft i Singapore, en miklu ábyrgðarmeira og virðulegra. Hann sagðist vera mjög ánægður með að hafa feng- ið þessa stöðu. Amy var að vanda miðdepillinn í samkvæm- in'u — í sægrænum silkikjól — með Cran- wood kaptein við hliðina á sér. Þegar hún kom auga á Elisabeth spurði hún kesknislega: — Hvers vegna ertu farin að draga þig eftir honum Peter, gullið mitt? Er það endurkast eftir samveruna með Julian? FÁLKINN — VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM. — Af- greiÖsla: Bankastrceti 3, Reykjavik. Opin kl. 10—12 og 1 V-i—(i. — Ritstjóri: Skúli Skúlason. Framkv.stj.: Svavar Hjaltested. ■— Sími 12210. HERBERTSprent. ADAMSON ANDARTAK!

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.