Fálkinn - 22.05.1959, Blaðsíða 14
14
FÁLKINN
Nýi
tláífJM'tiMtM* MMMMM —
Framh. af bls. 9.
— Harry ætlar að senda ljósmynd-
ara frá blaðinu til að taka nokkrar
myndir af Rillu í dag. Við gætum
kannske farið og horft á það?
Þegar við komum að sundlaug-
inni stóð Rilla þar og hafði sett sig
í stellingarnar, í ljómandi fallegum
sólfötum og með ilskó. Þegar hún
kom auga á Tony borsti hún og
veifaði til hans.
— Mig langar til að fá þig til að
vera á einni myndinni með mér,
Tony! Hún rétti fram höndina,
skipandi:
— Farðu í stuttbuxur!
Hann fór inn í fataklefann. Dina
stóð með rauðu plastöndina undir
hendinni og horfði á eftir honum.
— Hvers vegna vill hann ekki
vera með okkur, mamma? Mér er
illa við hana. Hvers vegna förum
við ekki að baða okkur?
— Af því að það er verið að taka
myndir, góða mín.
Dina setti öndina frá sér á laug-
arbarminn, þegjandaleg.
Tony kom aftur og Rilla sneri
sér að ljósmyndaranum. — Við tök-
um eina á stökkpallinum, sagði hún.
— Og eina af Tony, þar sem hann
stendur í stiganum og horfir upp
til mín.
Hún gekk fram laugarbarminn
og leit um öxl og brosti til Tonys.
Ef hún hefði litið niður fyrir fæt-
urna á sér mundi hún hafa séð
plastöndina áður en það var of
seint. En nú rak hún tána í hana,
hrasaði og datt í laugina.
Ég heyrði mikið skvamp og svo
hlátursrokurnar í áhorfendunum.
Og þeir höfðu ekki hlegið sig
ánægða þegar henni skaut upp aft-
ur. Andlitið á henni var afmyndað
af reiði, og nýgreidda hárið hékk í
flyksum niður á axlirnar. Hún lét
sem hún sæi ekki útrétta hönd
Tónys þegar hún brölti upp úr
lauginni.
— Hver setti þessa önd þarna?
hrópaði hún fokreið.
— Það er öndin mín! Dina hljóp
fram til að ná í hana.
— Þetta verður afbragðs mynd,
sagði blaðaljósmyndarinn. Ég náði
henni á sama augnabliki sem þér
duttuð.
Það var eitrað augnaráð sem hún
sendi honum, og þegar Dina beygði
sig til að taka upp öndina sína, lét
Rilla reiði sína bitna á henni.
— Þú gerðir þetta viljandi! öskr-
aði hún. — Afstyrmið þitt! Hvað
ert þú að flækjast hérna. Hypjaðu
þig út!
Hún reiddi höndina og gaf Dinu
roknalöðrung.
En nú heyrðist þruma í Tony við
hliðina á okkur: — Hvað gengur að
þér, Rilla? Það er ósæmilegt að
missa svona á sér stjórnina.
Ég tók utan um Dinu, sem var
farin að gráta, og nú setti ég ekk-
ert fyrir mig hvað ég sagði, eða
hvort aðrir heyrðu það: — Ef þér
hefði ekki verið svona umhugað
um að brosa til Tony, munduð þér
hafa gætt betur að fótunum á yður,
sagði ég kuldalega. — En þér eigið
líklega erfitt með til stilla yður um
að brosa til manna annarra kvenna,
er ekki svo? Það hefði einhver átt
að dýfa yður í fyrir löngu, þá hefðu
þér kannske ekki tekið yður alveg
svona hátíðlega!
Ég held að það sé kominn tími
til að fara heim, sagði Tony bak
við mig. — Eigum við að koma út
á ána og róa, dálitla stund, Dina
mín? Og svo getum við borðað
kvöldmat í Báthúsinu og við Jeremy
getum reynt að veiða.
— En þú ætlaðir að sjá sýning-
una? sagði ég.
Hann tók handleggnum um axl-
irnar á mér. — Nei, ég er hættur
við það. En mig hefði langað til að
dýfa Rillu í aftur. Að haga sér
svona við börn — fyrr má nú líka
vera!
Ég sagði ekkert. Ég veit hvenær
Lárétt skýring:
1 sonur Nóa, 4. Grýla, 10. takmark
afreksmanna, 13. austurlenzkt skáld,
15. holar steininn, 16. leikur, 17. ílát,
19. bindiefni úr dýraríkinu, 21. gera
fossar, 22. verður að plöntu, 24. salt-
fiskur, 26. baðstaður, 28. hitunar-
tæki, 30. hreyfast, 31. ílát, 33. tveir
eins, 34. skjól, 36. trylla, 38. tónn,
39. negraríki, 40. sjálfsagt, 41. skáta-
höfðingi, 42. gerfimál, 44. félagasam-
tök, 45. litur, 46. forsetning (sam-
sett), 48. fyrir utan, 50. úr sögunni,
51. ævintýramaður, 54. nugguðu, 55.
fljót, 56. opnað ginið, 58. betur á
veg, 60. heppnast, 62. öskra, 63.
dunda, 66. fífl, 67. kol, 68. stjórnar-
form, 69. skákmeistari.
Lóðrétt skýring'
1. drykkur, 2. síðasta orðið, 3.
meiddur, 5. brodd, 6. félagsskapur,
7. stássmær, 8. málari, 9. Guð, 11.
mannsnafn, 12. næði, 14. skipa, 16.
nafnverð (útlent orð), 18. íþrótta-
svæði, 20. skemmtiatriði, 22. þrír í
röð, 23. gælunafn, 25. bygging við
gatnamót, 27. tala, 29. glæsilegt, 32.
leiðar í skapi, 34. upphrópun, 35.
höfuðborg, 36. hljóða, 37. austur-
lenzkt nafn, 43. þjóðfræg sjóhetja,
47. að verki, 48. beita, 49. skella, 50.
mistakast, 52. marra, 53. skafa hár,
HrcMaáta 'JálkahA
ég á að þegja. Og auk þess var
handleggurinn á Tony eitthvað svo
notalegur, þegar við gengum saman
frá lauginni.
SNÍGLAVeisIa. í San Giovanni-
hverfinu í Róm halda þcir snígla-
veislu einu sinni á ári, og dúka
veisluborðið fyrir framan kirkju-
dyrnar. Það eru mörg þúsund snigl-
ar sem hverfa ofan í ginið á fólkinu
í svona veislu og mikið af landvíni
skolast með. Hér sést einn þátttak-
andinn vera að mata krókinn.
54. keisara, 57. kvendýr, 58. glund-
roði, 59. tamning, 60. eldsneyti, 61.
viðbúinn, 64. verzlunarmál, 65.
hreppi.
LAUSN Á SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt ráðning:
1. íma, 4. klastra, 10. læk, 13.
sefa, 15. aukna, 16. gera, 17. sinnep,
19. Kvásir, 21. sess, 22. egg, 24. ef-
ar, 26. Mikligarður, 28. aka, 30. raf,
31. ist, 33. Se, 34. ofn 36. err, 38. KR,
39. trefjar, 40. umsegja, 41. ar, 42.
töm, 44. stó 45. óm, 46. lak, 48. ups,
50. Ulm, 51. orðagjálfur, 54. iðju, 55.
gat, 56. arma, 58. Arnóra, 60. Ing-
unn, 62. spað, 63. skinn, 66. alda, 67.
kar, 68. stúrinn, 69. lag.
Lóðrétt ráðning:
1. íss, 2. meis, 3. afnema, 5. lap,
6. au, 7. skuggar, 8. tn, 9. rak, 10.
lesari, 11. ærir, 12. kar, 14. ansi, 16.
gáfu, 18. Eskifjörður, 20. veðurstof-
an, 22. eir, 23. gaf, 25. kastali, 27.
strammi, 29. kerra, 32. skjól, 34. oft,
35. nam, 36. Ems, 37. Reó, 43. spjar-
ir, 47. koðnar, 48. ugg, 49. sát, 50.
urmull, 52. rjóð 53. urga, 54. Irpa,
57. anda, 58. ask, 59. ast, 60. inn.
61. nag, 64. kú, 65. Ni.