Fálkinn - 08.02.1961, Síða 23
tekur Þetta mjög sárt, góða mín...
Hann sneri sér að henni og var mjög
alvarlegur. — Þú veizt hve fúslega ég
mundi gera allt fyrir þig, en þessu get
ég ekki skipt mér af. Það eina, sem ég
get gert er að gleyma því, að þú hafir
minnzt á þetta við mig... Hann brosti
erfiðlega og bætti við: — Og þó verður
það erfitt að láta samvizku sína sætta
sig við það.
Hún draup höfði. Hún var örþreytt
og lá við að gráta, en sagði við sjálfa
sig, að undir eins og hún fór að hugsa
þetta nánar hefði hún vitað að hann
mundi bregðast svona við. Hún hafði
verið í uppnámi þegar hún hringdi til
hans 1 klúbbinn í gær. Hún hafði alls
ekki hugsað til þess að hann var í opin-
berri stöðu, en aðeins fundið að hann
var eini vinurinn, sem hún gat leitað til.
Nú sá hún ljóst, að hún hafði gert
honum ógreiða með því að trúa honum
fyrir þessu.
— Ó, Bern, þú verður að fyrirgefa
mér þetta, sagði hún eymdarlega. —
Ég hefði átt að halda þér fyrir utan
þetta. En úr því ég hef sagt þér frá
því verður þú auðvitað að leggja mál-
ið fyrir yfirvöldin, ef þér finnst það
skylda þín. Þú mátt alls ekki taka til-
lit til mín. Og hvers vegna ættir þú að
taka tillit til Franks? Þú þekkir hann
alls ekki. Þú getur auðvitað ekki skilið
það eins og ég geri, að það er óhugsandi
að hann hafi gert það, sem Þau saka
hann um. Og ef þú telur rétt að gefa
skýrslu um málið, þá gerðu það! Hún
gat ekki haldið áfram en tók báðum
höndum um andlitið og grét.
Aldrei hafði hún verið jafn einmana
og yfirgefin og nú. Allt í einu fann
hún til handarinnar á honum. Hún
strauk fyrst öxlina og svo hárið —
viðkvæmt og innilega.
Kata, góða Kata, þú mátt ekki gráta!
En mér fannst ég verða að gera þér
grein fyrir hver afstaða mín er. Þú
mátt ekki skilja það svo, að ég sé ekki
vinur þinn. Ég vil gera allt sem ég
get fyrir þig.
Eftir nokkra bið hélt hann áfram:
— Er þetta allt, sem þú ætlaðir að
segja mér? Ef það er eitthvað meira,
þá haltu áfram. Og síðan held ég að
okkur sé báðum bezt að gleyma, að þú
hafir nokkurn tíma sagt mér nokkuð
um þetta.
Hún leit upp og reyndi að strjúka
tárin úr augunum.
— En Bern, getur þú gleymt? Ég
vil ekki að þú gerir það, ef þú hefur
samvizkubit af því. Og svo er eitt enn,
sem við verðum að hafa hugfast —
sem þú verður að hafa hugfast.
Það er ritarastaða mín hjá þér. Ef
þér finnst ég eigi að hætta, eftir það
sem þú hefur fengið að vita, skal ég
hætta undir eins. Bróðir minn er grun-
aður. Getur þú varið það að hafa mig
sem ritara áfram? Ég endurtek, að þú
verður fyrst og fremst að hugsa um
sjálfan þig og ábyrgð þína — ekki
Frh. á bls. 34
■ m i u tu?
STJÖRNUSPÁIN
Hrútamerkið.
Talið ekki of mikið um heppnina, sem þér munuð hafa
með yður þessa viku. Þér hafið lagt góðan grundvöll undir
upphaf að velgengni, og ef þér haldið áfram að byggja á
þessari undirstöðu, mun gæfan vera yður hliðholl. Gerið
ekki stórfengleg viðskipti fyrri hluta vikunnar.
Nautsmerkið.
Það kemst meira jafnvægi á í tilveru yðar, ef þér reynið
að sjá hlutina í rétt.u ljósi. í þessari viku skuluð þér gæta
þess vel að missa aldrei stjórn á skapi yðar og forðast
árekstra í sérhverri mynd. Á föstudaginn gerist eitthvað
mjög óvænt.
Tvíburamerlcið.
Þetta verður róleg vika og þess vegna tilvalið að hugsa
sig vel um og leggja drög að áformum framtíðarinnar,
Farið hægt í sakirnar á sviði ástamálanna og búið yður
undir vonbrigði. Sízt skal örvænta þótt öðru vísi fari
en til stóð. „Alltaf má fá annað skip ....“ o. s. frv.
Krabbamerkið.
Ekki er ósennilegt, að þetta verði vika mikilla breytinga
í lifi yðar. Því fer fjarri, að þér séuð sjálfstæður, hvorki
á vinnustað eða í einkalífi. Fyrr eða síðar hljótið þér að
taka af skarið, og því fyrr því betra.
Ljónsmerkið.
Þér gerið miklar kröfur til hamingjunnar og treystið
bókstaflega á hennar fulltingi. Kannski er það einmitt þess
vegna, sem yður hefur gengið svona vel hingað til. Varizt
þó að ofmetnast. Enginn getur verið alsæll, og fyrr eða
síðar hlýtur eitthvað að gerast, sem varpar skugga á ham-
ingju yðar.
J ómfrúarmerkið.
Það er gott og blessað að græða peninga, en aldeilis af-
leitt, þegar menn eru gjörsamlega á valdi þeirra og vilja
öllu fórna fyrir þá. Hafið þetta vel í huga í þessari viku.
Reynið að treysta öll vináttubönd yðar. Þér þarfnist þess.
Vogars kálarmer kið.
Þér farið með sigur af hólmi, það er að segja, ef þér
standizt^ mótlæti bessarar viku. Og hver er sá, sem ekki
leggur á sig erfiði, ef hann veit að sigurinn bíður á næsta
leiti?
Sporðdrekamerkið.
Þér eignizt nýjan vin, sem kemur til með að hafa mikla
þýðingu í lífi yðar, bæði í sambandi við þroska yðar og
framabraut. Gömul ósk rætist í vikunni. Leggið ekki of
hart að yður við vinnuna og notið frístundirnar betur til
hvíldar og hressingar.
Bogmannsmerkið.
I þessari viku gerið þér dálítið alvarlega skissu, en ekki
skuluð þér missa sjálfstraustið þess vegna. Ef þér takið
þessu létt og gerið góðlátlega gis að sjálfum yður fyrir
mistökin, þá mun virðing og skilningur samstarfsmanna yðar
takast.. Það er nú einu sinni mannlegt að skjátlast!
Steingeitarmerkið.
Seinast í þessari viku gerist at-vik, sem hefur þær af-
leiðingar, að þér fyllist nýjum kjarki og ákveðið að fram-
kvæma nokkuð, sem yður hefur lengi dreymt um. En þegar
á hólminn er komið, renna á yður tvær grímur — og ekki
í fyrsta skipti.
Vátnsberamerkið.
Það skortir ekki hugmyndir hjá yður um þessar mundir,
en látið yður samt nægja að framkvæma eina í einu.
Það mun reynast. happadrýgst. — Einn gamall og góður
vinur yðar verður fyrir þungu áfalli og þá kemur til yðar
kasta að hjálpa honum og launa honum hina löngu vin-
áttu og tryggð.
Fiskamerkið.
Það, sem þér eruð þegar byrjaður á, mun því miður reyn-
ast hreinasta glapræði og fara gjörsamlega út um þúfur.
Lærið af mistökunum! Einungis það, sem vandlega er hugs-
að og skipulagt fyrirfram heppnast að jafnaði vel. Reynið
að stilla skapið, þótt vissulega blási á móti!
X
JL
Öjfe
1 KIV* ,
¥
jL
21. MAHZ —
20. APRÍL
21. APRlL —
21. MAÍ
22. MAÍ —
21. JÚNÍ
22. JtM —
22. JÚLÍ
23. JÚLÍ —
23. ÁGÚST
24. ÁGÚST—
23. SEPT.
24. SEPT. —
23. OKT.
24. OKT. —
22. NÓV.
23. NÓV. —
21. DES.
22. DES. —
20. JAN.
21. JAN. —
19. FEBR.
20. FEBR. —
20. MARZ