Fálkinn - 08.02.1961, Blaðsíða 31
ára, gangið þér um götuna í leit að
mönnum til þess að fara með á hótel.
Við orðið „hótel“ rak hún upp stór
augu. Sennilega hafði hún aldrei verið
á hóteli. Hótel var eitthvað ævintýra-
legt, sem maður sá á bíó.
— Þegar þér eruð þrjátíu ára, eruð
þér gömul kona.
María var orðin dauðhrædd yfir
þessu kuldalega tali hans, sem hún
skildi reyndar lítið 1.
Loks g^fst Jansen upp, stóð á fætur,
án þess að segja nokkuð, safnaði saman
fötunum, sem hún hafði verið í á járn-
brautarstöðinni, gekk því næst inn í
svefnherbergið, fann þar ferðatösku og
lét föþin hennar ofan í hana.
— Ég set þig í lestina í kvöld, sagði
hann.
— Systir mín gefur yður aldrei leyfi
til þess, hrópaði María.
— Systir yðar er vond stúlka, sagði
Jansen og loksins hafði hann sagt orð,
sem María skildi til fullnustu. Hún
varð óttaslegin. Þessi tvö orð höfðu
meiri áhrif á hana en allar siðferðis-
predikanirnar sem á undan voru gengn-
ar.
— Þér ættuð ekki að segja svona lag-
að, sagði María og fór að kjökra. •— Þér
ættuð ekki að segja svona ljótt um
neinn.
Hún stóð hreyfingarlaus, grét og
veitti enga mótspyrnu. Hann tók undir
handlegginn á henni og leiddi hana
niður tröppurnar.
—Þér giftist bráðum myndarlegum
manni, sagði hann. Þér þurfið ekki að
búa alla ævi við járnbrautarteinana.
— Ég sé aldrei neina karlmenn nema
pabba, sagði hún og reyndi að draga
höndina að sér. En hann hélt henni fast,
þar til þau voru komin í leigubifreið.
Þar sat hún í hnipri og sá þessa gullnu
ævintýraborg líða hjá. Á járnbrautar-
stöðinni keypti hann miða handa henni,
gaf henni fimm pund og setti hana upp
í réttan járnbrautarklefa. Hann sagði
að skilnaði:
— Ég veit, að þér hatið mig núna.
En einn góðan veðurdag verður yður
ljóst, að ég hafði á réttu að standa og
hugsið til mín með þakklæti í huga. —
Hún brosti dauflega, smeygði sér í
næsta sæti og var eins og hrætt dýr.
Að því búnu varð hann að hlaupa
til þess að missa ekki af sinni eigin lest.
Það mátti ekki tæpara standa. Þegar
lestin rann út af stöðinni, sá hann hvar
María rölti á brautarpallinum á háu
hælunum sínum. Hún leit óttaslegin
við. Augu þeirra mættust, hún brosti
til hans afsakandi, en hljóp síðan á-
fram. Með peningana samanvöðlaða í
annarri hendi hljóp hún og hvarf í
mannhaf stórborgarinnar . ..
AAtró Akrijjat
FRÁ SJÓNARHÓLI STJÖRNUSPEKINNAR
Takmark Rómantíkurinnar.
Ég á við tvö vandamál að
stríða og vildi biðja þig um
að leysa úr þeim. Ég er fædd
10. nóvember 1921 klukkan
4,30 fyrir hádegi. Mig hefur
ávallt langað til að verða rit-
höfundur. Ég hef haft lánið
með mér stundum á því sviði,
en ekki alltaf.
Vandamálið, sem ég á mest
í stríði við byrjaði, þegar ég
fékk bréf 26. nóvember 1938,
frá manni, sem býr erlendis.
Hann er fæddur 27. maí 1919.
Vinátta okkar jókst í gegnum
bréfaskriftir. Þegar árin liðu
fór hann oft að reyna að kom-
ast til mín til að hitta mig,
en í hvert skipti varð eitthvað,
sem aftraði því.
Eftir að við höfðum skrif-
azt á í tuttugu ár, flaug hann
loksins alla leið þaðan sem
hann starfar, eingöngu til að
hitta mig. Síðan sneri hann við
heim á leið.
Ég þarf ekki að taka það
fram, að við álítum að örlög-
in hafi mótað 'hina langvar-
andi vináttu okkar. Við erum
því að hugsa alvarlega um að
skapa okkur hamingjuríka til-
veru saman.
Svo vildi ég vita hvort
heppnin mundi verða mér
hliðholl á rithöfundarasviðinu
og hvort ég ætti að halda mér
að smágreinum, ævintýrum
eða dramatískum verkum?
Kort þitt er mjög óvenju-
legt, og það gefur góð fyrir-
heit um fyllingu óska þinna.
Hin ákveðna Sporðdrekasól er
í öðru húsi ríkidæmisins og
í þrenningarafstöðu við Plútó
í níunda húsi, sem ræður rit-
verkum og útgáfustarfsemi.
En þitt rómantíska líf hlýt-
ur að hafa lent í mörgum erfið-
leikum. Allt í allt ertu með
fjórar plánetur í giftingar-
merkinu Vogarskálin, en þrjár
þeirra eru grafnar í tólfta
húsið. Það var ekki fyrr en
þær fóru út úr því húsi, sem
þú fórst að sjá að rofaði eitt-
hvað til.
Það, sem gerði ástamál þín
enn erfiðari, var Satúrn í
Hrútsmerkinu gagnstæður öll-
um Metaskálaplánetunum. En
sem betur fór, var Venus í
Sporðdrekamerkinu, sem er
einnig sólmerki þitt.
í sólskorti mannsins eru
þrjár plánetur í tólfta húsi
takmarkananna og hindran-
anna. Þar sem ein þeirra er
Marz, býst ég við, að hann
hafi orðið að dvelja í fanga-
búðum meðan á stríðinu stóð
eða þá, að hann hafi verið í
neðanjarðarhreyfingunni. En
hin Karmisku bönd ykkar eru
mjög sterk, þar eð Plútó korts
þíns er nákvæmlega yfir Ven-
us í hans korti og nálægt Júpí-
ter.
Bréf þitt skapar fagra sögu
frá bæjardyrum stjörnuspek-
innar séð, því að nú er hinu
langa tímabili hindrananna,
sem orsakaðist af áhrifum
tólfta hússins í báðum kort-
um ykkar, bráðum lokið. Á-
framhaldandi Marz þinn mun
hafa náð samstöðu árið 1960
við Venus fæðingarkorts þíns.
Þetta eru venjulega tákn um
giftingu.
í áframhaldandi korti hans
verður Marz nákvæmlega yfir
Venus. Máninn verður nálægt
Sól fæðingarkorts þíns og Sól
hans nálgast góða afstöðu við
Júpiter—Venus. Vegna alls
þessa álít ég, að örlögin hafi
ritað hamingjusaman endi á
sögu ykkar.
Ennfremur mun hamingja
í ástamálum þínum skapa Þér
orku frá Neptún í fæðingar-
korti, en hann er í tíunda húsi
í Ljónsmerkinu. Þér mun farn-
ast mun betur á næstu árum
á sviði ritlistarinnar, meira að
segja ætti forspilið að þessu
að skapast árið 1961. Reyndu
dramatísk ritverk, því að Nep-
tún er í því húsi, sem ræður
þessari hlið á hinum skapandi
listum.
Astró spáir í stjörnurnar fyrir lesendur Fálkans. Þeir, sem vilja nota
sér tækifærið, þurfa að skrifa honum, hvar, hvenær og klukkan hvað
þeir eru fæddir, og sömuleiðis þurfa þeir að segja sem mest af lífs-
sögu sinni og vandamálum. Utanáskriftin er FÁLKINN, pósthólf
1411, Rvík, Astró.
FALKIN N
31