Fálkinn - 28.06.1961, Síða 22
°9
óóíaíemuau
Suraarið er tími sólskins og sól-gler-
augna, og þá vaknar spurningin: Eru
sólgleraugu skilyrðislaust holl fyrir aug-
un? Er það raunverulega nauðsynlegt
að hylja það fallegasta, í flestum til-
fellum, í andliti okkar?
Ekki verður þessu svarað með já-i eða
nei-i. Séu sólgleraugu notuð skynsam-
lega, eru þau til gagns fyrir augun og
auka vellíðanina í heild. Séu þau hins
vegar notuð í tíma sem ótíma, í þung-
búnu veðri og innandyra, vegna þess
að þau eru í tízku, geta þau spillt aug-
unum.
En hvenær á þá að nota sólgleraugu?
Auðvitað um leið og við verðum þess
vör, að sólarbirtan „skeri“ í augun, t. d.
þegar legið er í sólbaði, þegar setið
er við lestur í sól og birtan endurkast-
ast af hvítum pappír, og þegar ekið er
í bíl.
Mest ber á nauðsyninni til að nota
MYNDIRNAR:
Fyllið augnglasið með baðvatni, setjið
það við opið augað
beygið höfuðið fljótt aftur og depl-
ið auganu nokkrum sinnum.
sólgleraugu fyrst á vorin, meðan sólin
er lægra á lofti. Þá hættir manni við
að píra, fá hrukkur í andlitið og ef
til vill höfuðverk. Er þá skynsamlegt
að nota sólgleraugu fyrri part sumars,
en smátt og smátt venjast augun birt-
unni, þegar sólin kemur hærra á loft.
Þá skal nota sólgleraugu sparlega, ann-
ars verða augun viðkvæmari fyrir birtu
og þola sólskinið verr en skyldi.
Ef sólgleraugu eiga að veita tilætl-
aða vernd í sterkri sól, þurfa þau að
vera nokkuð dökk, bezt eru dökk reyk-
lituð, sem milda alla liti í kringum okk-
ur án þess að breyta þeim um of. Reyn-
ið gleraugun áður en þér festið kaup á
þeim, og kaupið þau sem yður fellur
bezt — ekki bara þau, sem eru „smört-
ust“. Sólgleraugu úr auðrispuðu plasti
eru nokkuð vafasöm, skaðlegt fyrir aug-
un að horfa í gegnum þau.
Fyrir þá, sem nota gleraugu að stað-
aldri, fást sólgleraugu, sem hægt er
að festa utan á gleraugun. En mörgum
finnst þau þung og óklæðileg. Óneitan-
lega er fallegra og þægilegra að eiga
sérstök sólgleraugu með slípuðum glerj-
um, sem hæfa augunum. Er hægt að
fá slík hjá gleraugnasölum.
Ef augun eru viðkvæm, er þeim eink-
ar hætt á sumrin. Er þá gott að baða
augun kvölds og morgna. Við augnbað-
ið eru notuð þar til gerð augnglös, sem
fást í lyfjaverzlunum. Augnglasið er
fyllt af baðvatninu, sett fyrir augað
og svo er höfðinu hallað aftur, svo að
baðvatnið geti leikið um augað. Sem
augnbaðvatn er ágætt að nota veika
saltupplausn:
1 tsk. salt
Y2 1 sjóðandi vatn.
Einnig er ágætt að nota kamillute. En
bæði það og saltvatnið á að vera við
stofuhita, þegar það er notað. Bórvatn
er líka ágætt. Athugið að skipta um
baðvatn milli augna, annars gæti smit
borizt á milli, ef um einhvern smitandi
kvilla væri að ræða.
☆
eilrœ^L
í skápum, þar sem langt bil er á milli
hillna, er oft erfitt að nýta rýmið sem
skyldi. En úr þessu má bæta, með því
að koma þar fyrir grindum, sem renna
má fram og aftur. Grindurnar er hægt
að kaupa tilbúnar, og þeir sem hand-
lagnir eru, geta auðveldlega komið þeim
fyrir. Grindur þessar eria ágætar hirzlur
undir ýmislegt smádót, eins og nær-
fatnað og sokka.
★
Kúlupennablekblettir eru ein af plág-
um nútímans. Það er á hinum ótrúleg-
ustu stöðum, sem þeir birtast, ýmist á
jakkanum, dúknum og jafnvel í hárinu,
ef maður hefur þann óvana að sitja
með hönd undir kinn og gleymir að
leggja ritfærið til hliðar.
En, sem betur fer, er hægt að ná
slíkum blettum úr. Auðvitað er auð-
veldast að fjarlægja þá úr hvítum efn-
um, eins og t. d. dúkum eða rúmfatn-
aði. Til þess þarf einfaldlega „spritt“.
Nuddið blettinn með því, þá á hann
að hverfa, en gleymið ekki undirlaginu,
sem á að drekka í sig, og sem flytja
á, eftir því sem litur kemur úr blett-
inum.
En spritt er dálítið róttækt á lituð
efni, má því aðeins nota það við hvít
og litarföst efni. Á viðkvæma liti og
efni verður að nota tetraklórkolefni.
Munið, að það er svæfandi, og því bezt
að standa við opinn glugga eða í drag-
súg, þegar hreinsað er með því. Einnig
er hægt að nota hreinsað benzín. En
það er mjög eldfimt, og verður ekki
næglega brýnt fyrir fólki að reykja ekki,
þegar það er notað, eða vera nálægt
opnum eldi.
Munið, að mörg hreinsiefni, eða öllu
heldur eimurinn úr þeim, hefur meiri
eðlisþyngd en andrúmsloftið og leita
þess vegna niður að gólfi. Látið því
aldrei smábörn vera nálægt ykkur, þeg-
ar þið notið þau.
22
FALKINN