Fálkinn


Fálkinn - 27.09.1961, Qupperneq 4

Fálkinn - 27.09.1961, Qupperneq 4
 SVO bregðast krosstré sem önnur tré. Einhvern veginn er það svo, að mér er þetta máltæki ríht í huga} síðan ég var í skóla. Þetta var maltæki eins kennarans, þeg- ar við gerðum einhverjar ógurleg- ar skyssur. Við dáðum þennan kennara mjög, hann var fyrirmynd okkar í klœðnaði. Hann gekk í glansandi fötum upp á hvem dag. Og svo var hann afskaplega kurt- eis, hann bæði þéraði og þúaði okkur. Þessi elskulegi og kurteisi kennari kenndi okkur móðurmálið, sem allir bera svo ríka og mikla virðingu fyrir í Gaggó. Ýmsar sagnir kom- ust á kreik um þennan kennara, sem álmennt var kallaður Stebbi fíni. Einn strákur, sem kynjaður var að norðan, sagði hann hafa verið þar og hefði hann þar verið uppfullur af þingeyskum hroka og merkilegheitum, en síðan hefði hann farið vestur og glímt þar við fjanda nokkum. Fjandi þessi felldi hann víst á klofbragði. Þá hefði Stebbi lagt niður hrokann og merkilegheitin, en verið síðan fínn og kurteis. Enginn skóli án sjoppu í ná- grenninu var lengi kjörorð kaup- sýslumanna í Rvík. Þessa þjón- ustu kunnu nemendur vel að meta, en hins vegar var hún þymir í aug- um kennaranna. Venja var í skóla þessum, að nemendur hefðu með sér nesti. Það var boðorð, sem mátti ekki brjóta. Nestið átti að vera brauð og mjólk, állt annað var stranglega bannað. Stebbi fíni gekk ríbt eftir, að regla þessi væri haJldin og ef menn voru ekki með nesti, gekk hann að borði þess brotlega og sagði til svona: „Hvers vegna hafið þér ekki með yður. Gleymdurðu því heima?“ Síð- an gerði hann kross í bókina sína, gékk yfir að púltinu og sagði: „Vandrœði með þessa sjoppu þarna á hominu, við kennararnir þurfum að gera eitthvað í þessu máli.“ Árin liðu og við hinir fyrrver- andi nemendur spruttum úr grasi og gengum á tá- mjóum skóm. Við gerðum ýmist að þúa og þéra, stundum hvorttveggja í senn. Hins vegar var ekki jafn fínt og áður að ganga í glansandi buxum með rautt bindi um hálsinn. Svo var það einn dag, að mér verður gengið nið- ur fjölfama götu og kem við í sjoppu til þess að fá mér að reykja. Og innan við borðið var afskaplega elskulegur maður. — Ég sagðist vilja sígareítur og fékk þœr um- yrðalaust, en það kom einhver vandlœtingarsvipur á manninn og þá þekkti ég hann. Þetta var Stebbi fíni. En nú var hann fínni en nokkru sinni áður, í svona fínum, hvítum slopp. Ég gekk út og hugsaði með sjálf- um mér, hve landið ætti gott að eiga sllíka menn, sem gætu starfað að hverju, sem er. En þegar út fyr- ir kom, voru nokkrir unglingar þar í hóp og sungu alþekkta vísu: Stebbi stál, stakk sig á nál, seldi sína sál fyrir eina skyrskál. V entus. Barbara Hutton nálgast nú óðum sextugsaldurinn, og er þess vegna stöðugt sótt heim af ýtnum útgefendum, sem vilja fá hana til að skrifa æviminningar sínar. Þó að maður hugsi bara um öll þau hjónabönd og ástarævintýri, getur maður vart hugsað sér, að þær verði leiðinlegar aflestrar. En Barbara þvertekur fyrir að færa þær í letur. í bréfi, sem hún reit franska útgefandanum Réne Julliard, hefur hún enn einu sinni neitað þessari bón með þessum orðum: „Er mér verð- ur hugsað til fyrri ára, kemur mér allt svo undarlega fyrir sjónir, mér finnst ég hafa glatað öllu, en því eina, sem ég hef ekki glatað, er skartgripasafn mitt, og það er ekki neitt til þess að skrifa um.“ ★ Hinn gamli og góði austurríski veitinga- maður Robert Weiss sker niður steikur og hellir í glös gesta hinu sterka víni á heilsu- bótarkrá sinni Toowoomba, en krá þessi ligg- ur mjög hátt. Hann segir, að því séu engin tak- mörk sett, hvað fólk kaupi. Hann selur t. d. gestum sínum fjallaloft í skömmtum og kostar skammturinn 50 krónur. Þess þarf vart að geta, að skammtarnir hafa runnið út eins og ★ í bók sinni „Ma vie a 300 km/H“ sem er nýlega komin út, segir hinn frægi kapp- aksturssnillingur Juan Man- uel Fangio frá því, er bif- reið hans steyptist um koll á hættulegri beygju, en al- vel við vegarbrúnina voru raðir af mörg hundruð gömlum trjám. Sjálf- ur slapp Juan naumlega lifandi út úr rústun- um. — Þegar hann var dreginn út undan rúst- unum sá hann sér til undrunar, að hann var á sokkaleistunum. Orsökin mun hins vegar vera sú, að í þeim ótta, sem greip hann þegar bíllinn steyptist um koll, hafi hann dregið tærnar svo fast saman, að fæturnir hafi hrokk- ið upp úr skónum. heitar kleinur.

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.