Fálkinn - 27.09.1961, Blaðsíða 22
Fegurðardísimar skála á bamum í Nausti. — Talið frá
vinstri: Birgitte Heiberg, María Guðmundsdóttir, Inger
Lundquist, Margrethe Schauman og loks Ungfrú Norður-
lönd 1961, Rigmor Trengereid.
Ungfrú Finnland stakk upp í sig bita af hákarli, en var
fljót að taka hann út úr sér aftur Það má glöggt sjá á
svipbrigðum hennar, hvemig henni líkaði þessi þjóðar-
réttur okkar!
MEÐ BLAÐA-
MÖNNUM I
NAUSTI
Síðdegis á laug-ardag; var blaða-
mönnum allra Reykjavíkurblað-
anna boðið að sit.ja veizlu með
fegnrðardísum Norðurlanda í
Nausti. Þetta var hin dýrðlegasta
veizla og fegurðardísirnar virtust
skemmta sér vel, að ekki sé
minnzt á sjálfa blaðamennina.
Fegurðardísirnar brögðuðu með-
al annars á íslenzkum hákarli og
likaði ekki sem bezt eins og við
er að búast.
I gær var áætlað að sýna feg-
urðardísunum ýmsa merkisstaði
bæði í Reykjavík og næsta ná-
grenni. — Þær fljúga að lokum
heim með Loftleiðavél á þriðju-
dagsmorgun og vonandi hefur
þátttaka þeirra í fyrstu fegurðar-
samkeppni Norðurlanda orðið
þetoi til gagns og ánægju.
Ungfrú Norðurlönd 1961 gœddi
sér einnig á hákarli og líkaði
hann ögn skár en Ungfrú Finn-
landi. Ekki vildi hún þó fá sér
annan bita.