Fálkinn - 25.10.1961, Síða 3
Stærð ritsins er
64 + 461 bls.
Verð: kr. 200.00
ób., 255 í skinn-
líki, 290.00 í skinn-
bandi.
BLAÐAGREIMR
JÓNS
SH.IHCHSSOWIi
Vikublað. Útgefandi: Vikublaðið Fálk-
inn h.f. Ritstjóri: Gylfi Gröndal (áb,).
Framkvæmdastjóri Jón A, Guömunds-
son. Ritstjórn, afgreiðsla og auglýs-
ingar; Hallveigarstig 10, Reykjavík.
Sími 12210. — Myndamót: Myndamót
h.f. Prentun: Félagsprentcmiöjan h.f.
GREINAR:
Carola, kafli úr skáldsögu eftir
Joan Grant, sem kemur út nú
fyrir jólin. Frú Steinunn S.
Briem hefur þýtt bókina .... Sjá bls. 8
„Það er eitthvað á bak við þetta“.
Rætt við Bjarna Þóroddsson
póstmann, sem verið hefur liðs-
maður í Hjálpræðishernum um
árabil. — Þetta er fyrsta grein
í greinaflokki, sem ber heitið
„Á hvað trúi ég“......... Sjá bls 12
Svipmyndir frá veizlu í tilefni af
afmæli Háskóla Islands að Hót-
el Borg.................... Sjá bls. 20
ÍSLENZK FRÁSÖGN:
Ást og læknisfræði. Jón Gíslason
skrifar þátt um Jón Bergmann.
Myndskreyting: Sigurjón Jó-
hannsson ..................... Sjá bls. 10
SÖGUR:
Hann kölski, snjöll saga eftir
hinn fræga höfund Guy de
Maupassant ................. Sjá bls.
Draumur, sérkennileg saga eftir
Theophile Gauthier.......... Sjá bls. ll^
Njósnarinn, fyrsti hluti nýrrar
og bráðskemmtilegrar fram-
haldssögu eftir kímniskáldið
Mark Twain.................. Sjá bls. 22
Litla sagan .................. Sjá bls. 28
Eins og alkunnugt er flutti Jón Sigurðsson á hinu fyrsta alþingi eftir endur-
reisn þess tillögu um þjóðskóla. Fyrir honum vakti, að hér yrði komið upp
vísi að háskóla, er lagaður væri þörfum þjóðarinnar og aukinn smám sam-
an, svo sem nauðsyn bæri til og föng væru á. Sú hugsjón varð að veruleika
á aldarafmæli Jóns. Því heldur nú Háskóli Islands hálfrar aldar afmæli sitt
þegar 152 ár eru liðin frá fæðingu foringjans inikla.
Það er og alkunnugt, að Jón Sigurðsson barðist af frábærri elju og atorku
fyrir hverju því máli, er hann taldi til hagsbóta og þjóðþrifa horfa. Umbætur
í skóla- og menningarmálum sátu þar sízt á hakanum. Á alþingi, í veiga-
miklum ritgerðum í Nýjum félagsritum og sæg einkabréfa kvaddi hann hljóðs
fyrir hugmyndir sínar og skoðanir og ruddi þeim braut. Hitt hefur legið
meira í láginni, að eftir hann birtist fjöldi greina í íslenzkum og erlendum
blöðum, þar sem hann rökræðir hin margvíslegustu mál af fimni og þekkingu.
Birti hann þær ýmist undir nafni eða kom fram í dulargervi, eftir því sem
honum þótti bezt henta.
Nú hefur blaðagreinum Jóns Sigurðssonar i fyrsta sinn verið safnað á einn
stað og efnt til útgáfu þeirra. Verður sú útgáfa i þrem vænum bindum. Er
hið fyrsta þeirra komið í bókaverzlanir. Hefur Sverrir Kristjánsson sagn-
fræðingur búið ritið til prentunar og skrifað langa og stórfróðlega inngangs-
ritgerð um blaðamennsku Jóns.
Rit þetta varpar um margt nýrri birtu á Jón Sigurðsson og skýrir mynd hins
einstæða þjóðarleiðtoga. Það er mikilvæg heimild öllum þeim, sem kunna
vilja góð skil á endurreisnartímabilinu og íslenzkri þjóðarsögu allt frá 1840
og fram til vorra daga.
GETRAUNIR:
Fjórði hluti verðlaunagetraunar-
innar. Verðlaunin eru glæsileg
Praktica IV. myndavél að verð-
mæti 50000 kr............Sjá bls. 16
Heilsíðu verðlaunakrossgáta. —
Verðlaun 100 kr............ Sjá bls. 29
ÞÆTTIR:
Dagur Anns skrifar um jarðgöng-
in undir Miklubrautina..... Sjá bls. 27
Kvennaþáttur með kökuupp-
skriftum eftir Kristjönu .. Sjá bls. 2Jj
Glens, Pósthólfið, Heyrt og séð,
Astró, Stjörnuspá o. fl.
I NÆSTA RLAÐI VERÐUR M. a.:
Kafli úr væntanlegri skáldsögu eftir nýjan
höfund, Gísla Kolbeinsson, sjómann í Vest-
mannaeyjum, — grein og myndir um kola-
kranann í Reykjavik, — gamansaga eftir
O. Henry, — spennandi saga eftir Relph
Straus, „Herbergið á fjórðu hæð“, — fimmti
hluti verðlaunagetraunarinnar og ótalmargt
fleira.
Bokaiiigáfa Meiiniiigarsiíods