Fálkinn - 25.10.1961, Síða 24
I
Slöngukaka.
2 egg
1 dl sykur
1V2 dl hveiti
1 tsk lyftiduft
Avaxtamauk
Egg og sykur þeytt létt og ljóst,
hveiti og lyftidufti sáldrað saman við.
Hellið deiginu í smurða smjörpappírs-
skúffu. Bakað við 250° í nál. 5 mín-
útur. Hvolft á sykri stráðan pappír.
(Penslað með köldu vatni, þá losnar
kakan auðveldlega úr mótinu). Volgt
ávaxtamauk borið á kökuna með snör-
um handtökum. Kakan vafin upp.
Fatið tæmist óðfluga, þegar Kónga-
horn eru á boðstólum með kaffinu —
reynið það sjálfar.
Kóngahom.
250 g hveiti
125 g smjörlíki
114 dl mjólk
1 egg
V2 tsk salt
1 msk sykur
50 g pressuger eða
3 tsk þurrger + 1 msk volgt vatn
Rúsínur
Gerið hrært út með egginu. Hveiti,
sykri og salti hrært saman við, ásamt
helmingnum af smjörlíkinu (lint) og
það mikilli mjólk, að deigið sé nokkuð
lint. Deigið þakið, geymt á köldum stað
til næsta dags, þegar það er hnoðað og
flatt út. Afgangnum af smjörlíkinu
smurt á deigið og það brotið þrisvar
sinnum saman á hvern kant. Geymt í
10—15 mínútur. Flatt út og skorið með
kleinujárni eins og myndin sýnir, í
þríhyrninga. Rúsínum dreift yfir og
hornin vafin saman frá breiðari end-
anum. Hornin sett á smurða plötu,
smurða með eggi, látin lyfta sér í 15
mínútur. Bakað við 250° í 10 mínútur.
12—15 horn. — Hægt er að útbúa deigið
og baka hornin samdægurs. Þá er
mjólkin höfð ylvolg og deigið geymt
í eldhúsinu, þar til það hefur lyft sér,
annars er aðferðin sú sama.
Rusk.
250 g hveiti
3 tsk lyftiduft
1 tsk sykur
% tsk salt
60 g smjörlíki
1 egg
1 dl súr mjólk
Öllu þessu sáldrað á borð, smjörlík-
ið mulið saman við, vætt í með egginu
og súru mjólkinni. Deigið hnoðað sem
minnst, úr því mótuð lengja, sem er
mótuð svo að hún verði ferköntuð. —
Lengjan skorin í 8 sneiðar. Notið beitt-
an hníf. Sett á smurða plötu. Smurt
með mjólk. Bakað við mikinn hita,
250—275° í 8 mínútur. Ruskin klofin,
borin fram með smjöri.
Ýmsar
upp-
skriftir