Fálkinn - 25.10.1961, Síða 35
að hann væri orðinn leiður á henni og
hefði beint mætti sínum að einhverri
annarri stjörnu, eins og myndhöggvari,
sem finnur galla í marmara sínum, leit-
ar uppi annan st'ein, sem samboðnari er
leikni hans.
í bernsku hafði ég líka þekkt dýrlega
veru, sem talaði stundum við mig, með-
an ég svaf. Árum saman hafði ég ekki
munað eftir henni, en nú vissi ég stund-
um, þegar ég vaknaði á morgnana, að
ég hafi verið í félagsskap hennar, enda
þótt ég myndi það ekki greinilega. En
þrátt fyrir allt gat ég ekki skilið, hvers
vegna ég hafði fæðzt sem dvergur, þang-
að til mig dreymdi undarlegan draum,
sem kenndi mér, að til er sannleikur
í þessum ’heimi, sem menn á okkar tím-
um vita ekki um.
í draumnum sá ég sjálfan mig ganga
eftir þröngum stíg, sem lá yfir mýri á
upphækkaðri braut, og þessi stígur
sveigðist hvorki til hægri né vinstri,
heldur lá þráðbeint alla leið útað sjón-
deildarhringnum. Á eyju í mýrlendinu
stóð marmaraturn, og frá honum heyrð-
ist hljómlist, er lét vel í eyrum mínum.
Við fætur mína sá ég grænan stíg, sem
lá niður af upphækkuðu brautinni og í
átt til turnsins. Ég gekk eftir stígnum,
þar til ég kom að turninum. Dyrnar
voru lokaðar, en ég opnaði þær og lok-
aði þeim með slagbröndum á eftir mér.
Ég gekk upp hringstigann, sem fyrir
innan var, og birta kom innum mjóa
glugga á veggnum. Gegnum þá gat ég
séð upphækkuðu brautina, er bar uppi
stíginn, sem ég hafði farið eftir áður.
Ég setti hlera fyrir gluggana, svo að
ekkert gæti minnt mig á ferð mína.
Sú stund rann upp, er mig langaði
ekki að dveljast lengur í turninum, þó
að hún, sem lokkað hafði mig með rödd
sinni, væri töfrandi fögur, og ég bjóst
til að yfirgefa hana og snúa aftur til
vegarins, sem ég hafði farið út af. En
slagbrandarnir voru orðnir ryðgaðir, og
ég gat ekki opnað dyrnar. Sömu sögu
var að segja um hlerana fyrir gluggun-
um; þá gat ég heldur ekki hreyft. Ég
h'ljóp aftur upp í herbergið, en það var
mannlaust ■— og ég var aleinn og ótta-
sleginn.
Lengi hélt ég áfram að berja á lok-
aðar dyrnar, þar til hendur mínar voru
orðnar marðar og blóðugar. Þá fann ég
allt í einu glugga efst í turninum, en
hann hafði ég ekki séð fyrr. Hann var
hleralaus, og hann var svo hátt uppi
yfir jörðinni, að ég gat séð marga ferða-
langa gangandi eftir upphækkuðu braut-
inni. Stundum sá ég einhvern fara út
á stíginn, sem lá að turninum mínum;
cg bráði heitt, að hann kæmi og frels-
aði mig, en ég vissi, að ég yrði að kalla
til hans, að hann skyldi snúa aftur og
halda áfram leiðar sinnar í stað þess að
lenda í fangelsinu hjá mér. Það var
erfitt að vara þá við, því að turninn var
svo 'hár og þeir langt í burtu, en 'hver
af öðrum heyrðu þeir til mín og sneru
við.
Framhald á bls. 36.
*
*
&
*
*
*
&
*
&
3f
3f
&
3f
Jf
&
*
&
5f
Jf
&
5f
3f
&
5f
-IX
3f
3f
)f
3f
-ÍX
*
&
)f
&
%
*
Hrútsmerkitt (21. marz—20. apríl).
Varla munuð þér komast hjá því að vera svolítið umtalaðir
í þessari viku, en þér skuluð ekki setja þet.ta slúður fyrir yð-
ur og þess vegna skuluð þér ekki æðrast, þótt móti blási um
stund, því að innan tíðar mun þessi rógur hjaðna niður eins
og hver önnur bóla. Ef til vill munuð þér finna í þessari
viku, hvað ástin er í raun og veru.
Nautsmerkið (21. apríl—20. maí).
Bráðlega munuð þér fá frá óvæntum aðila upplýsingar,
sem munu koma yður að miklu gagni. En samt sem áður skul-
uð þér ekki nota yður þær st,rax, heldur geyma þær um stund
og spila svo út þessum trompum á réttu augnabliki. Fremur
mun vikan vera tíðindalaus fyrir yður, en eitfhvað mun þó
gerast undir vikulokin.
TvíburamerkiS (21. maí—20. júní).
Ef þér hamrið járnið meðan það er heitt og notfærið yður
út í yzt.u æsar þau tækifæri, sem yður gefast, þá mun yður
verða mikið ágengt. Hins vegar verðið þér að gæta tungu
yðar, því að hvöss tilsvör eru aldrei ýkja vinsæl og fæst orð
hafa minnsta ábyrgð. Það, sem þér ætlið að fara að læra, mun
verða yður að gagni.
Krabbamerlciö (21. júní—20. júlí).
Þér ættuð að hvíla yður svolitið fyrstu daga vikunnar og
láta það yður litJu skipta, þótt þér verðið að gefa ýmsar ráða-
gerðir upp á bátinn um sinn. Stjörnurnar segja, að yður sé
nauðsyn á hvíld og yður veitti ekkert af því að hvílast svo-
lítið. Getið þér þá tekið til við áhugamál yðar siðar.
Ljónsmerkiö (21. júlí—21. áffúst).
Þér þurfið mikið að taka yður á, þér eruð of latir og of
tillitslausir við vini og kunningja. Margir hafa talið yður á
að taka verk nokkurt að yður.sem þér skuluð hlifðarlaust. neita
að gera, enda þótt kennt verði um letinni í yður, það býr
nefnilega eitt.hvað undirförult á bak við.
Jómfrúarmerkiö (21. áffúst—22. sept.).
Svo virðist sem yður hafi leiðzt mikið upp á síðkastið. En
leiðindi þessi munu brátt hverfa og þér munuð fyllast bjart-
sýni á lífið og tilveruna. Og með bjartsýnum hug og nýjum
og endurbætt.um krafti munuð þér vinna yður í álit. Bréf frá
útlöndum mun koma yður talsvert á óvart.
Vogarskálamerkiö (23. sept.—22. okt.).
Þess er bráðlega að vænta að þér lendið í mikilli klípu innan
fjölskyldu yðar. En hún hefur líka ýmislegt upp á yður að
kvarta og mun krefjast mikils af yður, þegar fram líða stund-
ir. Ákveðið starf, sem þér hafið lengi ætlað að taka að yður,
mun gefa af sér góðan arð.
Sporðdrekamerkiö (23. okt.—22. nóv.).
Fyrst undir vikulokin mun eitthvað fara að gerast. Nokkr-
um vandamálum mun skjóta upp, en þegar þau eru að korn-
ast á hæsta stig munu þau leysast undursamlega að allra
dómi. Fjárhagslega séð mun vikan verða nokkuð góð, og þér
munuð að öllum líkindum geta fengið einhverja launahækkun.
Bogmannsmerkiö (23. nóv.—20. des.).
Svo lítur út fyrir.að þérmunið lenda í allskemmtilegum ævin-
týrum, sem yður hefur aldrei dreymt um að lenda í. Þessa
dagana munuð þér verða í sjöunda himni yfir velgengni yðar,
enda er útlit fyrir að vegur yðar aukist enn. Hins vegar skul-
uð þér gæta yðar á ljóshærðum manni, hávöxnum.
Steingeitarmerkiö (21. des.—19. jan.).
Vissulega er engin ástæða til þess að vera með minnimátt.-
arkennd. Og ættuð þér strax að láta af þessari vitleysu, því
að þetta getur orðið yður að miklu ógagni í framtíðinni. Brát.t
munuð þér fá óskir yðar flestar uppfylltar og þér eigið i
vændum rikulega viðurkenningu fyrir vel unnin störf.
Vatnsberamerlciö (20. jan.—18. febr.).
Ef þér sýnið iðni og dugnað, er enginn vafi á því að yður
verður ríkulega launað. Samt munu ekki hljótast af þessu
beinar tekjur, en þetta mun bæta fjárhag yðar að nokkru.
Þér skuluð þrátt fyrir þessa bót ekki láta skeika að sköpuðu,
hvað snertir fjármálin.
Fiskmerkiö (19. febr.—20. marz).
Þér þurfið nú þegar að láta til skarar skríða í málum, sem
snerta einkalíf yðar. Loftið er lævi blandið og innan tíðar
mun svolitið gerast, sem mun koma róti á hug yðar. Annars
mun hugmynd, sem þér hafið lengi haft í huga, komast í
framkvæmd. Happatala yðar er 9.
FALKINN
35