Fálkinn - 25.10.1961, Síða 36
Það er eitthvað •. •
Frh. af bls. 1S
„Er mikið um það að menn gangi í
herinn upp á síðkastið?“
„Ekki get ég nú sagt það. Mér virðist
hann heldur vera í stöðnun. Ég var nú
til dæmis á ferðalagi í útlöndum í
sumar og mér fannst hann heldur vera
í stöðnun. í Danmörku eru til dæmis
ekki nema 200 foringjar þar sem aft-
ur á móti um 900 eru í Noregi."
„Er mikið um það að aðrir trúar-
flokkar reyni að krækja í safnaðar-
meðlimi hjá ykkur í Hernum?“
„Lítið er nú um það. Hvítasunnu-
menn hafa reynt að ná í nokkra, en
þeim hefur orðið ósköp lítið ágengt. Það
voru aðeins fáeinar sálir sem skiptu
um trúflokk, en þetta er svo langt síð-
an, að þeir gerðu þetta, að því tekur
varla að fara að minnast á þetta.“
„Hefur það aldrei komið fyrir, að
reynt hefur verið að gera sprell og at
á Hjálpræðisherssamkomum?“
„Það kemur sára sjaldan fyrir, helzt
eru það svona strákapjakkar, en við
erum vanir að láta það sem vind um
eyrun þjóta. Og þá hætta þeir því strax.
Menn reyndu nokkuð hér áður fyrr að
gera at í Hernum, en það fór allt sam-
an af, þegar hann fór að festa hér ræt-
ur og fólk vandist honum.“
„Er þá sögnin um engladans helber
uppspuni?“
„Þetta var bara tóm vitleysa og ekk-
ert annað, það hefur aldrei verið neinn
engladans til.“
„Haldið þér að Hernum muni vaxa
fiskur um hrygg á komandi árum?“
„Maður veit nú aldrei, en sæðinu
hefur verið sáð og tíminn mun leiða í
ljós hvernig okkur hefur vegnað.“
„Hefur Hernum annars ekki vegnað
vel hér á landi?“
„Jú, fremur vel, hann hefur stöðvar
víða um land og hefur hjálpað mörg-
um. Hann er til dæmis víða vel metinn
af sjómönnum, því hjá honum fá þeir
ódýra og góða gistingu. Hjálpræðisher-
inn er og vel metinn í öðrum löndum,
t.d í Þýzkalandi og víðar fyrir ágæta
hjálp við flóttamenn og aðra, sem bágt
eiga. Svo sagði mér þýzk kona úr Hern-
um, sem ég hitti á ferðalagi erlendis
fyrir skömmu.“
Við beindum nú samtalinu inn á aðr-
ar brautir og fórum að ræða um alvar-
lega hluti. uppeldi æskunnar í guðsótta
og góðum siðum, áfengisnautn íslend-
inga og annarra.
„Herinn bannar að vísu ekki áfenga
drykki, og er mjög á móti þeim. Og
ég hef verið fyrir mitt leyti ákaflega
heppinn, hvað þessi mál snertir. Börn
mín hafa alizt upp með andúð á áfeng-
urri drykkjum og þykir mér mjög vænt
um að þau hafa ekki fallið fyrir freist-
ingum Bakkusar. Þetta get ég óbeint
36 FÁLKINN
þakkað veru minni í Hernum, því að
þar hafa allir mikla óbeit á víni.
„Trúið þér á helvíti og eilífa útskúf-
un eða gagnstæðuna, sæluríki eftir
dauðann.“
„Já, en ég trúi á það, að menn lendi
ekki í brennisteini og ógurlegum loga
og þar brenni þeir, Þetta er allt saman
líkingamál."
„Er þá einhver styrkur í trúnni?“
„Manninum er alltaf styrkur í að trúa
á eitthvað. Honum er það blátt áfram
nauðsynlegt. Ég trúi ekki öðru en þetta
helvíti sé bara samvizkubit í öðru lífi.
Maður sem ekki hefur iðrazt synda
sinna hérna megin, hann hlýtur að
taka út sömu kvalirnar þar og á jarð-
ríki. Ég er sannfærður um það,
að trúaður maður á alltaf kost á ein-
hverju. Og eftir því sem árin líða, verð
ég alltaf vissari um það, að það er eitt-
hvað á bak við þetta allt saman.“
SveTom.
CAROLA
Frh. af bls. 35
Ánægjan óx innra með mér, unz hún
fyllti hjarta mitt, því að nú var ég ekki
lengur fangi í háum turni, heldur vörð-
ur, sem gætti 'ljóss í vita. Og dag einn
sá ég, að allir gluggarnir voru opnir og
dyrnar stóðu galopnar upp á gátt — ég
var frjáls.
Þegar ég vaknaði, vissi ég, hvers vegna
ég var fæddur sem dvergur. Ég vissi, að
það var ekki Guð, sem hafði gert mig
að fanga, heldur var líkami minn hús,
er ég hafði byggt með eigin höndum.
Þegar sú stund kæmi, að ég hefði lært
að vera ánægður, myndi þessi byrði
falla af herðum minum. Og teinréttur
myndi ég halda áfram leiðar minnar á
hinum langa vegi.
í söngvum fuglanna og í storminum,
í andvaranum, sem hvíslaði í háu korn-
inu, og í niðandi lækjunum heyrði ég
nú rödd Guðs. Þegar hrokinn, óttinn og
blygðunin sleppti tökum á mér, sá ég,
að Guð er lífið, og allt, sem lifir, er Guð.
Ungt grasið er blíða hans og svifhá espi-
trén þrá hans, uxarnir eru þolinmæði
hans og árnar gjafmildi hans.
Ég fór út í skógana og fann samband
mitt við hann í himneskri sameiningu.
Ég var t.réð, sem breiddi út greinar sín-
ar til að umfaðma vindinn; ég var brum-
ið á svartþyrninum, sem opnaði sig fyrir
ungum morgninum; ég var moldvarpan,
sem gróf sér göng gegnum hlýja jörð-
ina til að gera sér hreiður í umvefjandi
myrkrinu. Ég var fjörugur sem dreka-
fluga og rólyndur eins og regndropi á
laufblaði. Þótt ég væri dvergur, var ég
Guð, og þegar ég hrópaði nafn mitt til
himnanna, bergmáluðu vínviðirnir og
spörfuglarnir, pílviðartrén og uxarnir:
„Og ég! Og ég!“ ★
DRAIJIVILR
Frh. af bls. 19
— Frá hvaða landi eruð þér, og hvað
eruð þér gamall? spurði hann.
— Ég er frá Frakklandi og er 27 ára
gamall, virðulegi Faraó.
— Hann er 27 ára gamall og vill
ganga að eiga Hermonthíu prinsessu,
sem er þrjú þúsund ára gömul, hrópuðu
allir konungarnir í hásætunum og þjóð-
flokkarnir að baki þeirra.
Hermonthía sjálf var sú eina, sem
virtist sjá eitthvað vit í beiðni minni.
— Ef þér væruð — ja, þótt þér vær-
uð ekki nema tvö þúsund ára, skyldi
ég með ánægju gefa yður prinsessuna,
sagði Faraó. En þetta er of mikill ald-
ursmunur. Þar að auki verðum við að
gifta dætur okkar þeim mönnum, sem
einhver ending er í, og nú kunnið þið
ekki framar að varðveita líkama ykk-
ar. Þeir sem dóu fyrir einum fimmtán
öldum, eru nú þegar orðnir að dufti.
Sjáið! Líkami minn er haldgóður sem
steinn og bein mín eru eins og stengur
úr stáli gerðar. Á efsta degi mun ég
ganga fram í hinum sama líkama og
með sömu andlitsdrætti og ég hafði
meðan ég lifði á jörðinni.
Og Hermonthía dóttir mín mun end-
ast lengur en nokkur myndastytta úr
bronsi. En þá mun duft yðar rokið út
í veður og vind, svo að jafnvel Isis
sjálf, sem gat tínt upp partana úr Osir-
is, mundi tæplega vera þess megnug að
safna yður saman í heild. Finnið hví-
líkur kraftur er í mér ennþá .. .
. . . og Faraó tók í hönd mér og kreisti
hana svo fast að ég vaknaði.
Þetta var þá Alfreð, kunningi minn,
sem hélt í handlegginn á mér og hristi
mig óþyrmilega.
— Ó, þú synduga svefnpurka, sagði
hann. •—• Þarf ég að bera þig út á götu
og sprengja púðurkerlingar í eyrun á
þér, svo að þú vaknir. Það er komið
fram yfir nón Manstu ekki, að þú lof-
aðir að koma mér á þesga spænsku
málverkasýningu í dag?
— Hamingjan góða því var ég al-
veg búinn að gleyma, hrópaði ég og
klæddi mig í einu vetfangi
— Aðgöngumiðarnir eiga að liggja hér
einhvers staðar á borðinu mínu. Ég fór
nú að róta til á borðinu og leita að
miðunum.
En hugsið yður, hvernig mér varð
við, þegar ég sá, að múmíufóturinn var
horfinn. Ofan á blaðaruslinu lá græna
leirmyndin af Isis, sem Hermonthía
prinsessa hafði skilið eftir um nóttina.
„Ef þú vilt verða góður söngvari,
skaltu æfa þig á sérhljóðunum með
munninn fullan af smá steinum”.
„Ég gerði það áðan úti á götu, en
þá fékk ég allt í einu ofboðslegan
hósta og braut 6 gluggarúður.”