Fálkinn - 08.11.1961, Blaðsíða 12
Áður en
Á fáum sviðum hafa orðið jafn stór-
stígar og örar framfarir og í veitinga-
málunum. Hér í Reykjavík er nú
fjöldi nýrra og smekklegra veitinga-
húsa semi jafnast á við það sem bezt
gerist á erlendri grund. Flestir les-
endur þekkja að líkindum veitinga-
húsin eins og þau líta út, þegar starf-
semi þeirra er í fullum gangi: Leik-
ur hljómisveitarinnar ómar og gestir
gera ýmist að svífa í dansi, snæða
ríkulega máltíð eða rabba við kunn-
ingjann á barnum. Hvarvetna er ys
og þys. En það er ekki víst að allir
hafi séð veitingahús, áður en gestirn-
ir koma, — þegar starfsfólkið er í
óða önn að undirbúa kvöldið. FÁLK-
INN brá sér þess vegna snöggvast
inn í eitt hinna nýju veitingahúsa,
Klúbbinn við Lækjarteig, til þess að
gefa lesendum kost á að kynnast
þessu. Svo vel vill til, að einmitt um
þessar mundir er eitt ár liðið, síð-
an Klúbburinn hóf starfsemi sína. —
Á þessari opnu gefur að líta ýmsar
svipmyndir af starfsfólkinu, þar sem
það keppist við undirbúningsstörfin,
svo að allt sé til reiðu, þegar gest-
irnir koma.
Myndin hér til vinstri er af forstjóra
Klúbbsins, Birgi Árnasyni.
Á myndinni þar fyrir neðan er yfir-
þjónninn, Þórarinn Flygenring að
líta yfir matseðil kvöldsins.
Myndin hér að neðan: HaraldUr Tóm,-
asson barþjónn skenkir í glös fyrir
fyrstu gesti kvöldsins.