Fálkinn - 29.11.1961, Blaðsíða 27
n
ýmaówia
Nýru eru það kjötmeti, sem
er tiltölulega ódýrt núna, rúm-
lega 22 kr. kg., og því sjálf-
sagt að nota það. Nýru hafa
sitt sérkennandi bragð, eins og
lifui. Ýmsum fellur það vel,
öðrum miður, en bragðið má
deyfa með því, að láta nýrun,
er þau hafa verið hreinsuð,
liggja í nægu ediksvatni í 15
—20 mínútur, og sé suðunni
hleypt upp á þeim, hverfur
bragðið alveg.
Nota má bæði lamba, kálfa,
nauta- og svínsnýru, en hér
á landi eru það einkum lamba-
nýru, sem notuð eru. Eins og
áður er sagt, þá eru þau til-
tölulega ódýr, auk þess þarf
tiltölulega lítið af þeim, þar
eð þau eru bezt blönduð
með grænmeti, hrísgrjónum,
makkaróni eða lauk.
Nýru eru nokkuð auðug af
B-vitamíni og járni. Þegar þau
eru hreinsuð, er himnan, sem
hylur þau fjarlægð og þau
klofin.
Sé ætlunin að útbúa nýrna-
smásteik, eru nýrun skorin í
þunnar sneiðar, sem velt er
upp úr hveiti, sem í er bland-
að salti og pipar. Steikt við
frekar mikinn hita í smjörlíki
eða annarri feiti, þar til allur
vökvi 'hefur gufað upp úr
þeim. Þetta tekur dálítinn
tíma, og á meðan hreinsum
við 4—5 litla lauka og gulræt-
ur. Gulræturnar eru skornar
í sneiðar, en laukarnir hafðir
heitir. Sett í pott ásamt nýr-
unum. Vatn látið á, þó ekki
meira en svo, að það hylji tæp-
lega matinn. Soðið við hægan
eld í Vi klst., og þá er aðeins
eftir að bragða á matnum,
krydda hann meira, ef þörf
gerist.
Hellt á fat og mikið af' sax-
aðri steinselju stráð yfir, einn-
ig er gott og faliegt að skreyta
réttinn með þunnum, steikt-
um baconsneiðum. Góðar,
hrærðar kartöflur bornar
4 egg
2 msk. smátt sax-
aður laukur,
2 soðnar kartöflur
1 msk. smjörlíki
eða smjör
Salt, pipar
Afgangur af soðnu
grænmeti, kjöti,
hangikjöti,pylsu
o. s. frv.
ðð(
Laukurinn hitaður á pönnu
í feitinni, ásamt kartöflun-
um, sem skornar eru í fer-
kantaða bita, má þó ekki
brúnast.
Eggin þeytt með kryddinu
og kjötinu, sem er saxað.
Eggjunum hellt yfir laukinn
og kartöflurnar, þegar það er
nægilega steikt. Látið stífna við meðalhita. Stingið
í eggin með gaffli, svo að þau stífni jafnar. Eggja-
kökunni rennt yfir á fat og brotin saman. Rifnum
osti og sinnepi eða öðru grænu, ef til er, stráð yfir.
FALKINN
27