Fálkinn - 04.04.1962, Page 4
INlína og Friðrik farin að syngja aftur
Nína og Friðrik, hið vinsæla danska söngpar, eru nú aftur farin
að syngja opinberlega. Ungi sonurinn þeirra, Nicolas Ali, er að
sjálfsögðu hafður á barnaheimili á meðan. Myndin hér að ofan er
tekin í London, þar sem þau koma fram á hinu árlega Royal Variety
Show, þar sem fjölmargt konungborið og tigið fólk er jafnan meðal
áheyrenda. Á þessari sýningu koma eingöngu fram fyrsta flokks
listamenn, svo að þeim hjónum hefur verið sýndur ærinn sómi með
því að fá að syngja þarna.
Gefið börnunum yðar sleikjubrjóstsykur!
Kunnur sálfræðingur, Edward Podolski að nafni, fullyrðir að of
lágt sykurinnihald blóðsins geti haft þær afleiðingar, að dómgreind
manna sljóvgist og sömuleiðis eigi menn erfitt með að hafa rétta
stjórn á hreyfingum sínum ef þá skorti sykur í blóðið. í alvarlegasta
tilfelli af sykurskorti geta menn hreinlega misst vitið, segir sálfræð-
ingurinn. Eitt merki þess, að sykurinnihald blóðsins sé að minnka
og verða ískyggilega lágt er það, að fólk — bæði börn og fullorðið —
er sýknt og heilagt að stela sér sykurmolum og yfirleitt öllu, sem
einhver sykur er í.
— Gefið þess vegna barni yðar sleikjubrjóstsykur, ef það er
óþægt, segir sálfræðingurinn að lokum.
Hitt og þetta
Maður sem nær meðalaldri setur ofan í sig um 150 tonn af mat
og drykk, eða um það bil 2000 sinnum sína eigin þyngd. — Sam-
kvæmt nýlegum skýrslum eru að meðaltali á ári hverju í Englandi
250 brúðgumar 80 ára og eldri — og sex yfir nírætt..— Áfengið er
sá af óvinum mannsins, sem hann á auðveldast með að elska. —
Fullkomlega hamingjusamur er sá maður, sem getur gleymt brúð-
kaupsdegi sínum hvað eftir annað, án þess að fá orð í eyra fyrir.
Tveir miklir menn
verða brátt 87 ára
gamlir. Það eru þeir
Sir Winston Churchill
og SomersetMaugham.
Ekki er hægt að telja
þá til spjátrunga, en
þeir hafa gaman af að
halda hátíðlega afmæl-
isdaga.. Ekki alls fyrir
löngu, þegar þeir hitt-
ust við frönsku Miðjarðarhafsströndina sagði
Somerset Maugham: — Á síðasta afmælis-
degi mínum fékk ég 500 heillaóskaskeyti.
— Hm, sagði Sir Winston, ég fékk 30 þús-
und, og það kenndi stolts í röddinni. En hvað
mundi gamli maðurinn segja, ef hann fengi
að vita, að hinn ungi landi hans, rokksöngv-
arinn, Cliff Richard, fékk 35 þúsund heilla-
óskaskeyti, þegar hann varð 21 árs?
★
Groucho Marx hélt
nýlega fyrirlestur um
sögu bifreiðárinnar í
bandarískt sjónvarp
og meðal annars las
hann upp kafla úr
læknablaði um það
leyti, sem fyrstu bif-
reiðarnar voru að
koma á markaðinn.
Kaflinn hljóðaði þann-
ig: ■—- Ef þessi vél, kemst nokkru sinni hrað-
ar en 120 km. á klukkustund, sem er mjög
lygilegt, þá verður hún að stjórna sér sjálf,
því að mannsheilinn mun ekki vera fær um
að stjórna henni.
— Þetta er, sagði Groucho Marx, einn
sannasti spádómur, sem nokkru sinni hefur
birzt í heiminum.
★
Þjóðverjar eru afar
hreyknir af því, að
nú hefur verið gerð
vaxstytta af Ludwig
Erhard, þeim manni,
sem gerði „þýzka
kraftaverkið11. Vax-
styttunni hefur verið
komið fyrir í hinu
fræga vaxmyndasafni
Madame Tussauds í
London.
Stofnunin hefur að vísu haft nokkra Þjóð-
verja í sölum sínum, en þeir hafa allir verið
fluttir í „hryllingsklefann“. En hinn digri
efnahagsmálaráðherra hefur fengið stöðu í
fína herberginu, þar sem hann getur bæði
kinkað kolli til Churchills og Roosevelts.
4 FÁLKINN