Fálkinn - 04.04.1962, Blaðsíða 25
lega stórt að vísu, en áreiðanlegt, og
hefur mikla reynslu, sérstaklega í fram-
leiðslu hjartalyfja.
Gabrielu leið illa. Hvernig hafði hann
fengið vitneskju um að Julian fengizt
við að finna upp lyfið? Var það í raun
og veru satt, að hann læsi fagtímarit?
Það fannst henni mjög ósennilegt.
Hins vegar hafði Julian nokkrum sinn-
um talað um hjartalyfið sitt. Og fyrst
í raun og veru var til fyrirtæki, sem
hafði hug á. að framleiða lyfið.......
Hvað átti hún að segja?
— Hvernig svo sem yður lízt á málið,
heyrði hún prinsinn segja, — þá vildi
ég biðja yður um, að nefna það ekki
einu orði við mann yðar, að það hafi
verið ég, sem stakk upp á þessu. Ég
skil það á þögn yðar, að þér hafið ekki
áhuga á þessu, og ég vil alls ekki eyOi-
leggja neitt fyrir vini mínum. Maður
yðar getur jú sjálfur auðveldlega sett
sig í samband við þetta fyrirtæki.
Gabriela tók hanzkana sína og veskið
og stóð á fætur. Auðvitað yrði þetta
bezta lausnin. Julian gat sjálfur haft
samband við verksmiðjuna.
— Ég vona, að þér hafið mig afsak-
aða, en ég þarf að fara heim núna, sagði
hún stuttlega. — Þakka yður fyrir
hugulsemina.
Á leiðinni út úr kaffihúsinu, sem nú
var orðið fullt af fólki, flugu alls konar
hugsanir um hug hennar. Hohenperch
var að sjálfsögðu á höttunum eftir pró-
sentum. Ef til vill hafði hann skipulagt
þetta mót þeirra? Hefði hún átt að vera
alúðlegri við hann? Julian var dugleg-
ur lyfjafræðingur og sennlega stór-
kostlegur uppfinningamaður, en á við-
skiptafræði bar hann ekkert skynbragð.
Ef til vill þurfti hann aðeins ofurlitla
hjálp á því sviði. Það mundi vissulega
verða dásamlegt, ef þetta gæti komizt
farsællega í kring. Þetta gat haft mikla
þýðingu bæði fyrir hana og Julian og
fyrir framtíð þeirra. Þá gætu þau
verið alveg óháð apótekinu og Bettinu.
Þau gætu kannski rðið rík með tíman-
um.
Ef til vill átti hún að hringja til
Hohenperch og ákveða að vinur hans
setti sig heldur í samband við Juli-
an ....
Hún flýtti sér heim á leið.
Klukkan sló sjö í kringum Tiibingen
og um það bil hálfa mínútu hljómuðu
klukkuslögin yfir litla bæinn. í horn-
glugganum á stóru stofunni stóð Gabri-
ela og leit niður á götuna.
Fyrir tveimur tímum síðan hafði Ju-
lian farið á stefnumót í Gulleyjunni.
Hvers vegna var hann svona lengi?
Allan daginn hafði Gabriela kvalizt af
nagandi óróleika og hún vissi af hverju
hann stafaði. Það var vegna bréfsins
frá Zynthia. Hún hafði satt að segja
gleymt nafninu á fyrirtækinu þegar
Julian kom æðandi inn í eldhúsið til
hennar um morgunnin og var allur
eitt sólskinsbros. Hann veifaði bréfinu
framan í hana.
Frh. á bls. 33.
FALKINN 25
úr stólnum við hlið sér og lagði það á
borðið.
Hohenperch dró stólinn fram, sett-
ist og stundi. Öll framkoma hans og
útlit báru vott um fyllstu kurteisi og
riddaramennsku. Hann fór að tala og
orðin streymdu af vörum hans. Hann
sagði ofurlitlar skrítlur og einnig
minntist hann á umferðarslys, sem
hann hafði nærri því orðið sjónarvottur
að þarna rétt hjá torginu.
Hægt og nærfærnislega nálgaðist
prinsinn efnið:
Er yður í raun og veru ljóst, að
þér eruð giftar mjög mikils metnum
manni, spurði hann skyndilega. — Dr.
Brandt hefir fundið upp nýtt hjarta-
meðal og hefur þegar getið sér gott
orð meðal þeirra, sem vit hafa á slík-
um hlutum. Hin vísindalegu fagblöð
er mér sagt að hafi fjallað um hann
og lyf hans mjög lofsamlega.
—- Ég vissi ekki, að þér hefðuð áhuga
á lyfjafræði, svaraði Gabriela þurrlega.
—- Ég verð raunar að játa, að ég hef
ekkert vit á atvinnu mannsins míns.
Hún er mér sem lokuð bók.
— Það var skaði. Það var mjög mik-
ill skaði, sagði Hohenperch og lét ein-
glirnið falla. —- Ég vil tala hreinskilnis-
lega og heiðarlega við yður, frá Brandt.
Eins og þér ef til vill vitið, þá erum
við, ég og maðurinn yðar, ekki sem
beztir vinir. Við lentum í ofurlítilli
rimmu, skiljð þér.......Nú jæja. ....
Prinsinn bandaði frá sér, eins og þetta
væri varla umtalsvert og hélt síðan
áfram:
— Þannig er mál með vexti, að ég á
kunningja, sem er forstjóri Zynthia,
og ég er að vetla því fyrir mér, hvort
það væri ekki hagkvæmt fyrir mann
yðar að gera samning við fyrirtækið.
Þetta er mjög traust fyrirtæki, ekki sér-