Fálkinn - 04.04.1962, Blaðsíða 37
□TTD — BARDAGINN UM ARNARKASTALA
„Ekkert kemur eins vel rifrildi af stað og fjárhættuspil“,
hugsaði Ottó. „Það er bezt að sjá, hvort ég get fengið þá
í teningaspil". Hann lét glamra í mynt, um leið og hann
nálgaðist varðmennina. „Það er leiðinlegt að hanga svona“,
sagði hann. „Við getum látið timann líða skemmtilega, ef
þið hafið tening.“ Mennirnir litu tortryggnislega á hann.
Þeir höfðu ströng fyrirmæli um að gæta riddarans mjög
vel.En þeir gátu ekki staðizt þessa freistingu. Annar þeirra,
sá eldri, glotti slægðarlega. „Allt í lagi, ókunni maður, ef
þú mátt sjá af fénu, þá höfum við teningana.“ „Og reyndu
engin brögð við okkur“, sagði félagi hans og beindi sverði
sínu að honum.
Ekki leið á löngu, unz þeir voru alveg búnir að gleyma sér
við spilið. Ottó beindi hins vegar allri athygli sinni að mönn-
unum. í fyrstu unnu þeir sitt á hvað, en brátt tóku guii-
peningarnir að hrúgast upp fyrir framan þann eldri. Ottó
tók strax eftir því, að hann hafði rangt við og hann beið
eftir hentugu tækifæri til að benda hinum á svindlið.
„Þrettán, ekki svo slæmt“, muldraði yngri vörðurinn, og
leit um leið á Ottó. Ottó horfði beint í augun á honum, en
leit svo snöggt yfir á hinn, sem var búinn að taka upp
peningana og var að hrista þá. Þá kom félagi hans auga á
svindlið og hljóp upp og ásakaði félaga sinn um að hafa
rangt við. Þetta var það, sem Ottó hafði beðið eftir. Hann
beygði sig og fór frá, náði í teppi, sem hékk þarna. Síðan
sneri hann sér leiftursnöggt við og sveipaði teppinu yfir
rifrildisseggina.
Ottó var ekki lengi að binda þessa verði og kefla þá. Þeir
voru ekki lengur tálmi á vegi hans. Ottó leit varlega út um
tjaldskörina. Alls staðar ríkti þögn í tjaldbúðunum. Hann
glotti, þegar hann hugsaði um hvernig Fáfni yrði við, þegar
hann kæmi að tjaldinu morguninn eftir. Bara að Fáfnir
kæmi ekki of snemma. Ottó mátti engan tima missa. Hann
skreið út í myrkrið. Hljóðlega læddist hann á hnjánum
um tjaldbúðirnar og loks kom hann að tjaldi Fáfnis. Hann
skreið varlega upp að því og hleraði...
FALKINN
37