Fálkinn - 18.04.1962, Blaðsíða 38
xX.i cr vor ...
Frh. af bls. 19
hvað sé hægt að gera, ef menn iðrast
þess að hafa látið tattóvera sig. Er hægt
að ná myndinni af?
— Já, svarar Ole. — Við hér í Kaup-
mannahöfn höfum fundið upp sérstakt
efni, sem fjarlægir myndina fullkom-
lega. Það kostar 60,00 krónur og menn
þurfa að koma nokkrum sinnum, áður
en hún hverfur alveg. Þó ber þess að
geta, að einungis er hægt að ná af ný-
legum tattóveringum, eða þeim, sem
ekki eru stungnar dýpra en 0,25 m .m .
í gamla daga var allt gert í höndunum
og þá var stungið miklu dýpra. Það er
mjög erfitt að ná þeim af, og heppnast
ekki nærri því alltaf.
Mér dettur í hug ofurlítil saga í þessu
sambandi. Sænsk kona, 74 ára að aldri,
hafði á sínum ungdómsárum látið
tattóvera heilan lögregluþjón á hand-
legginn á sér. Nú stendur þannig á fyrir
henni, að hún verður að fara á elli-
heimili, en getur ekki hugsað sér að
fara þangað fyrr en „hann“ hefur verið
fjarlægður. Ég er að hjálpa henni þessa
dagana að afmá vörð laganna. Hún
hefur komið þrisvar sinnum og á eftir
að koma í eitt skipti í viðbót;
Við kveðjum Ole og erum aftur
komnir út á götuna. Verið er að fleygja
síðustu gestunum út úr veitingahús-
unum. Samtímis er slökkt á síðustu
neonljósunum og myrkur næturinnar
grúfir yfir Nýhöfninni.. . hjúpar öll
þau ótalmörgu atvik, sem hér gerast
á hverju kvöldi. Snemma í fyrramálið
mun sólin aftur skína á bárur kanalsins
og vorið ríkja í Nýhöfninni, þessum
undarlega stað, sem flestum leikur for-
vitni á að kynnast, þótt þeir hafi ekki
hátt um dvöl sína þar . .
Marco Polo.
Þegar Jón forseti . . .
Frh. af bls. 34.
17 ára piltur, sonur Stefáns Einars-
sonar, matsveins.
Sigurður Sigurðsson, Framnesvegi 2,
Reykjavík, háseti, f. 3. október 1900,
ókvæntur.
Magnús Sigurðsson, háseti, Grandavegi
37, f. 15. febrúar ...., kvæntur og
átti 6 börn.
Haraldur Einarsson, háseti, Lágholti, f.
12. október 1901.
Ólafur Jónsson, kyndari, 36 ára, frá Víði-
dalsá í Strandasýslu, kvæntur og átti
4 börn.
Bertel Guðjónsson, kyndari, Hverfisgötu
107, Reykjavík, 21 árs.
Guðjón Angantýr Jónsson, háseti, f. 14.
nóvember 1909, fyrirvinna móður
sinnar.
Eyþór Ragnar Ásgrímsson, Vesturgötu
50, f. 7. janúar 1911. Bjó með móður
sinni. Hún missti annan uppkominn
son haustið áður.
Þeir, sem af komust, voru:
Bjarni Brandsson, bátsmaður, Selbrekk-
um.
Magnús Jónsson, Hverfisgötu 96.
Pétur Pétursson, Laugavegi 7 C.
Sigurður Bjarnason, Selbrekkum.
Kristinn Guðjónsson, Selbrekkum.
Steingrímur Einarsson, Framnesvegi 61.
Gunnlaugur Jónsson, Króki, Kjalarnesi.
Steinþór Bjarnarson, Ólafsvík.
Frímann Helgason, Vík í Mýrdal.
Ólafur I. Árnason, Bergþórugötu 16.
Einn þeirra tímenninganna er enn á
sjó, Steingrímur Einarsson, og er nú
á togaranum HAUKI.
fsl. framkvœmdamenii
Framh. af bls. 9.
Hér hefur verið stiklað á stóru í fram-
kvæmdum Arnar, en vissulega eru störf
hans í þágu íslenzkra flugmála hinn
gagnmerkasti þáttur, sem örugglega
verður skráður síðar.
Örn Ó. Johnson er maður hæglátur
hversdagslega og oflátungsháttur er
honum fjarri skapi.
Víðsýni hans og dómgreind er við-
brugðið og hann er vinsæll af starfs-
fólki sínu og öllum er samskipti eiga
við hann.
Svo hafa kunnugir sagt, að honum
svipi mjög til móðurbróður síns
,,Muggs“ (Guðmundar Thorsteinssonar
málara) í framgöngu allri og þá er eigi
leiðum að líkjast. í góðra vina hópi er
Örn gleðimaður og hrókur alls fagnaðar.
Örn er kvæntur Margréti, fæddri
Thors, hinni mestu ágætis konu og eiga
þau fimm mannvænleg börn.
G.
MYIUDAGÁTAIU: NAFN CIG HEIMILI:
ATHYGLISPRÓF: 1. 2. 3. 4. 5. NAFN DG HEIMILI:
HVER ERU HJÓIU: NR DG NR N R DG NR NR GG N R NR GG NR NR GG N R NR DG NR NP nn NP ,, NP nnNP NAFN OG HEIMILI:
38 FÁLKINN