Fálkinn


Fálkinn - 18.04.1962, Blaðsíða 33

Fálkinn - 18.04.1962, Blaðsíða 33
VALVER Hrútsmerkið (21. marz—20. apríl). Þér eigið í þó nokkrum erfiðleikum þessa dagana og eigið erfitt að taka ákvarðanir, sem munu verða þungar á metunum. En stjörnurnar segja, að eitthvað rofi til undir lok vikunnar. Hins vegar kemur sér vel að vera hreinskilinn. Nautsmerkið (21. apríl—20. maí). Þetta verður ósköp viðburðasnauð vika. Það er ekkert, sem þér þurfið að brjóta heilann um, því að allt, gengur eins og það á að ganga og hefur hingað til gengið misfellulaust. Aftur á móti mun helgin verða nokkuð góö, ef þér haldið rétt á spilunum. Tvíburamerkið (21. maí—21. júní). Reynið að koma betur fram við þá, sem þér um- gangist mest. Þá fyrst, er þér hafið sætt yður við ýmsa hluti hjá náskyldum og tengdum persónum, öðlist þér sálarlegt jafnvægi. Það verður annríki mikið í starfi yðar um helgina. KrabbamerkiÖ (22. júní—22. júlí). Því er ekki að neita, að þér eruð í örðugri aðstöðu, en ef þér reynið eitthvað til þess að kippa þessu í lag, ættuð þér brát.t að komast úr þessari klípu. Ástamálin verða sérlega góð á fimmtudag eða föstudag. Ljónsmerkið (23. júlí—22. ágúst). Þér lifið heilbrigðu og skynsömu lífi og þurfið þess vegna ekki að óttast um heilsuna, eins og þér eigið stundum vanda til. Þér eruð heldur áhrifagjarnir og ímyndunargjarnir oft og tíðum. Reynið að yfirbuga þetta. Jómfrúarmerkið (23. ágiist—23. sept.). Þessi vika verður mjög róleg og næstum tíðinda- laus. Þér ættuð að venja yður á meiri reglusemi og hiröusemi, því að hingað til hefur það verið ljóður á ráði yðar, að hafa ekki kunnað einföldustu manna- siði, að minnsta kosti ekki sýnt það við venzlafólk. Vogarslcálarmerkið (23. sept.—22. okt.). Eftir því sem bezt verður lesiö úr stjörnunum þessa viku, er ekki hægt að sjá annað en þessi vika muni verða ánægjuleg, einkum á fjármálasviðinu. Þér skul- uð stunda vinnu yðar af kappi og forsjá, þá mun vel fara. Sporðdrekamerkið (23. olct.—21. nóv.). Þér munuð að öllum líkindum fá nokkur freistandi tilboð í vikunni, og þér skuluð ekki hika við að leita ráða hjá gömlum ættingja, sem alltaf hefur viljað yður vel. Ef til vill mun aðstoð hans hjálpa yður til að yfirstíga örðugleikana. Bogamannsmerkið (22. nóv.—22. des.). Það kemst gott lag á fjárhaginn í þcssari viku og þess vegna ríður á því að nota tækifærið meðan það gefst. Hvernig væri að semja sparnaðaráætlun? Hvað snertir einkamálin mun margt kyndugt gerast. Steingeitarmerkið (23. des.—20. jan.). Þessi vika mun einkum vera veltilfallin til hvers konar listrænnar vinnu. Það þarf ekki endilega að merkja, að þér öðlist einhverja viðurkenningu fyrir verkin, en stjörnurnar segja, að gildi þessarar vinnu sé meira virði en viðurkenningin. Vatnsberamerkið (21. jan.—19. febr.). Þetta verður ósköp hversdagsleg vika. Vinur yðar mun koma til yðar og leita aðstoðar yðar í máli nokkru. Þér skuluð sýna honum vinsemd og alúð, en gætið þess að steypa yður ekki í skuldir vegna ann- arra. Fiskamerkið (20. febr.—20. marz). Fjölskylduvandamál, sem nýlega kom upp, leysist á óvæntan og ágætan hátt. Þér komist í mjög óvenju- lega aðstöðu undir lok vikunnar og þér skuluð ekki hika við að gera þær ráðstafanir, sem þér álítið réttastar. \ LAUGAVEG 48 FALKINN 33

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.