Fálkinn - 18.04.1962, Blaðsíða 33
VALVER
Hrútsmerkið (21. marz—20. apríl).
Þér eigið í þó nokkrum erfiðleikum þessa dagana
og eigið erfitt að taka ákvarðanir, sem munu verða
þungar á metunum. En stjörnurnar segja, að eitthvað
rofi til undir lok vikunnar. Hins vegar kemur sér vel
að vera hreinskilinn.
Nautsmerkið (21. apríl—20. maí).
Þetta verður ósköp viðburðasnauð vika. Það er
ekkert, sem þér þurfið að brjóta heilann um, því að
allt, gengur eins og það á að ganga og hefur hingað
til gengið misfellulaust. Aftur á móti mun helgin
verða nokkuð góö, ef þér haldið rétt á spilunum.
Tvíburamerkið (21. maí—21. júní).
Reynið að koma betur fram við þá, sem þér um-
gangist mest. Þá fyrst, er þér hafið sætt yður við
ýmsa hluti hjá náskyldum og tengdum persónum,
öðlist þér sálarlegt jafnvægi. Það verður annríki
mikið í starfi yðar um helgina.
KrabbamerkiÖ (22. júní—22. júlí).
Því er ekki að neita, að þér eruð í örðugri aðstöðu,
en ef þér reynið eitthvað til þess að kippa þessu í lag,
ættuð þér brát.t að komast úr þessari klípu. Ástamálin
verða sérlega góð á fimmtudag eða föstudag.
Ljónsmerkið (23. júlí—22. ágúst).
Þér lifið heilbrigðu og skynsömu lífi og þurfið þess
vegna ekki að óttast um heilsuna, eins og þér eigið
stundum vanda til. Þér eruð heldur áhrifagjarnir og
ímyndunargjarnir oft og tíðum. Reynið að yfirbuga
þetta.
Jómfrúarmerkið (23. ágiist—23. sept.).
Þessi vika verður mjög róleg og næstum tíðinda-
laus. Þér ættuð að venja yður á meiri reglusemi og
hiröusemi, því að hingað til hefur það verið ljóður á
ráði yðar, að hafa ekki kunnað einföldustu manna-
siði, að minnsta kosti ekki sýnt það við venzlafólk.
Vogarslcálarmerkið (23. sept.—22. okt.).
Eftir því sem bezt verður lesiö úr stjörnunum þessa
viku, er ekki hægt að sjá annað en þessi vika muni
verða ánægjuleg, einkum á fjármálasviðinu. Þér skul-
uð stunda vinnu yðar af kappi og forsjá, þá mun
vel fara.
Sporðdrekamerkið (23. olct.—21. nóv.).
Þér munuð að öllum líkindum fá nokkur freistandi
tilboð í vikunni, og þér skuluð ekki hika við að leita
ráða hjá gömlum ættingja, sem alltaf hefur viljað
yður vel. Ef til vill mun aðstoð hans hjálpa yður til
að yfirstíga örðugleikana.
Bogamannsmerkið (22. nóv.—22. des.).
Það kemst gott lag á fjárhaginn í þcssari viku og
þess vegna ríður á því að nota tækifærið meðan það
gefst. Hvernig væri að semja sparnaðaráætlun? Hvað
snertir einkamálin mun margt kyndugt gerast.
Steingeitarmerkið (23. des.—20. jan.).
Þessi vika mun einkum vera veltilfallin til hvers
konar listrænnar vinnu. Það þarf ekki endilega að
merkja, að þér öðlist einhverja viðurkenningu fyrir
verkin, en stjörnurnar segja, að gildi þessarar vinnu
sé meira virði en viðurkenningin.
Vatnsberamerkið (21. jan.—19. febr.).
Þetta verður ósköp hversdagsleg vika. Vinur yðar
mun koma til yðar og leita aðstoðar yðar í máli
nokkru. Þér skuluð sýna honum vinsemd og alúð, en
gætið þess að steypa yður ekki í skuldir vegna ann-
arra.
Fiskamerkið (20. febr.—20. marz).
Fjölskylduvandamál, sem nýlega kom upp, leysist
á óvæntan og ágætan hátt. Þér komist í mjög óvenju-
lega aðstöðu undir lok vikunnar og þér skuluð ekki
hika við að gera þær ráðstafanir, sem þér álítið
réttastar.
\
LAUGAVEG 48
FALKINN
33