Fálkinn - 10.04.1963, Síða 4
Red Skelton er hér í skemmtilegum félagsskap, eða finnst ykkur
það ekki? Þær eru þýzkar, dansmeyjarnar, og heita Ellen og Alice
Kessler. Þær eru tvíburar og eru mjög frægar í heimalandi sínu,
en nú hafa þær verið ráðnar til Hollívúdd.
Á myndunum hér til vinstri
og hægri, eru fjórir fótlegg-
ir samtals. Tvo á Audrey
Hepburn, en hina Marlene
Dietrich. Hinn frægi klæð-
skeri, Travilla, sem býr í
Hollívúdd og hefur fengið
Óskars-verðlaun fyrir föt sín,
valdi þessa fótleggi sem þá
fegur.stu í Hollivúdd. Fótum
Audrey Hepburn lýsir hann
svo:
— Grannir, glæsilegir, ar-
istokratiskir.
En um fætur Marlene Die-
trich hefur hann þessi orð:
— Enda þótt Marlene sé nú 58 ára, búa fætur hennar enn yfir
sérstökum kynþokka, og eru sérlega vel skapaðir.
Lesendur góðir, spreytið ykkur nú á, 'hvora fótleggina Audrey
Hepburn á.
•uigaui bjjsuia nje jratj ‘^aj ja geþ ‘np
VINNAN.
Gamlir menn í Bandaríkjunum segja frá því, að utanríkisráð-
herrann Philander Knox (1909—1913), hefði aldrei komið í ráðu-
neyti sitt eftir hádegi af þeirri einföldu ástæðu að það var ekkert
að gera fyrir hann.
Gömlum kenn-
ara segist svo frá:
„Þegar ég kenndi
sjö ára bekk í Lee
Street School í
Atlanta, var Dean
nokkur Rusk
nemandi minn,
en hann er núna
utanríkisráð-
herra Bandaríkj-
anna. Hann var
mjög góður nem-
andi, gáfaður, áhugasamur og iðinn, en einn-
ig mjög ákveðinn.
Dagur Valentínu nálgaðist óðum, og ég
ákvað að láta bekkinn gert kort í tilefni
dagsins og senda þau eins og venja er til
í Ríkjunum. Jæja, bekkurinn settist við, teikn-
aði og klippti af miklu kappi. En einn nem-
andi sat auðum höndum. Það var Dean Rusk.
Þegar ég spurði hann, hvers vegna hann gerði
ekki eins og hinir, svaraði hann mér og sagði
að hann hafnaði þessum sið. Mér fannst þetta
kyndugt svar af aðeins sjö ára gömlum kauða,
og krafði hann frekar um svar. Þá sagði hann:
— Ég hafna þassum sið vegna þess, að kortin
gera töskur póstmannanna svo þungar.
Ég varð mjög hissa, unz það rann upp fyrir
mér, að faðir hans var póstur.
★
Somerset Maugham, rithöfundurinn heims-
kunni, sem nú er 88 ára, hefur nýlega heim-
sótt vaxmyndasafn frú Tussads í Lundúnum.
Þangað fór hann til þess að skoða vaxstyttu
af sjálfum sér, sem ,sett var upp í safninu
fyrir skömmu. Maugham hafði komið til Eng-
lands í þessum eina tilgangi og ráðamenn
safnsins voru uggandi um, hvernig honum lit-
ist á styttuna. Nokkur vandamál höfðu nefni-
lega komið upp í sambandi við klæðnað þann,
sem styttan átti að vera í. En safnmenn voru
vanir þess háttar vandamálum, og er gamli
maðurinn kom og leit á styttuna, virtist hann
vera mjög ánægður með hana. — Lesendur
geta sér til dundurs spreytt sig á, hvor sé
styttan og hvor skáldið.
★
Menntamaður nokkur ætlaði að gefa út bók
með ræðum sínum og ritgerðum, en hann
hafði þá um nokkurt skeið látið allmikið á
sér bera í ræðu og riti. Árni Pálsson frétti
þetta og varð að orði:
— Mikill skaðræðismaður ætlar hann R.
að verða, nú ætlar hann að fara að gefa út bók.
4 FÁLKINN