Fálkinn


Fálkinn - 10.04.1963, Blaðsíða 6

Fálkinn - 10.04.1963, Blaðsíða 6
Hefi fyrirliggjandi yfir 50 gerðir af kven- úrum og yfir 60 gerðir af herraúrum. Franch Michelsen úrsmíðavinnustofa Laugavegi 39, Reykjavík. Kaupvangsstræti 3, Ákureyri. G FÁLKINN Kaupið úrin hjá ÚRSMIÐ Eins árs ábyrgð! Póstsendum Hljóðmerki. Kæri Fálki! Það er einn ósiður manna sem mig langar til að skrifa þér um. Það er sá ósiður leigubílstjóra að flauta um nætur þegar þeir hafa verið pantaðir. Og það er einkenni- legt af fólkinu að vera ekki til staðar þegar bílarnir koma. Bílstjórarnir flauta sennilega til þess að gefa til kynna að þeir séu komnir. Þetta er alveg óþarfa hávaði sem hef- ur ekki annað í för með sér en raska næturró manna. Þegar fólk pantar bíl að sínu húsi á það að fylgjast með þegar hann kemur svo bíl- stjórinn þurfi ekki að flauta og auglýsa þannig fyrir ná- grönnunum þetta næturrölt. Svo þakka ég þér fyrir allt gamalt og gott. Mér lýst vel mér lýst vel á nýju fram- haldssöguna. Fimm barna móðir. Um Útvarpið. Ég er einn hinna mörgu sem hlusta á Útvarpið. Mér finnst það alltaf batna en að sjálfsögðu er eitt og annað sem maður gæti fett fingur út í. Ég hlusta ekki á allt sem útvarpið flytur enda væri drjúgur tími sem færi í það. Ég tek heldur fyrir ákveðna „pósta“ ef svo má segja. Ég hlusta alltaf á leikritin á laugardögum og þau eru oft góð þótt manni finnist þau mega vera fleiri íslenzk. Þá hlusta ég á framhaldsleikrit- in og eins er með þau, að manni finnst þau geta verið fleiri íslenzk. Ég hlusta líka alltaf á fréttirnar og það er nú einmitt það sem ég er hvað mest óánægður með. Mér finnst alveg ótækt að hafa alltaf erlendu fréttirnar á undan þeim innlendu því það eru nú þær sem maður vill allajafna hlusta á. Ætli Útvarpið vildi ekki breyta þessu og hafa þær innlendu á undan nema eitthvað sér- staklega gangi á hjá þeim úti í hinum stóra heimi. Svo þakka ég ykkur margt bráð- skemmtilegt efni í blaðinu um leið og ég hvet ykkur til að gera meira og þakka fyrir birtingu bréfsins. Sveitamaður. Svar: Viö þökkum „Sveitamanni“ bréfið. Sjálfsagt er þaö mats- atriöi hvorar fréttirnar eigi aö vera á undan, þær innlendu eöa erlendu. En viö komum liug- myndinni hér meö á framfœri. Söngur fangans. Nýlega var birt hér í Póst- hólfinu bréf frá Billý þar sem beðið var um texta, sem við kunnum ekki en báðum les- endur að senda okkur hann ef þeir kynnu. Okkur hafa nú borizt þrjú bréf með þessum texta og þar sem nokkurs misræmis gætir þykir okkur rétt að birta allar útgáfurnar og bréfin, svo hver geti haft það sem honum bezt líkar. Kæri Fálki! Ég sá í Pósthólfinu bréf frá einhverjum Billý, sem bað um að það yrði birt kvæði sem byrjar: Ég verð færður í fangeki á morgun. Ég á kvæðið skrifað hjá mér og mig langar að biðja ykkur að birta það eins og það er, en ég veit ekki hvort það er lengra. Það heitir „Ástarsöng- ur fangans.“ Höfundurinn er ókunnur. Það er svona: Ég verð færður í fangelsi að morgni, í framtíð að búa þar einn. Allt í kring verða járngrindur kaldar og koddinn minn hrufóttur steinn. Ég vildi að ég ætti mér ástvin, sem ég elskaði falslaust og hreint. Ég þrái svo sárt heita samúð, því sál mín er einmana og þreytt. Ef hefði ég engilsins vængi, þá flygi ég frelsinu frá. Ég flygi í ástvinararma. og ánægður dæi ég þá.“ Svo þakka ég þér fyrir allar skemmtilegar sögur og óska þér góðrar framtíðar. Þökk fyrir birtinguna. Dollý.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.