Fálkinn - 10.04.1963, Page 9
ginni
Það áttu fáir leið yfir Arnarhólinn
um þetta leyti dags, og lítil bílaumferð
um Hverfisgötuna. Veðrið var frekar
gott að öðru leyti en því, að það var
dálítið kalt.
— Kannski kemst ég uppá, sagði Bessi.
Þeir höfðu lokið við að mynda hann
hangandi utan á stallinum.
— Ef vörðurinn hefur stiga.
Vörðurinn hafði ekki stiga og við
horfðum á landnámsmanninn þar sem
hann stóð á ókleifum stalli sínum.
— Það er ekki ætlast til þess að menn
séu að fara þarna uppá, sagði vörðurinn
og fékk sér í nefið.
— Er hurðin þarna læst?
— Já.
— Og opnast ekki þótt ég stígi á hún-
inn?
— Nei, það hugsa ég ekki.
— Þá er málið leyst, maður. Ég stíg
bara á húninn og veg mig svo uppá. Ég
er ennþá í góðri þjálfun frá því ég var
polli. Sjáið bara! Og hann var kominn
uppá stallinn til landnámsmannsins.
Vörðurinn horfði á eftir honum og
þurrkaði sér um nefið með rauðum
klút.
— Er þetta ekki hann Bessi? spurði
hann.
— Jú, þetta er Bessi.
Sjá næstu síðu.
FÁLKINN
V I K U B L A Ð
Bessi Bjarnason er tvímælalaust í hópi vinsælustu gamanleikara hér~
lendis um þessar mundir. Hlutverk sem hann hefur gert okkur eft-
irminnileg á síðustu árum eru orðin æði mörg. Og öll börn þekkja
Bessa úr Dýrunum í Hálsaskógi, en þar lék hann sjálfan höfuðpaur-
inn, Mikka ref. Á næstu síðum birtir FÁLKINN í myndum og texta
nokkrar svipmyndir af Bessa í borginni.