Fálkinn


Fálkinn - 10.04.1963, Side 12

Fálkinn - 10.04.1963, Side 12
SMÁSAGA EFTIR ERLIIMG POtLSEM f 0 Á fjórða sólarhing um nóttu var hrópað: — Eldur um borð! Allir á þilfar! Við höfðum farið frá Valpariso í Chile til Evrópu. Við höfð- um farþega með um borð, alls fjóra: þrjá vísindamenn með vísindailegan útbúnað í farangri sínum — og einn kventrúboða: Systur Sonju. Á leiðinni til Panamaskurðar ins áttum við að kasta fest- um undan Galapagoseyj- unum til að setja vísinda- mennina og systur Sonju í land. Eldurinn hafði bersýnilega verið í lestinni í marga klukkutíma og hafði aðeins skort súrefni til að láta al- mennilega að sér kveða. Hugsunarlaus skipsdrengur var sá, sem fyrstur hafði fundið lyktina af hinum seitlandi reyk, en í staðinn fyrir að hlaupa á stundinni til skipstjórans, hafði hann svei mér opnað lestina til að sjá, hvort það væri þar, sem brynni. Með þessum aðgerðum fékk eldurinn ein- mitt það, sem hann hafði not fyrir: loft! og á fáum mínútum hafði hann breiðzt upp og niður svo að allt mið- skipið logaði! Það var dimm nótt, þegar ég, drukkinn af svefni og hræðslu — kom æðandi upp á þilfar, þar sem skipverjar hlupu fram og aftur eftir öskrandi skipunum skip- stjórans. Slökkvitækin voru 12 FALKINN notuð, en það var öllum ljóst, að það var ekki í mannlegu valdi að hemja þennan eld. Það varð að yfir- gefa skipið! Systir Sonja var sú eina, sem ekki var enn komin upp á þilfar og skipstjórinn sendi mig niður að sækja hana. Ég æddi beint inn í káetu hennar. Hún sat á stóli, dálítið föl, en annars alveg róleg. í kjöltu henn- arlá biblía og greipar hennar spenntar á henni. Hún bað fyrir hinu brennandi skipi og áhöfn þess! Er ég greip í hana til að draga hana með upp á þilfar, snéri hún sér að mér með róandi og umburðarlyndu brosi. — Guð mun hjálpa okkur, sagði hún. — Verið ekki hræddir! Fyrstu björgunarbátarnir höfðu nýlega verið settir niður í hinn úfna sjó, þegar ég um síðir kom upp á þil- far með systir Sonju. Vís- indamennirnir þrír voru á bát númer 1, þeir höfðu í flýti tekið með sér hluta af vísindaútbúnaði sínum, auk þeirra voru tveir hásetar á bátnum. í bát númer 2 var hinn hluti hinnar óbreyttu áhafnar. — Setjið ykkur strax í samband við hina bátana! hrópaði skipstjórinn, þegar hann og stýrimaðurinn hentu síðasta björgunarbátnum niður með skipshliðinni. Það voru bara systir Sonja og ég í þeim bát. Skipstjórinn og stýrimaðurinn ætluðu að koma á eftir. Þeir ætluðu að stökkva í sjóinn í björg- unarvesti, og það var ætlun- in, að systir Sonja og ég slæddum þá upp í okkar bát um leið og ég hefði róið frá hinu brennandi skipi. Stýrimaðurinn stökk fyrst- ur. Meiddist hann í fallinu niður í sjóinn? Fékk hann krampa, er sjórinn luktist yfir höfði hans? Að minnsta kosti hvarf hann. Við sáum hann aldrei meir. — Komið skipstjóri, þrum- aði ég um leið og ég réri á móti straumnum til að reka ekki of langt frá skipinu. Skipstjórinn svaraði mér ekki. Ætlaði hann alls ekki að stökkva? Ætlaði hann að vera kyrr um borð og sökkva með skipi sínu? Ég sá hon- um bregða fyrir í brúnni um leið og ég barðist með árun- um við að þvinga bátinn móti hinum þunga straumi. — Skipstjóri! æpti ég aft- ur. Ætlið þér að koma? Ég get ekki haldið bátnum móti fjandans straumnum til eilífðar. Komið nú! Kom- ið nú! Ég fékk ekkert svar. Ég réri og réri til að koma bátnum aftur að skipinu, en það var vonlaust. Straumur- inn var of þungur. — Rólegir! sagði systir Sonja hvað eftir annað, með- an ég æpti og æpti til skip- stjórans, að hann skyldi yfir- gefa skipið, meðan tími væri til. — Guð mun hjálpa okk- ur. Verið ekki hræddir! Straumurinn hafði þegar hrakið hina björgunarbátana norður eftir úr bjarmanum, sem logarnir frá hinu glat- aða skipi köstuðu mót himni og hafrótinu. Ég gat ekki komið auga á þá, en þeir gátu séð mig. Ég heyrði köll þeirra út í myrkrið og réri eftir hljóðinu. En ég hafði ekki róið mjög lengi, þegar ég skildi, að það var brjálæði, að ég skyldi hafa farið einn í þenn- an bát með systur Sonju. Einn hafði ég alls ekki næga krafta til að fylgja þeirri stefnu, sem hinir höfðu tek- ið, nefnilega norð-norð-aust- ur skáhallt við hinn þunga Humboldtstraum móti ströndum Perú og Ekvadors, þar sem miklar líkur voru á því, að eftir okkur yrði tekið af hinum mikla fjölda skipa, sem þar sigldu um. Meðan ég setti allan minn kraft á áratökin til að ná hinum bátunum, lét systir Sonja sína blíðu kvenrödd hljóma gegnum myrkrið frá skut bátsins. —- Guð mun hjálpa okkur! Verið ekki hræddir! Ég gat séð móta fyrir hinum granna og dálítið álúta líkama. Biblían lá á kjöltu hennar undir spennt- um greipum. Hún bað! — Það eru ekki bænir, sem við höfum þörf fyrir núna, sagði ég bitur — það eru duglegar hendur og handleggjakraftur og takið á með mér, ef þér getið, systir! Hennar milda og dálítið umburðarlega bros ljómaði í myrkrinu, sá ég, og hún endurtók enn einu sinni, að Guð myndi hjálpa okkur og að ég skyldi ekki vera hræddur. Þar á eftir hélt hún áfram að biðjast fyrir. Eftir næstum tveggja stunda örvæntingarfulla baráttu við hinn þunga haf- straum dró ég árarnar inn og gafst upp. Ég hné niður í bátinn rennvotur af svita, dauðþreyttur og með svima. Á meðan ég hallaði mér út af og starði upp í nóttina, gerði ég mér grein fyrir, hvað biði systur Sonju og mín. Humboldtstraumurinn myndi bera okkur í norður í einn eða tvo sólarhringa, þar næst myndum við lenda í Ekvadorstraumunum, sem lágu þversum og þeir myndu bera okkur í vestur og þar næst í suður í átt að Páska- eyjunum' eða Tuamotueyj- unum, en allt voru þetta svæði á hinu stóraKyrrahafi, þar sem sjóferðir voru

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.