Fálkinn


Fálkinn - 10.04.1963, Side 14

Fálkinn - 10.04.1963, Side 14
Persónurnar úr Islandsklukku Kiljans eru öllum í fersku minni, sem kynnzt hafa verkinu annað hvort í formi leik- ntsins eða sögunnar. Hver man ekki eftir Jónunum þremur, Jóni Hreggviðssyni, Grindvíkmgnum og Jóm Marteinssym. í þessari grein rekur Jón Gíslcison hina raunverulegu sögu Jóns Marteinssonar. Þegar ]ðn Marteinsson Fyrr á öldum komu oft upp undarleg mál á biskupsstólunum, Hólum og Skál- holti, út af lausaleiksbrotum. Á stund- um áttu hefðarstúlkur hlut að máli, höfðu lagst með ótíndum almúgamönn- um. Hin stranga siðalöggjöf kirkju og konungs í hjúskapar- og ástamálum, var svo úr garði gerð, að ekkert var auðveldara en verðá brotlegur við hana. Hugsunarháttur þeirra er hana mótuðu og settu, var langt frá vegi ungs fólks á öllum öldum. Einnig reyndist hún ofviða hinum ströngustu og færustu siðgæðisvörðum, og sannast þar boð- skapur alþýðustökunnar: Betra er að passa hundrað flær á hörðu skinni, en píkur tvær á palli inni. Á biskupsstólunum var fjölmenni. Þar var mikill fjöldi þjónustu- og vinnu- fólks á bezta aldri, auk kennara og skólasveina. Ungar stúlkur sóttust auð- vitað eftir því, að komast í kynni við stúdentsefnin og stúdentana. Það var von um gott gjaforð að fá stúdent til lags. En oft varð raunin sú, að skóla- sveinar reyndust hviklyndir í æskuást- um sínum og varð aðeins lausaleikur úr. Ótal dæmi eru um þetta og er of langt mál að rekja hér. Á stundum henti það, að ungur og mannvænlegur stúdent eða stúdents- efni næði ástum hefðarstúlku, meðan hann var enn óreyndur námssveinn í skóla eða ekki hlotið embætti og stað- festu. Út af slíku urðu rekistefnur, mála- 14 FÁLKINN vrafstur og skriftir. Oftast bitnaði hegn- ingin með fullum þunga á stúdentinum unga, og varð oft til þess að eitra hugar- far hans og eyðileggja ævi hans, sem annars hefði ef til vill orðið glæsileg og hamingjusöm. Svo var valdi í sið- ferðismálum beitt áður fyrr af vörðum kirkju og laga. Hér verður sögð saga af einum slíkum, eitt dæmi af mörgum. Árið 1710 var síra Steinn Jónsson prestur að Setbergi í Eyrarsveit, kvadd- ur til að taka við Hólabiskupsdæmi. í þennan mund voru siglingar mjög litlar til landsins, sakir ófriðar milli Dana og Svía. En Ólafsvíkurskip var eitt af þeim fáu, sem náði til landsins um vorið, og sigldi biskupsefni með því. Hann fékk veitingu fyrir Hólabiskups- dæmi 25. maí 1711 og var vígður til biskups á trinitatis. Steinn biskup tók sér far til íslands þegar um vorið með Stykkishólmsskipi og varð vel reiðfari. Hann sat næsta vetur um kyrrt á Set- bergi, en tók við Hólastól 1712 og hélt til æviloka. Steinn biskup Jónsson var velgefinn maður, skáldmæltur, valmenni mikið en enginn skörungur. Hann var mikill vexti, karlmenni og rammur að afli. Hann tók við prentverkinu, er fyrir- rennari hans, Björn biskup Þorleifsson, hafði keypt, og rak prentsmiðju að Hól- um. Hann gaf út talsvert af bókum bæði frumsömdum af sjálfum sér og þýddum, auk biblíunnar, sem alþýða nefndi Steinsbíblíu og var þriðja út- gáfan á íslandi. Steinn biskup var kvæntur Valgerði Jónsdóttur prests á Staðarhrauni Guðmundssonar. Þau eign- uðust 11 börn, 7 sonu og fjórar dætur. Dóu flest börnin í æsku og allir syn- irnir á undan foreldrunum, en þrír þeirra komust þó vel á legg, mjög vel- gefnir menn. Einungis tvær af dætrun- um lifðu foreldra sína...Barnalán bisk- upshjónanna var því heldur lítið. En margt manna er frá þeim komið, og margt merkisfólk. Meðal sona þeirra Steins biskups og Valgerðar, var Jón, er tók sér viðurnefnið Bergmann, og varð frægur læknir, en lítill hamingju- maður — sem frægt er. í biskupstíð Steins biskups, skeði margt sögulegt á Hólastað. Biskup var sérstakt góðmenni og vildi halda uppi reglu og aga, án þess að beita hörku. En oft brá útaf í þessum efnum. Meðan hann var Hólabiskup, fengust skóla- sveinar talsvert við galdraiðkanir, þó galdratrú væri mikið farin að dvína hér á landi í byrjun 18 aldar. Á hans tíma var til dæmis hinn frægi Galdra Loftur í Hólaskóla, og útskrifaðist þaðan árið 1722. Þjóðsögur herma, að hann hafi vakið upp úr Hólakirkjugarði biskupana fornu, og ætlaði sér að ná af þeim galdrabókinni Gráskinnu, dýr- mætasta kjörgrip galdrafræðanna, sem til hefur verið á íslandi. En honum heppnaðist það ekki. Hann varð sturlað- ur og varð skammlífur. * í biskupstíð Steins virðist hafa verið f jölmenni á Hólum. Heimilisandi var þar þýður og viðkunnanlegur,

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.