Fálkinn - 10.04.1963, Side 26
kvenþjóðin
ritstjóri
KRI9TJANA
STEIMGRÍMSDÓTTIR
Páskahanar á páskaborðið
Á hátíðum einkum jólum og páskum langar okkur til að dúka borðið
fallega. Þar sem litur jólanna er rauður er litur páskanna gulur og grænn.
Litir sem við fáum með páskaliljunum og litlum greinum, sem við höfum
haft þá fyrirhyggju á að taka inn og láta standa í vatni.
Einnig er hægt að útbúa pappírsservietturnar á skemmtilegan hátt. t. d.
eins og myndin sýnir.
Nota þarf venjulegar stórar, hvítar pappírsserviettur, sem brotnar eru
í tvennt og klippt upp úr, svo myndist eins og kambur. Teiknið augu með
„tuschi“, vefjið servietturnar saman og festið þeim saman að neðan verðu
með títuprjón eða heftara. Búið til nef og sepa úr rauðum glanspappír, límt á
Það eru ekki aðeins súkkulaðiegg,
sem eiga að koma fram á sjónarsviðið
um páskana.
Máluð og lituð egg heyra páskunum
til. Það er skemmtilegt starf, sem öll
fjölskyldan getur tekið þátt í en sem
oft fellur í hlut barnanna að fram-
kvæma.
Sjóðið fyrst eggin (ef á að mála þau),
og kælið þau alveg, áður en hafizt er
handa. Bezt er að gera uppdrátt með
blýanti, teikna útlínumar með „tusch“
og síðan fylla uppí með lit. Nota má
hvert heldur er litarblýanta, vatnsliti
eða auglýsingaliti. Þá síðasttöldu er auð-
veldast að eiga við, því að þeir hylja
bezt.
Einnig er hægt að lita alveg eggin
um leið og þau eru soðin. Setjið ávaxta-
lit -(-1 tesk. af ediki í 1 líter af vatni.
Athugið að eggin sem sjóða á séu alveg
heil. Ef eggin eru sprungin smýgur lit-
urinn inn og litar hvítuna. Sé laukhýði
soðið með eggjunum, verða þau fallega
gyllt á litinn.
Soðin egg. Öll kunnum við að sjóða
egg, en þrátt fyrir það getur verið gott
að rifja upp grundvallarreglurnar.
1. Látið eggin ofan í það mikið vatn,
að það fljóti nál. 3 cm. yfir þau; suðan
látin koma fljótt upp.
2. Haldið aðeins við suðu; hlemmur
látinn á pottinn.
3. Eggin látin liggja í 3—12 mínútur.
Það fer eftir því, hvort þau eiga að vera
lin — hálflin — eða harðsoðin.
Ath. Ef ekki er hægt að lækka hitann
það mikið undir pottinum, að vatnið
sé aðeins við suðu, verður að skjóta t.
d. asbestplötu undir pottinn.
Takið aldrei eggin beint út úr ís-
skápnum og setjið þau í pottinn,þá hætt-
ir þeim til að springa. Gott er að láta
þau liggja augnablik í volgu vatni áður.
Ef ætlunin er að afhýða eggin, skal
ísköldu vatni rennt yfir þau strax, en
ekki látin liggja of lengi í því.
Eggjasósur: Reynið að þeyta eggja-
rauður eða heil egg vel og lengi yfir
gufu (ekki of heitri þó). Þeytið þar til
eggin eru létt og loftmikil. Þeytið þá
sykur og eitthvert bragðefni saman við
eggin. Úr þessu fæst ljúffeng sósa, sem
ágætt er að bera fram með ávaxtasalati
eða líkjör. Hlutföllin geta t. d. verið:
getur t. d. verið rifinn appelsínu- eða
sítrónubörkur, kanel, engifer, koníak
eða líkör. Hlutföllin geta t. d. verið:
1 eggjarauða +2 msk. sykur eða flór-
sykur —%—1 msk. rifinn börkur, 2
eggjarauður +3x/2 msk. flórsykur,
+ 1% tsk. kanell.
1 heilt egg +2yz msk. sykur,
+ 1—1% msk. líkjör.
26
FALKINN