Fálkinn


Fálkinn - 10.04.1963, Side 27

Fálkinn - 10.04.1963, Side 27
CGG á ýmsa vegu Egg í brauðkolliun. Eggjahræra með laxi. Karrýegg. Fyllt egg. Byrjið á því að harðsjóða eggin og kæla. Takið rauðurnar úr, sker- ið neðan af hvítunum svo að þær geti staðið. Merjið rauðrnar og blandið þeim saman við majones ásamt smátt skorn- um eggjahvítubitunum (ofan af og neð- an) einnig einhverri smátt skorinni kryddjurt t. d. steinselju, karsa, dill. Fyllið eggjahvíturnar með þessu, stingið svo spegipylsu, reyktu fleski, rækjum, ál, hangikjöti og laxi ásamt einhverju grænu ofan í. (Sjá myndir). Berið eggin fram á salatblaði eða gúrkusneið og með steiktu hveitibrauði. Páskabrauðsneið. Flysjið harðsoðin egg og kljúfið þau varlega að rauðu. Takið rauðuna heila úr. Saxið hvítuna smátt, hrærið henni saman við jafnmik- ið af smjöri, kryddað með frönsku sinn- epi og salti. Berið þessa smjörhræru þykkt ofan á hveitibrauðssneið og skreytið hverja sneið með heilli eggjarauðu. Karryegg. 4 egg. 2 dl. hrísgrjón. 4 dl. vatn. Salt. Sósa: 1 epli, súrt. 1 lítill laukur. 1 msk. smjörlíki. 1 tsk. karrý. 4 dl. soð. 1 msk. kartöflumjöl. 2 msk. rjómi. 100 g. rækjur. Tómatar. Eggin soðin í 6 mín., flysjuð. Hrísgrjón in soðin í vægu saltvatni í 18 mínútur. Epli og laukur skorið smátt, sett í pott ásamt smjörlíkinu, látið sjóða í 1—2 mínútur. Karry og soði hrært saman við. Soðið við vægan hita í 5 mínútur. Jafn- að með karöflumjöli, sem hrært er út með rjóma. Rækjunum hrært saman við. Látið hrísgrjónin í hring á smá- diska, egg í miðjunni, sósu hellt yfir. Skreytt með tómati. Eggjahræra með reyktum laxi eða hangikjöti. 4 egg. 4 msk vatn. 50 g. reyktur lax eða hangikjöt. 2 msk. smjör. Ögn af pipar. V2 tsk. sítrónusafi. 1 msk. söxuð steinselja. 4 ristaðar hveitibrauðssneiðar. Skerið laxinn eða kjötið í mjóar ræm- ur, hitið það í smjörinu. Þeytið eggin með vatninu. Kryddið með salti og pip- ar. Hellt saman við laxinn. Hrært stöð- ugt í með gaffli, þar til eggjahræran er kornótt. Um leið og potturinn er tekinn af eldinum er sítrónusafa og steinselju hrært saman við. Borið fram sem forréttur eða til Framh. á bls. 30. :...................................................................... FÁLKINN 27

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.