Fálkinn


Fálkinn - 10.04.1963, Side 28

Fálkinn - 10.04.1963, Side 28
Þegar Jón . . . Framh. af bls. 24. lenti þar í vandræðum og varð að víkja úr skóla. Fór hann þá norður að Hólum og útskrifaðist þar árið 1731. Að loknu stúdentsprófi, gerðist Jón smásveinn Steins biskups og var í þjónustu hans um stund. Jón Marteinsson var gæddur ágætum gáfum, var vitmaður mikill og brátt í áliti nyrðra. Þar kom, að starfsfólkið á Hólum fór að veita því athygli, að Jón Marteinsson og Helga biskupsdótt- ir, ekkjan unga, felldu saman hugi. Þau áttu saman ástafundi í leynum á Hólum, enda var þar á staðnum nóg af greiðastöðum fyrir unga elskendur, og í skjóli fjölmennis staðarins var vanda- laust að dyljast. Ástir þeirra fóru leynt, enda bjuggust hjónaleysin við heldur lítilli hluttekningu hjá foreldrum henn- ar, þar sem Jón var bláfátækur, aðkom- inn úr fjarlægu héraði og þar að auki lent í hálfgerðum vandræðum. En þau Helga og Jón nutu hvors annars að vild í leynum, og varð furðulítið umtal af. En þar kom, að Helga biskupsdóttir varð þunguð af völdum Jóns Marteins- sonar. Sumarið 1732 fóru að kvikna af því sögur um Skagafjörð, að biskups- dóttirin á Hólum væri með barni. Smjattaði fólkið á þessu og þótti mikið söguefni og flaug sagan víða. í ágúst um sumarið var svo komið, að Helga gat ekki lengur leynt þunga sínum fyrir heimafólki á staðnum eða foreldrum sínum. Þegar biskup varð þess vís, brást hann þunglega við. Hann kallaði Jón fyrir sig og lét hann meðganga brot sitt. Síðan varð af þessu rekistefna nokkur og málavafstur. Að lokum lét biskup Jón taka opinberlegar skriftir í Hóladómkirkju, og rak hann síðan burt af staðnum. Jón ráfaði um sumarið um Skagafjörð ráðvilltur og umkomulaus- ari en nokkurn tíma áður. En um haust- ið fékk hann far með Akureyrarskipi til Kaupmannahafnar. LEIKHÚSMÁL® TÍMARII AÐALSTRÆTI 1B. REYKJAVÍK Ég undirrituð/aður ...................................................... staða ............................................... sími .............. heimili ................................................................. óska að gerast áskrifandi að tímaritinu LEIKHÚSMÁL frá og með tölu- blaði nr............(8 hefti á ári). Mun ég greiða í ársgjald kr. 300.00 (+ kr.. 20.00 ef senda skal blaðið í innanlandspósti). hinn ........ /........ 196 . . . . (undirskrift). Árgangurinn kostar 75.00 krónur. Kemur út einu sinni í mánuði. ÆSKAN er stærsta og ódýrasta barnablaðið. — Flytur fjölbreytt efni við hæfi barna og unglinga, svo sem skemmtilegar framhaldssögur, smásögur, fræðandi greinar og margs konar þætti og mynda- sögur. Síðasti árgangur var 300 síður með um 600 myndum. Allir þeir, sem gerast nýir kaupendur að ÆSKUNNI fá síðasta jólablað í kaupbæti. Gerizt áskrifendur að ÆSKUNNI. Greiðsla þarf að fylgja áskrift. Ekkert barnaheimili getur verið án ÆSKUNNÁR. Afgreiðsla í Kirkjuhvoli, Reykjavík, Pósthólf 14. 28 FALKINN Næsta vetur var Jón Marteinsson tekinn í háskóla í Kaupmannahöfn af sérstökum góðvilja ráðamanna skólans. Árið 1734 fékk hann uppreisn æru fyrir lausaleiksbrotið með Helgu biskupsdótt- ur, en slík uppreisn var nauðsynleg fyrir háskólaborgara á þeim tíma, til að fá full réttindi. Jón Marteinsson kom aldrei framar til íslands. Hann lauk ekki námi við háskólann, en fékkst við margs konar störf. Hann var um tíma aðstoðarmaður við safn Árna Magnússonar, en missti starfið. Upp frá því var hann sífellt að rita klaganir yfir misbrúkun safnsins, en fékk enga áheyrn. Hann er einhver hinn mesti furðukvistur af íslenzkum uppruna í Kaupmannahöfn. Örlög hans urðu grimm og bitur, og hann bar þess minjar alla ævi, að hann var leikinn grátt í æsku, þó að fleiri hafi ef til vill komið til, svo sem einþykkni hans og fleiri skapbrestir. Eftir Jón Marteins- . son er talsvert til af ritsmíðum og margar furðulegar. Hann bar landi sínu og löndum sérstaklega illa söguna. Hann talar yfirleitt illa um alla í ritum sínum. Hin beizka gremja hans kemur alls staðar fram, enda var hann orð- hákur hinn mesti í ritum sínum. Hann fékkst talsvert við náttúrufræði, en aðallega fornfræði. Halldór Kiljan Lax- nes notar persónu Jóns Marteinssonar í Eldur í Köbenhafn, sem allir kannast við. Eftir að Helga Steinsdóttir féll með Marteini, dvaldist hún áfram á Hólum. Hún giftist síðar Einari Jónssyni Hóla- staðarráðsmanni í Viðvík. * Jórunn Steinsdóttir giftist Hannesi Scheving sýslumanni í Vaðlaþingi og klausturhaldara á Munkaþverá. Hann var mikið valmenni. Jórunn missti hann 1726. Þegar Jórunn varð ekkja, var sýslu- skrifari hjá manni hennar, fjósadreng- urinn, sem forðum ávarpaði hana í hátíðarbúningnum á páskadagsmorgun- inn. Stefán Einarsson var manna ófríð- astur, en mikill gáfumaður. Hann gerðist nú ráðsmaður hjá Jórunni og fór brátt mjög vel á með þeim, enda hafði Hannes sýslumaður spáð því, að hann yrði seinni maður konu sinnar. Þar kom, að Jórunn varð þunguð af völdum Stefáns. Hún ritaði þá föður sínum bréf, og sagði honum hvernig komið var og bað hann, að hún fengi að giftast Stefáni. Biskupshjónunum á Hólum þótti Stefán ekki nógu glæsilegt manns- efni handa dóttur sinni, og dróst því á langinn, að biskup svaraði dóttur sinni. Jórunn fann brátt að ekki var allt með felldu um það, hvað svar kom seint frá föður hennar. Hún lét því búa ferð sína, þó þunguð væri, og reið vestur að Hólum, og hitti föður sinn og fékk svo komið máli sínu við hann, að biskup samþykkti, að hún giftist Stefáni. Fyrsta barneign þeirra Jórunn- ar og Stefáns bar of fljótt að, svo þau urðu ber að lausaleiksbroti. Steinn biskup útvegaði Stefáni síðar uppreisn

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.