Fálkinn


Fálkinn - 10.04.1963, Side 31

Fálkinn - 10.04.1963, Side 31
lagi fundið lík konu hans, væri hann þegar lentur í Evrópu. Þá var aðeins eftir að skipta um nafn, kaupa sér falsað vegabréf — og hverfa .... Þegar dyrabjöllunni var hringt, brá Darby svo hastarlega, að hann missti blaðið, og í fáti, næstum angist, leit hann á klukkuna. 8.21. Hver í fjáran- um gat fundið upp á því, að hringja bjöllunni hjá honum um þetta leyti morguns? Og hverra erinda? Hann ýtti stólnum aftur, reis á fætur og gekk fram og lauk upp. Á tröppun- um stóð maður, sem bauð honum bros- andi góðan daginn. í annarri hendi hélt hann á opnum kassa, sem var fullur af alls konar burstum og öðrum undar- legum smáhlutum, en í hinni bar hann stóran poka með nafn fyrirtækis prent- að á gullnum stöfum. — Eruð þér hr. Darby? Ég er að koma með það, sem þér hafið pantað. Darby glápti á hann eins og naut á nývirki. — Pantað? — Já, burstana yðar — eða réttar sagt konu yðar. Darby horfði skilningsvana á bursta- salann. — Konu minnar? Bros sölumannsins varð dálítið hik- andi. — Já, bur.stana, sem kona yðar pantaði hjá mér í síðustu viku. Kæri Astró. Mig langar mikið til að vita eitt- hvað um framtíð mína og leita ég því til yðar í von um að fá svar sem fyrst í vikublaðinu Fálkanum. Ég var borin í þennan heim kl. 12.00 á hádegi. Ég er mikið hneigð fyrir ferðalög og hef óskaplega útþrá og langar mig að vita hvort mér eigi eftir að auðn- ast að líta hinar stóru borgir augum á næstu árum. Ég er frekar skapstór, en tekst þó furðulega að stilla skap mitt. Ég hef ákveðið að keppa að einu vissu marki á braut menntar- innar og langar að vita hvort ég næ því marki. Um heilsu mína vil ég ekki vita, tíminn rpun leiða í ljós hvernig heilsufari mínu er háttað. Einnig langar mig að vita hvort ég hafi nú þegar kynnzt þeim er muni verða eiginmaður minn, ef ég þá giftist. - Svo vonast ég fljótlega eftir svari frá yður, og kærar þakkir fyrir að birta þetta. Gjörið svo vel að sleppa fæðingardegi, mánuði, ári og fæð- ingarstað. Stella. Svar til Stellu. Það, sem vekur mesta athygíi við stjörnukort þitt er það, hve margar plánetur eru í sjöunda húsi félags- skaparins og hjónabandsins, en þar Darby leit á úrið sitt. — Það getur ekki verið rétt, sagði hann dálítið hryssingslega. — Hvernig 'hefði hún átt að geta pantað bursta? Hún er algerlega lömuð og rúmliggj- andi. Bros burstasalans varð enn efablandn- ara. Hann leit á húsnúmerið, kinkaði kolli og dró pappírsmiða upp úr jakka- vasanum. — En þér eruð þó hr. Darby, ekki satt? Ég hef pöntunina hérna: einn hár- bursti úr næloni, ein dós af handkremi — „Blue Memory“, ein flaska af bað- salti ■— furunáladuft .... Allt saman pantað af frú Elmo Darby. Hún stóð sjálf í dyrunum og lét mig fá pöntun- ina í síðustu viku — á mánudaginn, held ég helzt, að það hafi verið. Svo að það var þá satt, sem hann ■hafði grunað allan tímann. Konan hans hafði sannarlega ekki verið fötluð! Reið- in sauð niðri í Darby. í heil tvö ár hafði hann látið hana kúga sig, þjónað henni, gert hreint í húsinu hvern einasta sunnu- dag, búið til mat handa henni, hoppað og skoppað fyrir hana út í það óendan- lega upp og niður stigana .... honum gramdist næstum, að hann hefði ekki vakið hana, áður en hann .... 8.23! — Jæja, en við viljum ekki sjá þetta, eru átta plánetur. Þar getur að líta Satúrn næstan geisla hússins, þannig að gifting þín gæti dregizt fram yfir tuttugu og fimm ára aldurinn. Allar horfur eru á að gifting muni geta átt sér nokkuð óvænt stað sakir skyndihrifningar, sem grípur þig. Allar þessar plánetur þarna benda til þess að hjónaband þitt verði mjög viðburðaríkt sérstaklega í sambandi við það að þú munt hafa talsverðan metnað til að starfrækja einhverja félagsstarfsemi heima fyrir og muntu hljóta blessun margra fyrir en aðrir munu líta það óhýru auga. Annars kemur heimilið eða geisli fjórða húss undir áhrif Úranusar, sem er nákvæmlega á geisla hússins. Úran- us þarna hefur tilhneigingu til að valda skyndilegum breytingum á heimilisstað manns. Jafnan þannig að maður hafði ekki reiknað með slíku fyrirfram. Slíkt getur átt sér stað sakir starfa manns sjálfs eða mak- ans. Úranus hér bendir oft til þess að efri ár ævinnar séu umhleypinga- söm og viðburðarík. Merki nautsins á geisla annars húss bendir til þess að þú sért hag- sýn í meðferð fjármuna, en þú hefur einnig talsverðan metnað til að afla þér fjár. Þér mundu fara vel úr hendi störf sem gjaldkeri eða af- greiðslustúlka þar sem mikið fjár- magn er haft um hönd. Ráðandi plán- eta fjármálanna er Venus í sjöunda sagði Darby stuttur í spuna og bjóst til að skella aftur. Burstamaðurinn starði á þann þrumu lostinn. — Viljið þér ekki sjá það? En kona yðar pantaði það þó, hr. Darby. Það er kannski bezt, að ég fái að tala við konu yðar augnablik, þá .... — Hvað segið þér, maður? hrópaði Darby næstum þvi. — Guð sé oss næst- ur! Nei og aftur nei. Þér fáið ekki að tala við hana. Hún er að borða morg- unverðinn .... Nei, ég á við, að hún er ekki kominn á fætur ennþá, — hún sefur .... Hann leit aftur á úrið sitt. Hann vissi vel, að hann var of óstyrkur í fram- komu — of æstur. Burstamaðurinn færi brátt að halda, að það væri eitthvað að honum. En áætlunin! Áætlunin, sem átti að standast upp á mínútu! Allt átti að líta eðlilega út. En það var enn tími til að bjarga þessu og halda síðan áfram eftir áætlun. — Hvað kostar þetta? spurði hann. Það var greinilegt, að burstamaður- inn varp öndinni léttara. Hann leit á reikninginn. — Já, við skulum sjá, .... jú, þetta gerir alls fjögur hundruð tutt- ugu og eina krónu .... söluskattur inni- falinn, því að þér skiljið, að .... -— Já, já, ágætt. 8.24. Dr. Darby var Sjá næstu síðu. húsi sem bendir til þess að þátttaka þín í félagslífinu muni hafa mjög hagstæð áhrif á þróun mála á sviði fjármálanna. Ég held að lítil ástæða sé fyrir þig til að hafa áhyggjur af skaps- munum þínum. Það sem helzt væri að þér er það að þú munt vera helzt til of tilfinninganæm fyrir umhverf- inu, þar eð Sólin er í merki Krabb- ans. Slíkt þarf náttúrlega að tempra sem mest. Ég álít að miklar horfur séu á að þú getir ferðast til útlanda, þar eð geisli níunda húss, sem stendur fyr- ir ferðalög meðal annars fellur í sjálft langferðamerkið Bogamanninn. Júpíter er áhrifapláneta ferðalanga hjá þér í hagstæðri afstöðu við Úr- anus og bendir til þess að þér bjóðist tækifæri títt á óvæntan hátt að kom- ast í ferðalög til útlanda. Júpíter í sjöunda húsi bendir til þess að þú munir eiga eftir að ferðast talsvert með eiginmanni þínum eða öðrum nánum félögum áður en þú kynnist honum. f þessu sambandi er 21. og 22. aldursár mjög athyglisvert, einnig árin um og yfir 30, en þá er það með eiginmanni þínum. FÁLKINN 31

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.