Fálkinn


Fálkinn - 10.04.1963, Side 35

Fálkinn - 10.04.1963, Side 35
□TTÓ DG BRLJÐUR SÆKDNUNGSINS Ottó og Danni riðu á hægu tölti um sveitirnar. Þeir voru a leiðinni til Arnarkastala. Engin voru tekin að grænka og það var ilmur í loíti og Danna fannst gaman að vera til. Þeim félögunum fannst þetta vera dásamleg hvíld eftir allar þær mannraunir, sem þeir höfðu lent í nýlega. — Þeir ræddu um hring Róberts og ævintýrið í sambandi við hann. Allt í einu tók þá að svengja. Þeir komu að á nokkurri og Ottó sagði að þeir skyldu taka til matar sins jafnsk.iótt og þeir væru komnir yfir ána. Matur hafði alltaf verið Danna megin og auk þess fannst honum hestbak enginn hægindastóll vera. Þeir komust upp á bakkann hinum megin og lituðust um eftir góðum áningarstað. Allt í einu sá Ottó eitthvað, sem vakti athygli hans. Jörðin, sem enn var rök eftir undanfarandi rigningar, var niður- bæld og mátti greinilega merkja spor í grasinu. „Þetta er bjarnarslóði," sagði Ottó. Þeir rannsökuðu sporin og komust að, því að þau voru nýstigin. ,,Ég hef aldrei heyrt um björn, sem væri á þessum slóðum á þessum tíma árs.“ Veiðimanns- eðlið vaknaði i honum og hann vildi óður og uppvægur halda til að leita hans. Danni tók við taumunum á hestunum, og steig á bak sínum hesti og fylgdist með húsbónda sínum i hæfilegri fjarlægð. Allt í einu stanzaði Ottó, hann hafði fundið klæðis- pjötlu á trjágrein og var hún blóðug mjög. Áður en hann gat gert sér grein fyrir hverju þetta sætti, heyrðist neyðaróp um skóginn. Og ópið heyrðist aftur. Hvaðan kom það? „Þetta er áreiðan- lega dádýr,“ sagði Danni ofur rólegur. „Björninn er að hakka í sig dádýr, sannaðu til.“ Ottó hikaði andartak. Hann vissi að dýraöskur gat úr fjarlægð oft virzt sem mannsóp. En hvaðan kom þá þessi klæðispjatla? Auðvitað var hún af fötum aðalsmeyj- ar. En meðan Danni var kyrr og gætti hestanna hélt Ottó lengra inn í skóginn. Hann furðaði sig á þvi, að hann skyldi ekkert heyra meira. En allt í einu kom ung stúlka hlaupandi á móti honum og gríðarstór björn á eftir henni. FÁLKINN 35

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.