Fálkinn


Fálkinn - 10.04.1963, Síða 37

Fálkinn - 10.04.1963, Síða 37
og horfði á mig sínu drungalega og dýrslega augnaráði. Hún naut þrekleys- is síns með sigrihrósandi brosi. Sólin hækkaði á lofti og varpaði hinni miskunnarlausu birtu sinni á okkur. Sjórinn var ljósgrænn á allar hliðar. Um miðjan daginn bað systir Sonja um kex- og vatnsskammtinn sinn. Er ég lét hana hafa helminginn af skammtinum, leiftraði augnaráð hennar af biturleik og hatri. — Vatn! stundi hún. — Gefið mér svolítið meira af vatni! — Nei! sagði ég og horfði aftur í hat- ursfull augu hennar. Það huggaði hana ekki, að ég tók einnig helminginn af mínum skammti! Svefninn kúrði í útjaðri meðvitundar minnar, reiðubúinn að steypa sér yfir mig í fyrsta sinn, sem ég gaf höggstað á mér. Augnalok mín voru þung eins og blý. Einu sinni lokaði ég þeim — til að prófa systur Sonju. Það leið ein mínúta, ég andaði djúpt og reglulega eins og ég svæfi. Systir Sonja kom hægt skríðandi eftir bátnum í áttina til mín. Er ég opnaði skyndilega augun, snéri hún sér við og skreið aftur í skut. Héðanaf gat ég ekki verið í neinum vafa: Á sama augnabliki og ég sofnaði myndi systir Sonja henda mér fyrir borð enn einu sinni, og í þetta sinn myndi ég vera svo örmagna, að ég kæmist ekki um borð aftur! Ég gerði mér Ijóst að ég átti aðeins eina vörn: að verða fyrri til! Ég stóð á fætur og reikaði fram eftir bátnum. En er ég nálgaðist hina skelfdu og samanbrotnu kvenveru í skutnum, er ég sá hið hrukkótta og bólgna and- lit hennar, hinar spenntu og framréttu greipar hennar í bæn um vægð, þá gat ég ekki gert það .... að kasta varnar- lausri manneskju fyrir borð? Aldrei! Ég reikaði aftur á stað minn í stafn- inum, tók matinn og ákvað að halda mér vakandi, hvað sem það kostaði. Ég fór aftur með faðirvor og horfði yfir sjóinn. En Guð sendi enn ekki skipið sitt! Nóttin skall á. Sama kyrrláta og tunglskinsbj arta hitabeltisnóttin! Hin þungu augnalok mín sigu og ég hafði ekki lengur styrk til að berjast á móti. Ég vaknaði á sama hátt og hina nótt- ina — á því augnabliki sem mér var velt yfir borðstokkinn. Spriklandi hvarf ég í kaldan sjávarstrauminn. Ég kom upp á yfirborðið aftur og meðan ég buslaði ringlaður um, starði ég á eftir bj örgunarbátnum. Þarna var hann og þarna glampaði á andlit systur Sonju bak við borðstokkinn. Hún hafði gripið árarnar og réri nú burt af öllum kröft- um, fastákveðin að gefa mér ekki neitt tækifæri í þetta sinn. Á fáeinum sekúndum var kominn mikill skriður á bátinn vegna straums- ins og árataka systur Sonju og það var vonlaust _ að reyna að synda á eftir honum. Ég gafst upp og lét mig reka með straumnum og beið þeirra hákarla, sem myndu binda enda á þjáningar mínar. Mig hafði rekið með straumnum í nokkrar mínútur, þegar dökkur, stór flötur kom í Ijós nokkur hundruð metra í burtu, bakugginn á stórum fiski, kannski risahákarli, hugsaði ég. Og þó, til þess hreyfði hinn dökki flötur sig alltof hægt. Svo uppgötvaði ég skyndi- lega, hvað ég hafði séð: — Trébotninn eða lokið af einum af hinum ristastóru kössum, þar sem vísindamennirnir frá hinu sokkna skipi höfðu geymt vísinda- tól sín í. Þessi gleðilega sjón gaf mér nýja krafta. Þegar hið þykka, rekandi tré- verk fór fram hjá mér, greip ég í það, og fáum sekúndum síðar klifraði ég um borð á hinum indælasta litla timbur- fleka, sem maður í minni aðstöðu gat haft fyrir augunum. Er ég vaknaði, var sólin hátt á lofti, og sjórinn í kringum mig var kyrr og auður. Ég snéri mér örþreyttur við á flekanum og hvítur silkibútur vakti athygli mína.Hann sat fastur milli hinna gráu og hefluðu borða timburflekans, silkiklútur á stærð við stóran vasaklút, en saumaður sem trekt, en op hennar var fest á lítinn málmhring. Á því aungabliki, sem ég stóð með þetta óhemju þéttofna silkiefni í hönd- unum, vissi ég, að ætti ég eftir að deyja hér úti á hinu stóra hafi, yrði það hvorki úr hungri eða þorsta. Því að það, sem ég hafði fundið, var svifsía, hið smáa, fíngerða silkigarn, sem vísindamenn sjávarlífsfræðinnar nota til að veiða hinar pínulitlu, oft ósýnilegu smálíf- verur, sem reka um heimshöfin rétt undir yfirborðinu. Ég rétti handleggina út móti hinum bláa himni og hló. Strax á eftir byrjaði ég að veiða svif. Ég lagðist á grúfu og stakk hinum trektlaga silki- Sjá næstu síðu. og maki hennar líkinu, og það verður til þess að lögreglan kemst á sporið og böndin berast að þeim. Arabella verst lengi vel, en þegar eiginmaður Claudiu segir lögreglunni allt, sem hann veit, gefst hún upp og játar allt. En Paola hafði leitað til æsltuvinar síns, Aldos. Hjá honum fær hún ekki aðeins lög- fræðilega aðstoð heldur einnig hollar og góðar ráðleggingar. Hann telur hana á, að tala við lögregluna og segja henni allt af létta en þegar faðir hennar, upp- gjafa herforingi, kemst að því hvaða at- vinnuveg dóttir hans hafði stundað, fremur hann sjálfsmorð. Það er Paolu þungt áfall, en verður þó til þess að hún tekur upp nýtt líf. En lögreglan hafði sýknað hana af öllum ákæruatrið- um í sambandi við dauða fyrrnefnds viðskiptavinar hennar. Aðalhlutverkið í þessari mynd er leikið af Jeanne Yalerie, sem er ný- byrjuð að Ieika í kvikmyndum, en Elsa Martinelli fer einnig með stórt hlutverk. Roberto Risso leikur eiginmann einnar stúlkunnar og Jean Murat leikur faðir Paolu. Leikstjóri er Daniele d’Anza og það er ítalski kvikmyndaframleiðand- inn. Dino Laurentiis, sem framleiðir myndina. P'ÁLKINN 37

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.