Fálkinn


Fálkinn - 10.04.1963, Qupperneq 38

Fálkinn - 10.04.1963, Qupperneq 38
Sigurðiir Sigurðssou Framhald af bls. 21. ur, söngkonu. Förin var mjög lærdóms- rík. Ég man til dæmis, þegar ég stóð einu sinni á Times Square og virti fyrir mér mannfjöldann. Þá sé ég allt í einu hvar nokkrir af íslenzku knattspyrnu- mönnunum koma gangandi. Þá varð mér hugsað til þess, að enda þótt þeir hefðu þurft að leggja hart að sér og fórna miklu fyrir íþrótt sína, þá er ekki víst, að þeir hefðu fengið tækifæri til þess að standa hér á Times Square, ef þeir hefðu ekki byrjað að sparka bolta. Ég held að ferð á borð við þessa hafi verið þeim ríkuleg laun erfiðis síns. — Þú ert kannski á móti atvinnu- mennsku í knattspyrnu? — Já, ég er ekkert hlynntur henni. Mér finnst, að þá sé knattspyrnan ekki lengur íþrótt, heldur einhvers konar „Show Business“. Hins vegar vil ég alls ekki lasta þá afreksmenn okkar, sem hafa komið sér áfram á þessari braut erlendis. Mér dettur í hug vinur minn Albert Guðmundsson í þessu sambandi. Ég er sannfærður um, að almenningur gerir sér alls ekki Ijóst, hvílíkrar frægð- ar hann aflaði sér. Ég get sagt ykkur ofurlitla sögu: Þegar ég var á Olympíu- leikunum 1960, fór ég til Nissa, en var svo óheppinn, að umslag með öllum peningum mínum varð eftir í Róm. Ég símaði strax þangað og þeir lofuðu að senda umslagið, en töldu að það gæti tekið nokkra daga. Þá datt mér í hug að leita á fornar slóðir Alberts Guð- mundssonar og hitti að máli einn af stuðningsmönnum félags hans, sem er veitingamaður, og bar honum kveðju frá Albert. Hann tók okkur með kost- um og kynjum og bauð okkur að borða með sér og bauð okkur síðan að koma og borða þerna eins oft og við vildum. Ég var svo heppinn, að peningarnir komu fyrr en ég hafði vonað og hvað eftir annað vildi ég fá að borga. For- stöðumaðurinn sagði alltaf, að við skyld- um gera þetta upp, þegar ég færi. Kon- an mín var með mér í þessari ferð og við borðuðum þarna í heila viku. Síð- asta daginn fer ég til mannsins og bið hann um reikninginn. Hann segir mér að bíða andartak og fer að skrifa aftan á póstkort til Alberts og biður okkur að skrifa á það með sér. Að því loknu spyr ég enn um reikninginn og þá svarar hann: „Já, en þetta var reikningurinn.“ — Ég get sagt ykkur fjölmörg önnur dæmi, sem sýna hversu ótrúlegra vin- sælda Albert naut og hversu mjög Frakkar og ítalir dá knattspyrnumenn sína. Þið hafið heyrt söguna um Albert og Toscanini? — Nei. — Hún er á þá leið, að einhverju sinni sat Albert á veitingahúsi. Við annað borð skammt frá sat Toscanini. Ungur piltur kemur að borði Alberts og biður hann um eiginhandaráskrift og fær 38 FALKINN hana strax. Síðan fer pilturinn að borði Toscanini og biður hann um hið sama. En Toscanini hristir höfuðið. Albert verður var við þetta og álítur, að Tos- canini sé með þessu að sýna sér lítils- virðingu. Hann vilji ekki skrifa nafn sitt á sama blað og hann. Albert stend- ur því á fætur og gengur út. Nokkru síðar dvelst hjá Albert gamli skólastjórinn hans, Jónas Jónsson frá Hriflu. Jónas hefur hug á að skoða tón- listarhöllina, en hún er ekki opin ferða- mönnum. Albert segir, að þeir skuli samt fara þangað og freista þess að fá að skoða höllina. Þegar þeir koma á staðinn, sjá þeir hvar gamall maður gengur út úr byggingunni. Þegar betur er að gáð sjá þeir, að þetta er Toscan- ini. Albert gengur til hans og ber upp erindið, segir að með sér sé fyrrverandi forsætisráðherra íslands og langi tiT að skoða höllina. Toscanini opnar strax og segir, að þeim sé guðvelkomið að skoða hana eins lengi og þeir vilji. Að- ur en þeir ganga inn, tekur Toscanini Albert afsíðis og segir eitthvað á þessa leið: „Þú hélst, að ég væri að sýna þér lítilsvirðingu, þegar ég vildi ekki skrifa nafn mitt fyrir piltinn á eftir þér. í því sambandi langar mig til að sýna þér þetta.“ Hann sýndi honum skjálfandi hendur sínar, en bætti síðan við: „Ég get ekki skrifað lengur.‘“ — Og einhvern tíma fórstu til Fær- eyja? — Jú, jú. Ég hafði mjög gaman af þeirri för. Ég fékk svo mikinn áhuga á landi þeirra og þjóð, að ég tók upp nokkra þætti fyrir útvarpið auk lýsing- arinnar á landsleiknum. Til dæmis tók ég upp einn þátt frá Olafsvökunni, en hún er alveg einstök í sinni röð. Öll hús standa opin, og það er dansað í sam- komuhúsum, á torgum, í heimahúsum og hvar sem vera skal. Það ber alls ekki mikið_ á ölvun meðan á vökunni stend- ur. Ástæðan er kannske sú, að þeir drekka af einu ,,steypi“, eins og þeir kalla það. Hver maður fær ekki sitt glas, heldur gengur eitt staup á milli. Mér líkaði sérlega vel við Færeyinga. Þeir eru lausir við minnimáttarkennd og standa að því leyti til framar sum- um öðrum Norðurlandaþjóðum. Og efnahagur þeirra er góður. Bankastjór- inn í Færeyjum sagði mér, að engin þjóð ætti jafnmikla innistæðu á hvern í- búa. ★ Þannig höldum við áfram að spjalla um hitt og þetta, sem drifið hefur á daga Sigurðar í starfi hans sem íþrótta- fréttaritari útvarpsins. Það er orðið á- liðið kvölds, þegar við búumst til brott- ferðar. Sigurður stendur upp og segir: — Eins og ég sagði ykkur í upphafi, var það í rauninni algjör tilviljun að ég gerðist íþróttafréttaritari útvarpsins. f- þróttir hafa nefnilega aldrei verið mitt hobbý. Tónlistin hefur alltaf verið mitt tómstundagaman. Ég er mikill aðdáandi fiðlunnar og leik sjálfur ofurlítið á það ágæta hljóðfæri ... Sjóiiiaðiiriuii ... Framh. af bls. 37. dúk í sjóinn, svo að hann fylgdi hinum rekandi fleka eins og slóði. Eftir eina klukkustund dró ég netið um borð og hvolfdi úr því í lófa mína. Veiðin sam- anstóð að mestu af pínulitlum rækju- laga krabbadýrum, hrognum og leifum fisks og skeldýra. Ég hámaði það allt í mig. Það var í fyrsta sinn á ævi minni, sem ég bragðaði svif, og mig hefur dreymt um það síðan, því að það var á bragðið eins og safamikil brauðkolla úr rækjum og humar. í næstu átta sólarhringa lifði ég frjáls og óþvingaður af svifsíu minni. Sían úti í einn tíma og ég gat dregið hana upp með næstum kílói af næringarríkri fæðu. Martröð hungurs og þorsta var að baki. Ég hræddist aðeins eitt núna: rok! Við og við leiddi ég hugann að syst- ur Sonju. Hafði hinn mikli meistari sent skip sitt að lokum? Eða lá lík hennar núna í botni björgunarbátsins á reki einhvers staðar úti á hinu stóra hafi? Á níunda sólarhringnum eftir að ég hafði fundið svifsíuna kom norskt gufu- skip auga á mig og bjargaði mér. Gufuskipað varð skyndilega á leið minni, er ég vaknaði um morguninn og það var minna en eina sjómílu í burtu. Ég stökk upp og veifaði hinum hvíta silki- dúk svifsíunnar og það var tekið eftir mér! Ég var ekki alveg örmagna, þegar ég að lokum stóð á þilfari gufuskips- ins og ég kom alveg nógu tímanlega til að vera viðstaddur hátíðlega athöfn um borð, nefnilega útför ungrar konu, sem áhöfn skipsins hafði veitt upp úr rekandi björgunarbát einum tíma áður. Ég þekkti líkið strax: Systir Sonja! Skipstjórinn hélt stutta prédikun og ég get nokkurn veginn munað, hvað hann sagði. Að íbúar suðurhafsins myndu sakna hennar, en hún hefði gert lífið fegurra fyrir þá með því að færa þeim hinn háleita boðskap trúar sinnar. — Blessuð sé minningin, sagði skip- stjórinn, — um sjálfsfórn hennar og hin mörgu góðverk, sem hún vann. Ég hneigði höfuð mitt, þegar lík systur Sonju var látið síga í sjóinn. Ég hugs- aði um það verk, sem systir Sonja framkvæmdi síðast í þessum heimi. Það verk, þegar hún hratt mér fyrir borð um nóttina undir hinum föla mána Kyrrahafsins, en með því verki bjarg- aði hún lífi mínu. Síðasta góðverk hennar! Vegna Guðs? Hilmar Foss Löggiltur skjalþýOandi og dómtúlkur Hafnarstræti 11 . Sími 14824 . Rvík

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.