Fálkinn - 03.02.1964, Síða 4
HÁÐHÚS REYKJAVÍKURBORGAR
Loksins hafa Reykvíkingar séð hylla undir ráðhúsið. Borg-
aryfirvöldunum hefur lengi verið legið á hálsi sakir þess hvað
ráðhúsbyggingin hefur dregist á langinn. Þegar sýningin á
ráðhúslíkaninu var opnuð í Hagaskóla, gaf Geir Hallgrímsson
borgarstjóri skýringu á seinaganginum: Borgarstjórnin hefur
hingað til einbeitt sér að brýnni verkefnum í okkar litla
bæjarfélagi, en þess má víða sjá merki, skólar, sjúkrahús og
aðrar slíkar byggingar hafa risið víðsvegar um bæinn. Ráð-
húsinu er ætlað að vera höfuðdjásn borgarinnar og því hef-
ur ekki verið flanað að neinu: arkitektar og sérfræðingar hafa
setið á rökstólum, staðsetning hússins verið lengi til umræðu
og loks lögðu saman fimm arkitektar og teiknuðu húsið,
árangurinn er orðinn lýðum ljós.
Það sýnir bezt áhuga Reykvíkinga á málefnum borgarinn-
Br að miklar umræður hafa orðið manna á meðal um ráð-
húsið tilvonandi og staðsetningu þess síðan líkanið var sýnt
almenningi. Eru menn ekki á eitt sáttir eins og að líkum lætur
og kveður svo rammt að skoðanamismuninum að eineggja
tvíburar eru jafnvel á öndverðum meiði. Þó mun óhætt að
fullyrða að allur þorri manna sé ánægður með væntanlega
byggingu og staðsetningu hennar. Byggingin er óneitanlega
stílhrein og tignarleg og við sjáum hana speglast í kyrrum
vatnsfleti Tjarnarinnar á mildum ágústkvöldum í framtið-
inni, línurnar eiga jafnvel eitthvað sammerkt við arkitektúr
Esjunnar, sem á eftir að mynda hæfilegt baksvið þessu
ágæta húsi.
Því fer fjarri að ráðhúsinu sé ætlað það hlutverk eingöngu
að vera skrifstofur borgarstjórnar, þetta verður í raun og
veru hús Reykvíkinga, þarna verða listaverkasalir, minjasafn
og annað því um líkt þar sem Reykvíkingar geta mælt sér mót.