Fálkinn


Fálkinn - 03.02.1964, Side 6

Fálkinn - 03.02.1964, Side 6
UNDIRFÖT OR NYION OG PRJÖNASILKI CERES, REYKJAVIK — Bíddu þangað til konan mín sér þig. Sú verður hissa! Um sígarettureykingar. f Háttvirta vikublað. Heldur óþyrmilega var stugg- að við okkur reykingamönn- um, þ. e. a. s. þeim sem reykja sígarettur, og okkur hótað til- tölulega fljótlegum dauðdaga ef við létum af okkar sið og hættum að reykja sígarettur. Þetta var gert með þeim hætti að veifað var flaggi frá ein- hverjum „sérfræðingum“ vest- an hafs þar sem þeir kváðu upp með það að sígarettureyk- ingar væru sérlega óhollar. Aftur á móti var sagt að vindla- og pípureykingar væru tiltölu- lega meinlausar. Nú skeði það næst í málinu að veifað var öðru plaggi frá þýzkum „sér- fræðingum“ þar sem þeir sögðu þetta tiltölulega meinlaust allt saman. Nú er það svo að maður á voðalega erfitt með að ákveða hvorum hópnum á að trúa. Ef þeir vestan hafs reykja ein- göngu vindla eða pípu — þ. e. „sérfræðingarnir" þá öðlast plagg þeirra alveg ný sannindi, að maður nú ekki tali um ef þeir reykja ekki neitt. Ég fyrir mitt leyti er geysilega vantrú- aður á þetta allt saman og held áfram að reykja mínar sígarettur. Og ég held að það sé stórhættulegt að skella þessum fréttum af slíku kappi fyrirvaralaust á menn. Það hefði átt að fara rólegar í sak- irnar. Það líður varla sá dagur að maður hitti ekki einhverja kunningja, sem eru hættir við sígaretturnar og komnir yfir í pípuna og þeir virðast allir vera rétt ódauðir úr krabba- meini. Reykingamaður. Reykingar. Kæri Fálki. Nú er verið að segja manni að það sé hættulegt að reykja og þeir sem hafi reykt eitthvað magn af sígarettum geti verið nokkuð öruggir um að fá krabbamein þar af. Þessar upp- lýsingar eru veittar nokkuð hranalega að fólki og það er , mjög hæpin athöfn þeirra, sem 0 að henni standa. Það getur hver heilvita maður séð að fólki hlýtur að bregða ónotalega við ef allt í einu er hveðinn upp yfir því dauðadómur af mönn- um sem kalla sig sérfræðinga í læknavísindum. Ég veit þess mörg dæmi að fólk hefur orðið mjög hrætt við þessa yfirlýs- ingu og að sumt hefur hrein- lega „sjokkerast“. Ég hélt að þessir menn ættu frekar að að- stoða fólk en hræða það. nefndum lögum. Reykingamaður. Úrklippusafnið. Háttvirta vikublað. Ég hef nú í nokkurn tíma sent ykur úrklippur úr ýmsum blöðum og tímaritum, sem mér hafa þótt spaugilegar. Nokkrar hafa þegar birtzt en margar eru enn óbirtar. Eitt er það í þessu sambandi sem ég hef ekki skilið. Stundum birtast þær úrklippur sem ég sendi en annar er skrifaður fyrir þeim og ég fæ blaðið ekki sent. Ég hélt að ef birtist sams konar úrklippa og ég sendi þá fengi ég blaðið. Er þetta einhver misskilningur hjá mér? Svo þakka ég fyrir margt gott. Lesandi. Svar: Þeir, sem fá birta úrklippu fá blaöiö sent. Þeir sem senda sams konar úrklippur og birtast fá þaö Tiinsvegar ekki. Ef okkur ber- ast margar sams konar úrklippur þá drögum viö úr. ViÖ fáum marg- ar úrklippur þar sem stafavixl liefur átt sér staö eöa línurugl- ingur en slíkt birtum viö ekki nema þaö sé á einlivern hátt spaugilegt. ViÖ erum aö reyna aö fiska eftir spaugilegum úrklippum en ekki venjúlegu stafa- og línu- rugli. Hvers vegna má ekki auglýsa brennivín? Háttvirta blað. Hvernig í ósköpunum stend- ur á því að ekki má auglýsa áfengi? Það má auglýsa síga- rettur eins og þær eru nú sagð- ar hættulegar en ekki áfengi. Mikið er þetta asnalegt. Ég er viss um að áfengisneyzla mundi ekki aukast neitt þótt þetta yrði leyft og maður mundi þá kannski fræðast svolítið um vínið. Með beztu kveðjum. Bakki. Svar: Þessi lög um aö ekki megi aug- tysa áfengi eru vitanlega sett til þess aö hamla á móti notkun þess. Aftur á móti fer þaö ekki milli mála aö hér er áfengi augtyst ekki síöur en erlendis því í öllum þessum sæg af erlendum blööum og tímaritum, sem hér eru seld og lesin, er mikiö um áfengisaug- lýsingar. Þess vegna vaknar sú spurning hvort sala blaöa meö áfengisauglýsingum sé ekki brot 0 FALKINN

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.