Fálkinn


Fálkinn - 03.02.1964, Qupperneq 10

Fálkinn - 03.02.1964, Qupperneq 10
DVERGURINN MILLI RISANNA SÍÐARI GREIIM Luxemborgarar vilja auka ferSamannastrauminn til landsins og taka mjög vel á móti ferðamönnum. Þeir hafa fengið góðan bandamann í þessu efni, sem eru LOFTLEIÐIR, sem hafa gert Luxemborg að aðalvígi sínu í Evrópu, enda eru LOFTLEIÐIR ákaflega vinsælt fyrirtæki þarlendis, ekki síður en hér heima, og íslendingar aufúsugestir. Og frá Luxemborg liggja vegir til allra átta, enda landið í hjarta Evrópu. Hamborg, Frankfurt, Sviss og heimsborgin París — til allra þessara staða er stutt frá Luxemborg. Á ýmsu hefur oltið í þúsund ára sögu Luxem- borgar, og skal hér ekki rakin nákvæmlega at- burðarrás tímans. Ég sagði í fyrri greininni, að þeir hefðu aldrei lotið öðrum ríkjum af fúsum vilja. Hinu er þó ekki að neita að þeir hafa oft orðið að hlýta erlendum yfirráðum. Herkonungar álfunnar lögðu þetta litla riki undir veldi sitt, og stundum tóku þeir upp titil þjóðhöfðingja lands- ins, en alltaf notuðu íbúarnir fyrsta tækifærið til þess að losna undan áþján þeirra og öðlast frelsi sitt á nýjan leik. Frakkar, Austurríkismenn og Spánverjar — allir drottnuðu þeir yfir þessu litla ríki fram til loka Napoleonstímabilsins, síðan hafa Hollendingar, Belgir og Þjóðverjar drottnað yfir því. Og oft hefur Luxemborg verið vígvöllur ann- arra ríkja. Synir og dætur þessa litla lands hafa látið lífið í átökum annarra þjóða, heimili þeirra verið eyðilögð, atvinnutæki þeirra og akrar sömu- leiðis. Og misjafnlega stórt hefur ríkið einnig verið, stærst mun það hafa orðið fimm sinnum það sem það er nú. Því hefur verið skipt upp aftur og aftur og eitt nágrannalandið hefur fengið af því sneið, vegna sneiðar, sem það varð að láta . til annars ríkis. Hinn sterki réði, litla þjóðin varð að beygja sig. En hún beið . . . Luxemborg varð hart úti í báðum heimsstyrjöl- unum báðum. Herir stórveldanna áttust við í landinu í báðum styrjöldunum, eyðileggingin mun hafa orðið enn meiri í hinni síðari. Og að einu leyti urðu Luxemborgarar verr úti í síðari heimsstyrj- öldinni en nokkurt annað hernumið land Þjóðverja. Þessi mynd er tekin í stáliðjuveri, „síldarverk- smiðjinn“ þeirra Lúxemborgarmanna. En í stað fisks á færiböndum rennur bráðið járnið eftir skurðum í gólfinu.

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.