Fálkinn


Fálkinn - 03.02.1964, Blaðsíða 13

Fálkinn - 03.02.1964, Blaðsíða 13
Um þriðjungur Luxemborgar er skógivaxinn og skógarhögg mikiS stundað, en þess vandlega gætt að ekki sé um rányrkju að ræða, því skógur er jafnan gróðursettur á ný, þar sem höggvið hefur verið, eins og sjá má á þessari mynd. ustu vínin, og þeirra er gætt mjög vel, sem eðli- legt er. Okkur fannst býsna ótrúlegt, en satt mun það þó vera, hversu næman smekk sannir vínunnendur hafa á vínum. Til dæmis er það til, að þeir panti vín, sem sé úr vinberjum, er ræktuð hafa verið á einni ákveðinni hæð. Bragðið af því víni er alls ekki hið sama og af víninu úr berjunum af næstu hæð. Og það þýðir ekki aldeilis að reyna að plata sanna víndýrkendur á þessum hlutum. Eftirlit með vín- framleiðslunni er nú mjög strangt. Öll góð vín eru merkt með sérstöku merki víneftirlitsins, og það á að vera óbrigðult, að það vín, sem ber það merki, er góð og ósvikin vara. Og merkingin á flöskunum er svo nákvæm, að ef kvörtun berzt á að vera auðvelt 'að rekja hana til viðkomandi framleiðanda og rannsaka annað af fram- leiðslu hans. Er nú ekki „sjarminn" farinn að minka, þegar tæknin hefur leyst þá framleiðsluhætti, sem tíðkazt hafa frá dögum Rómverja og fram undir okkar daga, af hólmi? Nei, ekki segja þeir í Wellenstein. Öll tæknin í vínframleiðslunni er byggð á reynslu kyn- slóðanna, framleiðsluaðferðir eru aðeins orðnar hrein- legri og fljótvirkari og öryggið meira. Við fengum að bragða á nokkrum víntegundum í Wellenstein, og bar öllum ferðalöngunum saman um það, að betra vín en Rieslinger vínin, er þar voru fyrir okkur borin, hefðum við vart eða aldrei smakkað. Einn ferðalanganna var óðar búinn að tryggja sér umboð fyrir þessum vínum, og vonandi líður ekki á löngu, þar til Luxemborgar borðvín verða hér fáanleg. Lát- um svo útrætt um vínrækt þeirra Luxemborgarbúa. Ótalinn er enn einn mikilvægur „atvinnuvegur“ þeirra Luxemborgarbúa, og það einn hinna þýðingar- meiri. Það er tekjur þeirra af ferðamönnum. Eins og áður hefur verið vikið að, má segja, að Luxemborg liggi í hjarta Evrópu. Fáir staðir eru jafn miðsvæðis og þetta litla ríki. Þaðan liggja vegir til allra átta, og þaðan er stutt til margra stórra heimsborga. Til dæmis eru rúmir 190 km til Brússel, 315 til Amster- dam, 175 til Frankfurt, 518 til Hamborgar, 380 til Genfar, 160 til Strassborgar, 515 til Mílano og 285 til Parísar. Þessar tölur tala skýrustu máli um það, hversu landið er vel staðsett, hvað ferðamenn snertir. Þar eð ágætur flugvöllur er í Luxemborg væri því ekki óeðlilegt, að þar væri mikil miðstöð fólksflutn- inga til og frá Vestur-Evrópu. Þó er það svo, að hin stóru flugfélög hafa ekki hagnýtt sér legu lands- iris eins og vænta hefði mátt, en þar kemur það til, " að forráðamenn þeirra hafa eðlilega viljað beina ferðamannastraumnum til sinna eigin landa. Luxem- borgarar áttu til skamms tíma ekkert flugfélag, en nú fyrir nokkru er þar tekið til starfa flugfélagið Luxair, sem heldur uppi flugsamgöngum frá Luxem- Framhald á bls. 38. Lúxcmborgarmenn framleiða mikið af góðum vínum og hafa meðal annars reist verksmiðju, sem vinnur úr uppskeru bænda f héruðunum í kring. Þessi vín- rækt er mest í Mósedalnum. Hér sjáum við einn starfsmanninn þar smakka á framleiðslunni, og við sjáum ekki betur, en vínið á ámunni sé Rieslingcr, eitthvert bezta vínið, sem þeir framleiða. ,__

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.